beach
« Hvað þarf Morientes til að sýna sitt besta? | Aðalsíða | Rafa tjáir sig um næstu mótherja og framherjamálin »

09. ágúst, 2005
CSKA Sofia á morgun!

Á morgun mæta okkar menn lokahindruninni á leið sinni að riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Og í þetta sinn, eins og kaldhæðnin vill oft hafa það, þurfa þeir að fara á slóðir sem hafa verið nátengdar hugum og hjörtum Púllara um heim allan frá því í maí síðastliðnum. Í dag þekkja allir sögu táningsins Michael Shields frá Liverpool-borg. Hann er að öllum líkindum saklaus en hefur samt verið dæmdur í 15 ára fangelsi, aðeins 18 ára gamall, fyrir meinta morðtilraun í Búlgaríu.

Þannig að það má búast við einhverjum ólátum og/eða leiðindum á og í kringum völlinn í Sofia annað kvöld. Rétt eins og með heimsókn okkar manna til Torínó á Ítalíu í apríl síðastliðnum, þá er hætt við því að það verði atburðir utan vallar sem einoka fyrirsagnirnar. Ég vona þó innilega að svo verði ekki, þar sem ég held að ofbeldi eða átök milli stuðningsmanna liðanna muni ekki hjálpa Michael Shields neitt. Vonandi verða allar fyrirsagnirnar innan vallar, rétt eins og í Tórínó í apríl.

Annað kvöld mætum við sterku liði, það er engin spurning. Þetta Sofia-lið fór, eins og við, frekar auðveldlega í gegnum fyrri umferðir forkeppninnar og þeir ætla sér að komast inn í riðlakeppnina. Að sjálfsögðu eru Evrópumeistararnir sigurstranglegri, en það er ekki það sama og að við séum öruggir með sigur.

Aðalspurningin fyrir mér á morgun verður sú hvernig Rafa stillir upp. Í fyrra notaði Rafa 4-4-2 uppstillinguna í öllum leikjum undirbúningstímabilsins, en síðasta vetur virtist hann notast hvað mest við 4-4-1-1 kerfið víðfræga, þar sem Gerrard, García og Kewell skipust á að spila fyrir aftan fremsta mann, sem var oftast Baros.

Á morgun, á erfiðum útivelli í Evrópu, er í fyrsta skiptið á þessu tímabili ástæða til að spila þetta 4-4-1-1 kerfi. Við þetta bætist svo að við erum bara með þrjá heila framherja, og einn af þeim mun nokkuð augljóslega ekkert spila á morgun, og þá er hægt að sjá hvers vegna það meikar sens að vera bara með einn framherja á morgun - Morientes gæti þá t.d. byrjað inná og Cissé skipt við hann eftir 60 mínútur. Þannig myndu þeir báðir vera ferskir eftir þennan leik fyrir upphaf Úrvalsdeildarinnar eftir þrjá daga.

Þannig að ég spái því að við förum í 4-4-1-1 kerfið á morgun og að Rafa muni stilla eftirfarandi liði upp:

Reina

Finnan - Carragher - Hyypiä - Warnock

García - Sissoko - Alonso - Zenden
Gerrard
Morientes

Á bekknum verða svo væntanlega Carson, Whitbread, Potter, Cissé, Hamann, ungi Spánverjinn Barragan og jafnvel Milan Baros, þótt við vitum fullvel að hann muni ekki spila.

Reyndar gæti Potter spilað vænginn og García í holunni, þá með Gerrard og Alonso saman á miðjunni, en mér finnst líklegt að Rafa láti reynsluna í Evrópu ráða og velji því þetta lið. Hamann verði þá hvíldur til að vera ferskur fyrir deildina á laugardag. Rafa mun svo örugglega nota einhverjar skiptingar til að halda lykilmönnum á borð við Alonso, Morientes og Gerrard ferskum fyrir helgina líka.

MÍN SPÁ: Þetta verður erfiður leikur. Maður veit að Sofia-liðið er sterkt, en hversu sterkt er erfitt að segja til um. Ég einfaldlega þori ekki að spá okkur sigri, þar sem ég veit gjörsamlega ekkert hversu sterku liði við erum að mæta, en ég er samt nokkuð viss um að við töpum ekki. Ég ætla því að spá 1-1 jafntefli á morgun, og Morientes jafnar fyrir okkur eftir hornspyrnu Gerrard eftir 37 mínútna og 13 sekúndna leik. :-)

Ég verð sáttur með jafntefli á morgun þar sem ég er yfirleitt stressaðastur fyrir svona erfiða útileiki gegn liðum sem maður veit ekkert hversu sterk eru. Vonandi getum við sigrað á morgun, það myndi létta mikilli pressu fyrir seinni leikinn á Anfield, en ég skal taka jafnteflið fegins hendi!

Tímabilið hefst fyrir alvöru á morgun, þetta verður svakalegt!

.: Kristján Atli uppfærði kl. 20:42 | 626 Orð | Flokkur: Upphitun
Ummæli (14)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · Landslið · Leikmannakaup og sölur · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·Liv'pool 1 - Chelsea 4
·L'pool 0 - Chelsea 0
·B'ham 2 - L'pool 2
·Liverpool 0 - Man U 0
·Betís 1 - Liverpool 2 (uppfært)

Síðustu Ummæli

Gummi H: Rafa hlýtur að stilla upp sínu sterkasta ...[Skoða]
Stebo: Segiði félagar. Við erum Evrópumeistarar ...[Skoða]
Einar Örn: Jamm, ég horfði á Everton leikinn og þet ...[Skoða]
Doddi: Þegar ég held með liði og spái (þegar pe ...[Skoða]
Elmar Freyr: Hvernig líst mönnum á þetta. Everton 1 ...[Skoða]
Einar Örn: Já, ég held að menn séu aðeins að tapa s ...[Skoða]
Kristján Atli: Úps. Ég ætlaði að skrifa Riise en ekki Z ...[Skoða]
árni úrsbekistan: af hverju á að hvíla menn?? eru menn ekk ...[Skoða]
ool: við tökum þetta 2-1 og á föstudag ...[Skoða]
Eiki Fr: 2-0 fyrir LFC. Morientes leggur upp enn ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Nýr pistill
· Meira um Djibril
· Framherjavandinn
· Alonso ... vill ... Simao
· Hyypia var veikur
· Hvað á að gera?

Tenglar

Einar :: Vefleiðari

JupiterFrost

NewsNow Liverpool

ESPN

Cubs

BBC

Liverpool (official)

Liverpool.is

This Is Anfield




Við notum
Movable Type 3.121

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License