beach
« Leikmannahópurinn í vetur - Kostir og gallar - Markverðir! | Aðalsíða | Spænska landsliðið í kvöld »

17. ágúst, 2005
Hlé: landsliðsmenn & ég

Úff, ég tók mér vikufrí frá erilsömu lífi fótboltafíkilsins og skellti mér í sumarbústað sl. föstudag. Fyrir vikið hef ég ekki litið á eina einustu vefsíðu, ekkert verið með í fréttum síðustu vikunnar og ég sá ekki eitt einasta tuðruspark um síðustu helgi. Það eina sem ég hef séð af fyrstu umferð ensku Úrvalsdeildarinnar er það sem Bjarni Fel sýndi mér á Ríkissjónvarpinu á mánudaginn.

Nú er ég samt kominn aftur og það fyrsta sem ég sá þegar ég kveikti á viðtækinu áðan var að frændur vorir Danir voru að rústa Englendingum, og það kom ekki á óvart að Gerrard spilaði einhverjar 80 mínútur í þessum leik, á meðan Lampard og Terry fengu frí eftir fyrri hálfleikinn. Chelsea eiga stórleik við Arsenal á sunnudag og því var athyglisvert að sjá Ashley Cole spila 90 mínútur í kvöld … gaman að sjá að menn sitja jafnt til borðsins hjá Sven Göran.

En allavega, ég er búinn að sitja hér í klukkutíma og lesa mér upp um það sem ég hef misst af á netskrifum og mér sýnist mestöll umræðan hafa snúist um einn mann hjá okkur: Momo Sissoko. Einar segir að hann hafi verið besti maður okkar gegn Boro og Paul Tomkins var því sammála, þannig að ég hlakka til að sjá næsta leik okkar. Verður gaman að sjá hann.

Svo er Baros að fara og Owen, Shalihamidzic, Solano og Maradona að koma í staðinn. Gaman að því, vonandi fáum við allavega botn í þessi leikmannamál sem fyrst.

Allavega, Aggi og Einar hafa verið duglegir að uppfæra síðuna og verður hún eflaust enn líklegri nú þegar ég er mættur við lyklaborðið á ný - ef það er eitthvað sem ég græddi á þessu helgarfríi frá enska boltanum þá var það sú staðreynd að ég get alls ekki beðið eftir næsta laugardegi! :-)

.: Kristján Atli uppfærði kl. 20:43 | 303 Orð | Flokkur: Almennt
Ummæli (8)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Landslið · Leikmannakaup og sölur · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Upphitun · Vangaveltur · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·Middlesboro 0 - Liverpool 0
·Tímabilið byrjar á morgun
·CSKA Sofia 1 - Liverpool 3
·L'pool 2 - Kaunas 0
·Kaunas 1 - L'pool 3

Síðustu Ummæli

Aggi: Gerrard og Carra gerðu ekki mikið í þess ...[Skoða]
Davíð Már: Svavar, þessu er ég nú ekki sammála að v ...[Skoða]
Svavar: Í fyrsta og síðasta lagi þá finnst mér þ ...[Skoða]
Doddi: Gaman að sjá alla umsjónarmenn hér á vef ...[Skoða]
Hafliði: :-) Velkominn heim úr sumarbústað Kr ...[Skoða]
Kristján Atli: Jamm. Þetta er alltaf jafn fáránlegt ... ...[Skoða]
Einar Örn: Alveg er þetta fokking magnað að Gerrard ...[Skoða]
Sævar Sig: þetta hjá símanum er snild Enskibol ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Leikmannahópurinn í vetur - Kostir og gallar. (frh)
· Lyon bjóða 8.5 í Baros
· Leikmannahópurinn í vetur - Kostir og gallar. (frh)
· DK - Parken - Vi er røde, vi er hvide!
· Strákarnir okkar....
· Owen inn, Baros OG CISSÉ út?

Tenglar

Einar :: Vefleiðari

JupiterFrost

NewsNow Liverpool

ESPN

Cubs

BBC

Liverpool (official)

Liverpool.is

This Is Anfield




Við notum
Movable Type 3.121

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License