19. júlí, 2005
Jæja, fyrstu slæmu meiðslafréttir tímabilsins eru þá komnar: Harry Kewell verður frá í 6 vikur vegna kviðslits.
Að mínu mati ferlegar fréttir, en koma Zenden mun þó gera þetta öllu bærilegra og hann fær væntanlega gott tækifæri til að sanna sig. En það er vonandi að Kewell nái sér vel af þessu. Ég er ennþá sannfærður um að Harry Kewell muni virkilega sanna sig á þessu tímabili og vera mikilvægur fyrir Liverpool.
Það er því ljóst að hann og Sinama-Pongolle munu missa af byrjun þessa tímabils.