29. júlí, 2005
Það verður eitthvað lítið um uppfærslur á þessari síðu um helgina. Jafnvel er hugsanlegt að ekkert verði uppfært fram til þriðjudags.
Ástæðurnar eru einfaldar. Kristján Atli er í Vestmannaeyjum á Þjóðhátíð og ég verð í London um helgina.
Það kann að vera að Kristján geti uppfært eitthvað, þar sem að ég held að hann gisti í heimahúsi. Ég ætla hins vegar að reyna að taka mér frí frá netnotkun eins og ég get og njóta þess í stað London.
Þetta er auðvitað ein ástæðan fyrir því að við erum að leita eftir þriðja bloggaranum, svo að það komi ekki tímar þar sem enginn er til að uppfæra síðuna. En allavegana, njótið helgarinnar. Og ef að við kaupum Joaquin á kantinn eða Alessandro Nesta í vörnina, þá getið þið skrifað um það í kommentunum við þessa færslu.