beach
« Igor kveður | Aðalsíða | YNWA segja að Figo hafi skrifað undir (uppfært: rugl) »

16. júlí, 2005
3-0 sigur á Leverkusen + annað

Okkar menn unnu Leverkusen 3-0 í Austurríki í dag, í þriðja leik þessa undirbúningstímabils. Leikurinn var ekki sýndur neins staðar að því er ég best veit, en ég hlustaði á útvarpslýsinguna á opinberu síðunni og miðað við það sem maður heyrði þar var bara eitt lið á vellinum mestallan tímann. Rafa virtist allavega ánægður með þennan leik:

“It was a good game for us … We used a different team in each half and I am pleased with the performance. My idea was to see all the players and I now have to analyse the squad before selecting who will fly back to face TNS on Tuesday. That is most important for us now.”

Jamm.

Allavega, við höfum nú unnið þrjá fyrstu leiki undirbúningstímabilsins: gegn Wrexham úti, gegn TNS heima og gegn Bayer Leverkusen á hlutlausum velli. Markatalan okkar í þessum þremur sigrum er 10-3, og staða markaskorara okkar er eftirfarandi:

    Steven Gerrard - 3 mörk
    Milan Baros - 3 mörk
    Fernando Morientes - 2 mörk
    Djibril Cissé - 2 mörk

Ekki slæmt það. Ég veit ekki hvað menn eru að væla yfir því að við þörfnumst Michael Owen, mér sýnist framherjarnir okkar standa sig ágætlega. :-)

Annars er það helst í fréttum að Momo Sissoko spilaði fyrsta leik sinn í dag, Shaun Wright-Phillips ætlar til Chelsea, Thierry Henry er er nýr fyrirliði Arsenal, og Rio Ferdinand er óvinsæll á Old Trafford.

Hellingur að gerast í boltanum þessa dagana, ég minni áhugasama á að hægt verður að nálgast mörkin úr Leverkusen-leiknum á .TV einhvern tímann síðar í kvöld (skilst að fyrsta mark Cissé hafi verið frábært) … svo vona ég bara að menn njóti helgarinnar. Góðra tíðinda er síðan að vænta eftir helgi, en skv. góðum heimildum eru umboðsmenn Figo staddir í Liverpool-borg þessa helgina að ganga frá samningi, sem Figo ætti þá að geta undirritað þegar hann er kominn til Liverpool-borgar frá Ameríku eftir helgina.

Góðar stundir. :-)

.: Kristján Atli uppfærði kl. 19:53 | 323 Orð | Flokkur: Almennt
Ummæli (10)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · Landslið · Leikmannakaup og sölur · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·Liverpool 3 - CSKA Moskva 1
·Liveropool 0 - CSKA Sofia 1
·Liverpool 1 - Sunderland 0
·Middlesboro 0 - Liverpool 0
·Tímabilið byrjar á morgun

Síðustu Ummæli

Elmar Freyr: ;( aldrei er neitt frítt. Það verður ...[Skoða]
Kristján Atli: Já, úff. Þeir eru með Crespo... þá eru þ ...[Skoða]
Einar Örn: Oooog ég gleymi Hernan Crespo. Jæja, þe ...[Skoða]
Einar Örn: Nei, Drogba er ekki lélegur framherji. ...[Skoða]
Kristján Atli: Já Hólmar, við erum ekki öll svo gríðarl ...[Skoða]
Hólmar: Drogba er ekki lélegur framherji, svo er ...[Skoða]
Einar Örn: Ok, en Robben var á hægri kantinum hjá þ ...[Skoða]
Kristján Atli: Einar - Duff, Cole og Robben eru allir v ...[Skoða]
Einar Örn: Las líka að bæði mörkin hafi verið lögð ...[Skoða]
Páló: leikurinn var sýndur á Players. sést oft ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Djibril Cissé er hundfúll!
· Moro, Cisse og Sissoko skoruðu.
· Taumlaus Leiðindi...
· Rafa er skynsamur í innkaupum.
· Benitez að breyta "scouting" kerfinu hjá okkur.
· Gonzalez kemur, 1. janúar eða 1. júlí 2006.

Tenglar

Einar :: Vefleiðari

JupiterFrost

NewsNow Liverpool

ESPN

Cubs

BBC

Liverpool (official)

Liverpool.is

This Is Anfield




Við notum
Movable Type 3.121

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License