beach
« Crouch og Baros | Aðalsíða | Veðmál um Crouch »

20. júlí, 2005
Crouch búinn að skrifa undir (STAÐFEST)

Jæja, þá er það eeeendanlega staðfest: Peter Crouch hefur skrifað undir 4 ára samning við Liverpool.

Crouch mun vera í treyju númer 15 og fjandinn hafi það ef að hann reynist okkur ekki betur en síðasti maður til að leika í treyju númer 15, Salif Diao.

Það kemur nú ekki margt merkilegt fram í viðtölum við Crouch eftir undirskriftina. Hann segir í raun alla réttu hlutina, bæði fyrir Liverpool og Southampton menn:

“I am thrilled to be joining a club as prestigious and successful as Liverpool. Once I heard of their interest in me it was hard not to think about what it would be like to pull on the famous red shirt and play in front of the Kop, but I was also very aware of my responsibilities towards Southampton. After a lot of thought I requested the permission of the Chairman and Board of Directors of the club to talk to Liverpool.”

Rafa er líka voðalega ánægður með þetta allt.

Peter Crouch er nú orðinn 7. dýrasti leikmaður Liverpool frá upphafi!!! !!! !!! Það er ótrúlega magnað að hugsa til þess. Þeir einu, sem eru fyrir ofan Crouch á þeim lista eru Cisse (sem er enn langdýrasti leikmaðurinn), Heskey, Xabi, El-Hadji Diouf, Didi Hamann og Stan Collymore. Ansi skrautlegur listi það.

Það er í raun magnað að hugsa til þess að ef maður skoðar topp 10 dýrustu mennina (Morientes, Chris Kirkland og Nick Barmby fylla listann) að í raun hafa bara tveir staðið undir væntingum. Ef ég er grimmur, þá í raun bara einn: Didi Hamann. Hinir eru frá því að vera algjört flopp (Kirkland, Diouf) til manna sem voru góðir í stuttan tíma og hurfu svo (Heskey, Collymore, Barmby) og svo manna, sem eiga enn eftir að sanna sig yfir heilt tímabil (Cisse, Moro og Xabi). Já, það borgar sig ekki alltaf að kaupa dýrustu leikmennina. En við skulum vona að Crouch sanni sig.

Þess má geta að Crouch er 27 sentimetrum hærri en Luis Garcia. Ég legg til að þeir standi ekki saman á liðsmyndum :-)

.: Einar Örn uppfærði kl. 13:57 | 340 Orð | Flokkur: Leikmannakaup og sölur
Ummæli (9)

Hann er 201 cm.

Einar Örn sendi inn - 20.07.05 18:01 - (Ummæli #5)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Landslið · Leikmannakaup og sölur · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Upphitun · Vangaveltur · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·L'pool 2 - Kaunas 0
·Kaunas 1 - L'pool 3
·Liverpool 4 - Olympiakos 3
·T.N.S. - Liverpool 0 - 3
·Liverpool 3 - T.N.S. 0

Síðustu Ummæli

Mummi: Fyrir ykkur sem eru ennþá í vafa um kaup ...[Skoða]
björgvin: mér finnst nú óráðsía að niðurspila crou ...[Skoða]
palli: hann er allavega það stór að Guardian va ...[Skoða]
Steini: hólí móli :-) ...[Skoða]
Einar Örn: [Hann er 201 cm](http://www.google.com/s ...[Skoða]
Birgir Steinn: hann er held ég akkúrat 2 metrar (6'7") ...[Skoða]
Steini: Hvað er hann eiginlega stór? ...[Skoða]
Bjarki: Vonandi verður hann betri en þarsíðasti ...[Skoða]
Jonni: Vonandi að hann nái að standa sig, þó sv ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Hvað þarf Morientes til að sýna sitt besta?
· Rafa enn brjálaður vegna Gonzales
· Þriðji penninn
· Dudek og Medjani
· Meiðsli, meiðsli, meiðsli (uppfært: meiðsli)
· Newcastle í viðræðum við Real (uppfært: Og Man U líka!)

Tenglar

Einar :: Vefleiðari

JupiterFrost

NewsNow Liverpool

ESPN

Cubs

BBC

Liverpool (official)

Liverpool.is

This Is Anfield




Við notum
Movable Type 3.121

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License