beach
« Nunez til Celta (staðfest) | Aðalsíða | Josemi fer ekki neitt »

28. júlí, 2005
Dregið í Meistaradeildinni

cl.gifÁ morgun klukkan 10 verður dregið í þriðju umferð undankeppni Meistaradeildarinnar. Liverpool er auðvitað í pottinum, en þarf að klára seinni leikinn á móti Kaunas á Anfield til þess að komast áfram. Sá leikur ætti að öllu jöfnu að vera formsatriði.

Allavegana, Liverpool verður í efri styrkleikaflokknum ásamt liðum einsog Man U, Inter, Villareal, Ajax, Monaco og Rangers. Við getum því ekki lent á móti þeim liðum.

Hins vegar getum við lent á móti eftirfarandi liðum:

Slavia Prag
Real Betis
Basel
Wisla Krakow
Udinese
Partizan / FC Sheriff
Shakhtar Donetsk
Malmö / Maccabi Haifa
Shelbourne / Steua Bukarest
Dinamo Tbilisi / Bröndby
Dudelange / Rapid Wien
KF Tirana / CSKA Sofia
Debreceni / Hadjuk Split
Famagusta / Trabzonspor
Valerenga / FC Haka
Everton

Einsog þið sjáið þá eru þarna fulltaf sætum, sem eru óráðin þar sem að önnur umferðin er ekki búin. En styrkleikamunurinn á þessum liðum er mjög mikill.

Til að vera alveg heiðarlegur, þá vil ég helst sleppa við Everton. Það væri fátt skemmtilegra en að slá Everton út, sem við ættum undir öllum eðlilegum kringumstæðum að gera, en ég held að Everton hefðu ágætt af því að fara inní riðlakeppnina, því þá getum við bókað að það lið á eftir að standa sig illa í deildinni.

Önnur lið, sem maður vill helst forðast eru svo sem ekki mörg. Einna helst Real Betis og Udinese, þar sem þau lentu í fjórða sæti í ítölsku og spænsku deildunum, sem eru báðar sterkar. Við ættum auðvitað að vinna öll þessi lið án mikilla erfiðleika. En auðvitað er þetta alltaf hættulegt.

Þetta verður spennandi.

.: Einar Örn uppfærði kl. 20:17 | 263 Orð | Flokkur: Meistaradeild
Ummæli (8)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Landslið · Leikmannakaup og sölur · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Upphitun · Vangaveltur · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·L'pool 2 - Kaunas 0
·Kaunas 1 - L'pool 3
·Liverpool 4 - Olympiakos 3
·T.N.S. - Liverpool 0 - 3
·Liverpool 3 - T.N.S. 0

Síðustu Ummæli

Páló: Basle 1893 v Werder Bremen CELTIC or ...[Skoða]
aha: og já....var að skoða listann á UEFA.com ...[Skoða]
aha: við fáum Slavia Prag, finn það á mér.... ...[Skoða]
Eiki Fr: Ég vil Everton og við FÁUM Everton. Mér ...[Skoða]
Bjarki Balvinsson: Ég vona að við fáum Everton. ...[Skoða]
GK: Ég vil fá Árna Gaut og félaga í Vålereng ...[Skoða]
Birgir Steinn: FC Haka er líka einkar skemmtilegt nafn. ...[Skoða]
Garon: Ég væri til í Famagusta, fer eitthvað sv ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Hvað þarf Morientes til að sýna sitt besta?
· Rafa enn brjálaður vegna Gonzales
· Þriðji penninn
· Dudek og Medjani
· Meiðsli, meiðsli, meiðsli (uppfært: meiðsli)
· Newcastle í viðræðum við Real (uppfært: Og Man U líka!)

Tenglar

Einar :: Vefleiðari

JupiterFrost

NewsNow Liverpool

ESPN

Cubs

BBC

Liverpool (official)

Liverpool.is

This Is Anfield




Við notum
Movable Type 3.121

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License