beach
« Sissoko velur betra liðið í Liverpool borg | Aðalsíða | Wrexham 3 - L'pool 4 »

09. júlí, 2005
Figo:Mig dreymir um að spila fyrir Liverpool

Ég veit ekki með ykkur, en mér finnst yndislegt þegar að leikmenn, sem hafa verið valdir bestu knattspyrnumenn í heimi segja svona hluti um Liverpool. Luis Figo talaði við Sky og sagði þar m.a. eftirfarandi:

“It’s my dream to play for Liverpool but dreams don’t always come true, I am still waiting.”

Jahá!. Og svo skýtur hann á Real:

“I don’t understand, if the club don’t see me as part of their plans, why they won’t let me go. It’s close but it’s still up in the air and nothing has been finalised,”

Einnig, þá er Luxemburgo eitthvað að bauna á Michael Owen. Hann segir að ef hann þoli ekki að sitja á bekknum, þá eigi hann að fara. Robinho er sennilega að koma til Real, þannig að það mun sennilega fækka tækifærunum fyrir Owen.

Svona komment gætu leitt til þess að Owen vildi fara frá Real Madrid. Ef að Shrek heldur áfram að spila vel fyrir Manchester United, þá gæti vel farið svo að hann yrði striker númer 1 hjá enska landsliðinu fyrir HM 2006. Og ef að Jermaine Defoe á aftur gott tímabil, þá er alls ekkert ólíklegt að hann nái að slá Owen útúr liðinu, sérstaklega ef að Owen leikur minna fyrir Madrid en hann lék á síðasta tímabili. Owen hefur ábyggilega áhyggjur af því að missa sæti sitt á HM og gæti því orðið hræddur við svona komment.

Verðmiðinn á Owen, sem fréttamiðlar tala um er 12 milljónir.

Má ég því leggja til eftirfarandi: Liverpool hafa boðið 6,5 milljónir í Peter Crouch, þannig að sá peningur er fyrir hendi.

  1. Við hættum við að kaupa Peter Crouch
  2. Rafa segir Milan Baros að hann sé búinn að fá uppí kok á þessum yfirlýsingum hans um að hann geti hugsað sér að fara frá liðinu og að hann þurfi að finna sér nýjan klúbb
  3. Við seljum Baros fyrir 8 milljónir punda
  4. Þá eigum við 14,5 milljónir punda í bankanum
  5. Kaupum Michael Owen og Luis Figo fyrir 13-14 milljónir punda.

Við myndum svo enda með lið, sem yrði leitt af heilögu þrenningunni: Carra, Stevie og Michael!

Væri það ekki yndislegt?

.: Einar Örn uppfærði kl. 11:38 | 355 Orð | Flokkur: Leikmannakaup og sölur
Ummæli (5)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Landslið · Leikmannakaup og sölur · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Upphitun · Vangaveltur · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·L'pool 2 - Kaunas 0
·Kaunas 1 - L'pool 3
·Liverpool 4 - Olympiakos 3
·T.N.S. - Liverpool 0 - 3
·Liverpool 3 - T.N.S. 0

Síðustu Ummæli

Kristinn J: Já takk, komdu heim Michael, komdu heim. ...[Skoða]
Clinton: Sælir - mikið líst mér vel á þetta. V ...[Skoða]
Biggi: Jú það væri svo sannarlega yndislegt. ...[Skoða]
Hannes: Mér líst vel á þetta plan þitt! :biggri ...[Skoða]
JónH: Geturðu ekki sent Rafa fax eða eitthvað. ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Hvað þarf Morientes til að sýna sitt besta?
· Rafa enn brjálaður vegna Gonzales
· Þriðji penninn
· Dudek og Medjani
· Meiðsli, meiðsli, meiðsli (uppfært: meiðsli)
· Newcastle í viðræðum við Real (uppfært: Og Man U líka!)

Tenglar

Einar :: Vefleiðari

JupiterFrost

NewsNow Liverpool

ESPN

Cubs

BBC

Liverpool (official)

Liverpool.is

This Is Anfield




Við notum
Movable Type 3.121

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License