22. ágúst, 2005
Hmmm. Svo virðist sem við gætum verið að fá miðvörð úr óvæntri átt, rétt fyrir lokun félagaskiptagluggans. Mirror Sport greina frá því nú á mánudegi að Rafa hafi boðið 4.5m punda í hinn danska, tvítuga miðvörð Daniel Agger hjá Bröndby.
Fréttin segir einnig að Agger, sem var víst í vörn Dana þegar þeir rústuðu Englendingum fyrir fjórum dögum, sé metinn á um 6m punda hjá Bröndby og að Everton og Wigan hafi einnig sýnt honum áhuga - en nú sé talið líklegt að Liverpool verði það lið sem hreppir hann þar sem Rafa hefur boðið 4.5m punda. Rafa gæti þurft að borga meira en það en þar sem hann er einnig að reyna að kaupa hægri vængmann og framherja sé hann að reyna að prútta verðið niður.
Hljómar svo sem vel, fyrir utan eitt: ég hef aldrei séð kappann spila. Ég hoppaði inn á Google og fann þessa mynd af honum þar, en annars veit ég ekki neitt! Þannig að nú spyr ég bloggarann okkar sem býr úti í Danmörku: Aggi, veist þú eitthvað meira um þennan kappa? Endilega, leyfðu okkur að heyra þitt álit ef ske kynni að þú hafir séð hann spila!
Þetta verða spennandi 10 dagar fram að 1. sept, það held ég að sé óhætt að segja…
Uppfært (Aggi): Agger þykir efnilegasti varnarmaður Dana og spilaði óaðfinnanlega í leiknum á móti Englandi um daginn. Eftir þann leik kom fram að Agger gæti orðið dýrasti leikmaður Dana á næstunni.
Ég fór athugaði öll dönsku blöðin (á netinu) og ekkert þeirra ræðir um þetta þ.e. að Agger gæti verið á leið fá Brøndby. Sá í fréttum á TV2 að þeir minnast á að Liverpool hafi áhuga á Agger og vísa í The Sun.
Daniel Agger er 21 árs gamall varnarmaður eða fæddur 1984. Hann er búinn að spila með aðalliðinu í eitt ár og varð fastamaður í vörninni strax í fyrra. Hann er 1.89 cm á hæð og 80 kg. Hann spilar í miðju varnarinnar og þar sem hann er örvfættur þá hefur hann einnig verið notaður sem vinstri bakvörður.
Hann þykir tæknilega góður leikmaður en einnig harður í horn að taka og fastur fyrir. Skorar einnig reglulega bæði með skalla og vinstri fætinum. Ég hef sjálfur séð hann spila bæði “live” og í sjónvarpinu og hann er hörku varnarmaður. Það sem kom mér mest á óvart var hvað hann er ungur en spilar samt afslappað og með sjálfsöryggi.
Ég hugsa að þetta myndu verða mjög góð kaup. Deildin var að hefjast hérna í DK og Agger hefur spilað vel í vörninni hjá Brøndby. Hvort verðmiðinn myndi verða 4,5 mill. punda er líklega of lágt en hver veit.
Brøndby er búnir neita þessum sögusögnum og segja þær skáldaðar uppúr engu.