beach
« Gerrard verður áfram fyrirliði | Aðalsíða | CARRA NEITAR AÐ SKRIFA UNDIR!!! »

06. júlí, 2005
Myndir af Zenden fundinum

Mitt í allri geðveikinni, þá týndist algjörlega sú frétt að við vorum að kaupa fjóra leikmenn og einn þeirra, Bolo Zenden var kynntur á blaðamannafundi. Á LFC History.net eru nokkrar góðar myndir (þ.m.t. þessi mynd hér að ofan) af fundinum og einnig stutt frásögn. Það verður nú að segjast að Liverpool búningurinn fer Zenden talsvert betur en Middlesboro búningurinn. :-)

Fyrir þá, sem misstu af því í allri geðveikinni, þá er hérna góð umfjöllun sem Kristján tók saman um leikmennina fjóra: Zenden og hinir þrír!.

Einnig er hérna grein á BBC um Mark Gonzales: Liverpool have bought a star

Einnig fyrir þá, sem eru með E-season ticket, þá mæli ég eindregið með viðtalinu við Gerrard á LFC.tv. Það er greinilegt að hann sér verulega eftir því, sem hefur gerst undanfarna daga. Hann gerir sér grein fyrir því að sumir aðdáendur verði reiðir, en ég er fullviss um að menn jafna sig á því þegar Stevie byrjar að skora mörk fyrir okkur aftur.

.: Einar Örn uppfærði kl. 18:30 | 162 Orð | Flokkur: Leikmannakaup og sölur
Ummæli (19)

Ég þakka hrósið. Við Einar gerum þetta orðið jafn mikið fyrir ykkur lesendurna eins og fyrir okkur sjálfa, það hvetur mann áfram að vita að fólk bíður eftir að lesa okkar skoðanir á ýmsum málum.

Hins vegar, þá mæli ég með því að fólk nýti sér þá þjónustu sem Liverpool.is býður. Þar er margt í gangi varðandi fréttaflutning sem við gerum ekki hér - við stöndum t.d. ekki í að þýða viðtöl né halda utan um ferðaþjónustu við Púllara. Þannig að ég hvet menn til að nýta sér þá síðu, þótt auðvitað sé ómissandi að koma hingað og sjá hversu reiður Einar er yfir tapleikjum gegn botnliðum, svo að dæmi sé nefnt :-)

Enn og aftur, ég þakka hrósið … og þakka ykkur fyrir að lesa síðuna. Án ykkar værum við bara tveir bjánar að tala við vegginn. :-)

Kristján Atli sendi inn - 07.07.05 00:55 - (Ummæli #15)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Landslið · Leikmannakaup og sölur · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Upphitun · Vangaveltur · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·L'pool 2 - Kaunas 0
·Kaunas 1 - L'pool 3
·Liverpool 4 - Olympiakos 3
·T.N.S. - Liverpool 0 - 3
·Liverpool 3 - T.N.S. 0

Síðustu Ummæli

Jónas H: Þetta er athyglisvert með númerin. Zende ...[Skoða]
Sindri: Þá eru númerin hjá Zenden og Reina komin ...[Skoða]
Halldór: Verð að vera sammála öðrum, þetta er frá ...[Skoða]
Baros: Vil taka undir með mönnum hér að síðan y ...[Skoða]
Kristján Atli: Ég þakka hrósið. Við Einar gerum þetta o ...[Skoða]
Haffi: Ég verð bara að taka þátt í þessu hrósi. ...[Skoða]
JónH: Ég vil taka undir þakkir til ykkar strák ...[Skoða]
Kiddi: Er búinn að vera með e-ticket í þrjú ár ...[Skoða]
Einar Örn: Og já, takk líka Arnar :-) Ég er líka ...[Skoða]
Arnór: Þessi síða er nú búinn að vera Home Page ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Hvað þarf Morientes til að sýna sitt besta?
· Rafa enn brjálaður vegna Gonzales
· Þriðji penninn
· Dudek og Medjani
· Meiðsli, meiðsli, meiðsli (uppfært: meiðsli)
· Newcastle í viðræðum við Real (uppfært: Og Man U líka!)

Tenglar

Einar :: Vefleiðari

JupiterFrost

NewsNow Liverpool

ESPN

Cubs

BBC

Liverpool (official)

Liverpool.is

This Is Anfield




Við notum
Movable Type 3.121

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License