18. ágúst, 2005
Á meðan að Kristján Atli er að fá taugaáfall yfir því að missa goðið sitt Djibril Cisse til Lyon, þá virðist Gerard Houllier hafa meiri áhuga á Milan Baros.
Chris Bascombe skrifar í Echo að Lyon hafi boðið 8,5 milljónir punda í Milan Baros, sem er tveim milljónum meira en Aston Villa hefur boðið. Bascombe heldur því þó fram að Milan vilji heldur fara til Aston Villa.
Ef svo er, þá skil ég Milan ekki almennilega. Vill hann frekar fara til Aston Villa, sem munu ekki eiga sjens á Meistaradeildinni á næstu árum, eða til frönsku meistarana, sem leika í Meistaradeildinni á þessu ári og ábyggilega á næstu árum líka? Furðulegt mál ef rétt er.