25. júlí, 2005
Ég ætla að koma hérna með smá teljarablogg, þótt ég viti að mörgum leiðist slíkt.
En allavegana, við erum núna á rúmum 13 mánuðum komnir með yfir 400.000 flettingar og því fannst mér við hæfi að koma með smá tölfræði.
Frá því í júní í fyrra hefur fjöldi notenda á þessari síðu meira en þrefaldast. Núna er fjöldi innlita vanalega um 800 á dag. Daglegir notendur eru vanalega um 5-600. Ég er nokkuð stoltur af þessum árangri, og ég er viss um að Kristján er það líka. Við stefnum auðvitað hærra, enda er ég fullviss um að þarna úti er til fullt af Liverpool stuðningsmönnum, sem veit ekki af þessari síðu okkar. Með nýju tímabili stefnum við auðvitað að því að auka enn notendahópinn og með nýjum bloggara þá vonandi mun það takast.
Ef við værum þáttakendur í virkri vefmælingu hjá Teljara.is þá værum við sennilega í kringum 40. sæti yfir vinsælustu vefsíður landsins, með um 3000 notendur á viku, rétt fyrir neðan vinsælustu bloggsíður landsins, sem eru Fazmo.is og kallarnir.is. Ef það væri flokkað eftir innlitum, þá værum við í 30. sæti, uppfyrir Kallana. Ef ég myndi “svindla” aðeins og taka líka inn mína persónulegu síðu, þá er ég nokkuð klár á því að við kæmumst yfir þær tvær síður hvort sem horft væri á flettingar eða notendur.
Hversu fyndið er líka að við erum með um 1000 fleiri notendur á viku heldur en Arsenal.is, sem er vefur Arsenal klúbbsins? Mér finnst það allavegana stórsniðugt
Í síðasta mánuði slógum við svo dagsmetið okkar. Þá náðum við uppí 4330 síðuflettingar á einum degi. Það þýðir að einhver notandi skoðaði einhverja síðu á þessu bloggi á sirka 20 sekúndna fresti allan þann sólarhring. Það þarf ekki að koma nokkrum einasta manni á óvart að þetta met var sett þann 5. júlí.
Varðandi nýjan bloggara, þá erum við búnir að fá nokkrar umsóknir, en við ætlum að hafa umsóknarfrest út þessa viku (semsagt fram á föstudag). Ef þú hefur áhuga, en hefur ekki enn sent okkur póst, láttu þá endilega verða af því. Sjá nánari upplýsingar hér: Nýr penni óskast!