24. júlí, 2005
Jæja, þá er Luis Figo sápuóperunni lokið: Hann ætlar að vera áfram hjá Real Madrid.
Það er spurning hver sé ástæðan? Var það vegna þess að Real Madrid og Liverpool gátu ekki sætt sig við söluverð og hann sá að hin liðin, sem kepptust um hylli hans, væru ekki nógu spennandi? Hver veit. En hann mun allavegana klára síðasta árið sitt hjá Real Madrid og verður því frjáls maður næsta sumar.
Þetta eru auðvitað vonbrigði fyrir okkur, enda hefði Figo verið mjög spennandi kostur fyrir hægri kantinn okkar, auk þess sem við yrðum þá loksins með alvöru vítaskyttu.
Antonio Nunez er hins vegar á leiðinni til Celta Vigo á Spáni. Forseti liðsins segir að þau skipti séu nær pottþétt.
Þá er spurning hvað muni gerast á hægri kantinum hjá okkur. Er Rafa sáttur við að hafa Luis Garcia, Mark Gonzales og Darren Potter á kantinum? Ég held ekki. Það er alveg ljóst að hægri kanturinn er orðinn einn veikasti hlekkurinn í liðinu. Ég hef fulla trú á Luis Garcia, en það er erfiðara að segja með Darren Potter. Af áhuganum á Luis Figo af dæma, þá má telja að Rafa hafi áhuga á að bæta við hægri kantmanni, en víst við erum núna búin að missa af Figo, þá verður spennandi að sjá hvað Rafa gerir. Af hverju er hann að selja Nunez? Við vitum ekki hvernig Gonzales á eftir að standa sig í deildinni. Í raun vitum við ekki hvenær hann geti hugsanlega byrjað að spila aftur, þar sem hann er meiddur.
En ég er allavegana á þeirri skoðun að ef það á að styrkja einhverjar stöður fyrir byrjun keppnistímabilsins, þá hljóta hægri kantur og miðvörður að vera forgangsatriðin.