beach
« Liverpool hafnar 32 milljón punda boði Chelsea | Aðalsíða | Gerrard talar »

05. júlí, 2005
Dómsdagur í dag? (Uppfært: JÁ!)

Uppfært (Kristján Atli): Yfirlýsingin var að berast: STEVEN GERRARD VILL YFIRGEFA LIVERPOOL FC!

Flott mál. LOKSINS búið að fá niðurstöðu í þetta mál, af eða á, og nú getum við LOKSINS hafið það ferli að losa okkur við manninn sem hefur ekki trú á Rafael Benítez og félögum sínum, og kaupa í staðinn leikmann sem vill spila fyrir Liverpool FC undir stjórn Rafael Benítez.

Þetta er ekki skemmtilegur tími til að vera Liverpool aðdáandi. EN… þetta er vissulega áhugaverður tími til að vera Liverpool aðdáandi.

Þegar Keegan fór, þá fengum við leikmann í staðinn. Man einhver hvaða leikmaður það var? :-)



Upphafleg færsla:
Mér líður eins og ég sé staddur inná biðstofu tannlæknis. Eftir að aðgerðinni á kjálka mínum hefur verið frestað í nokkur skipti, sit ég hér enn einu sinni og bíð eftir að aðstoðardaman opni hurðina, brosi til mín og segi mér að ég megi koma inn núna.

Akkúrrat á þessari stundu, áður en daman opnar hurðina, má segja að ég sé að undirbúa mig undir áfallið. Áfallið virðist vafra fyrir ofan axlirnar á mér og bíður eftir þessu augnabliki, þegar það getur sest með öllum sínum þunga á brjóstið og axlirnar á mér. Ég veit að aðgerðin er nauðsynleg og mun gera mér gott til lengdar, en það breytir því ekki að aðgerðin sjálf er stressandi og sársaukafull, auk þess sem ég er skíthræddur við nálar.


Steven Gerrard. Helvítið hann Steven Gerrard. Hvort hann er “sekur” í þessu máli eða ekki veit enginn, og ég efast um að við munum nokkru sinni vita nákvæmlega hvers vegna atburðir síðustu þriggja sólarhringa gerðust. Það eina sem við getum haldið tangarhaldi í er þetta:

EF hann fer getum við með fullkominni samvisku snúið baki við honum, kallað hann öllum illum nöfnum og fylkt liði á bak við Strákana Okkar - þá sem ekki svíkja lit fyrir peninga - og beðið til Guðs, Allah, Jesú, Búddha og John Lennon að Rauði Herinn fái einhvern tímann að spila gegn því liði sem Gerrard fer til, bara svo að við getum notið þess að sjá hann skíttapa fyrir liðinu sem hann átti aldrei að yfirgefa!

…eða…

EF hann verður kyrr getum við enn á ný breitt út sameiginlegan faðm okkar og hrósað happi - einn allra besti miðjumaður í heiminum er ennþá fyrirliði Liverpool FC og með hans hjálp ætlum við okkur stóra hluti!

Spurningin er bara, hvor niðurstaðan verður að veruleika? Það er erfitt fyrir mann að ætla að hrópa á Stevie núna og kalla hann öllum illum nöfnum, þar sem hann er ekki farinn og það er alls ekkert víst að hann eigi nokkra sök í þessu máli. Að sama skapi finnst manni erfitt að reyna að verja hann, meðvitaður um það að hann er kannski að stinga klúbbinn í bakið í þessum töluðum orðum.


Paul Tomkins, sem við Einar höfum báðir gríðarmikið álit á, birti í dag nýjustu grein sína sem fjallar að sjálfsögðu um þessa ljótu, ljótu, ömurlegu sápuóperu alla saman: STEVEN GERRARD: SIGN UP, OR SHIP OUT!

Í þessari grein fjallar Tomkins á sinn skýra og einfalda hátt um Gerrard-málið, og lýkur greininni á eftirfarandi orðum. Mér finnst við hæfi að láta þau fylgja hér, þar sem ég er 1,000% sammála því sem hann segir hér:

“At this point in time I actually don’t care that much if he stays or goes, as I see Liverpool being winners both ways. Losing him on the cheap in 2006 or 2007 would be a disaster; but someone paying top dollar this summer would satisfy me, as it would give Rafa the chance to build a better all-round side, providing he spends that money wisely (he has tended to, so far). If prospective players might want to play alongside Gerrard, then I feel satisfied that this will pale when compared to their desire to play for Benítez.

All I care about is where Gerrard goes. Chelsea or Manchester United, and I’d feel sick to the core, and concerned at strengthening our domestic rivals; Real Madrid and I’d see a lot of new ‘possibilities’ –– a better Real Madrid, of course, but a better, and more unified Liverpool, too.”

Nákvæmlega. Mér líður svona núna. EF Gerrard framlengir við Liverpool og spilar með öllu hjarta og af fullri alvöru, bjartsýnn á framtíðina undir stjórn Rafa, fyrir Liverpool þá verð ég sáttur við að hann sé áfram.

Ef ekki, þá vill ég selja hann og það sem fyrst. Lesist: Ég vill selja Steven Gerrard … svo lengi sem hugur hans og hjarta liggi ekki lengur hjá Liverpool FC. Eins og Tomkins sagði, betra að fá útlending sem spilar af fullum hug en að hafa heimalinginn, dýrðling okkar allra, sem hengir haus.

Sjáum hvaða yfirlýsingu við fáum seinna í dag. Sú yfirlýsing mun sennilega skýra ansi margt…

.: Kristján Atli uppfærði kl. 13:26 | 794 Orð | Flokkur: Leikmannakaup
Ummæli (26)

Án þess að hljóma ofbeldisfullur, þá mætti alveg mín vegna taka þennan dreng og berja hann með oddhvössum steini í ennið. Klúbburinn gerði auðvitað reginmistök með því að semja ekki við hann strax í þynnkunni föstudaginn eftir meistaradeildarleikinn, en það réttlætir ekki þennan væl í Gerrard og umboðsmanninum að Gerrard vilji fara bara af því að menn voru seinir til við að semja.

Ef þér finnst vera seinagangur þá segirðu bara "Halló! ekkert að gerast hérna? Eigum við ekki að drífa þetta af?" í staðinn fyrir að leka allskyns bulli í öll dagblöð á Englandi um að klúbburinn sé að draga lappirnar.

Bascombe er reyndar með athyglisverðar kenningar um þetta hér þar sem honum finnst undarlega mikil tilviljun hvað Chelsea var tilbúið með kauptilboð að kvöldi dagsins sem allt fór í háaloft og byrjaði meira að segja að leka upplýsingum um yfirvofandi tilboð í blaðamenn á sunnudagskvöldið.

Það verður bara að segjast að núna eru yfirgnæfandi líkur á að drengurinn fari til Chelsea af því að mjög margt bendir til þess að atburðarásin sé hreinlega hönnuð af SFX og Mourinho.

Talandi um að berja einhverja með oddhvössum steini í ennið...

Kiddi sendi inn - 05.07.05 15:09 - (Ummæli #12)

Jammm, ég mæli með greininni, sem Kiddi bendir á:

Gerrard is faced with agonising choice again.

Reyndar skrifuð áður en yfirlýsingin kom, en góð engu að síður.

Einar Örn sendi inn - 05.07.05 15:17 - (Ummæli #14)

Einar, hér er verið að segja að Barca séu búnir að bjóða 37 milljónir í Gerrard!

Það hafði aldrei hvarflað einu sinni að mér að hann myndi ekki fara til Real eða Chelsea. Ég hata báða þá klúbba ... en ég elska Barcelona. Ef hann færi þangað yrði ég einfaldlega hæstánægður!!!

Kristján Atli sendi inn - 05.07.05 15:36 - (Ummæli #19)

Og sjá hérna: Dalglish fyrir Keegan. Það gerðist eftir við urðum Evrópumeistarar 1977.

Einar Örn sendi inn - 05.07.05 16:44 - (Ummæli #24)

Ég hef verið að velta fyrir mér yfirlýsingu Gerrds þ.e. þeim ummælum hans að þetta hefðu verið erfiðustu sex vikur í lífi hans.

Þetta getur ekki þýtt neitt annað en að hann var búinn að ákveða að fara, en svo varð Liverpool Evrópumeistari og það setti strik í reikning hjá honum. Hefði Liverpool dottið út t.d. á móti Juve eða Chelski þá hefði hann getað sagt að klúbburinn væri ekki á réttri leið, hann vildi vinna titla (sem er raunar bölvaður orðaleppur því hver vill ekki vinna titla ?) þá hefði hann getað farið og margir hefðu sagt ok. Hann var búinn að segjast ætla að sjá til. Liverpool vann ekkert, hann má og getur farið.

Svo kom vesenið. Liverpool vann Meistaradeild Evrópu og hann fékk sem fyrirliði að taka við dollunni og þeir er innan við fimmtíu sem hafa fengið þann heiður og þá var Gerrard kominn í klípu. Hvernig gat hann sagt að Liverpool væri ekki á réttri leið ? Búinn að vinna stærsta bikarinn í leik sem verður talað um næstu 300 árin eða svo.

Þá varð að gera eitthvað annað og það var að búa til slúður um að Liverpool vildi selja hann. Það er svo augljóst á viðbrögðum Benitez á fréttamannafundinum í gær að hann var sleginn, byrjaði að tala um Gerrard sem framtíðarþjálfara og svo framvegis. Vantaði bara að hann byði honum að sofa hjá konu sinni. Þetta voru ekki viðbrögð manns sem var búinn að plotta að losa sig við Gerrard þvert á móti.

Munið líka að Asley Cole sagði að það væri búið að ganga frá því að Gerrard færi til Chelski. Skyldi þó ekki vera satt eftir allt saman ?

Hvað um það, Gerrard fer. Mér er slétt sama hvert, en ég reikna með að það verði Chelski. Ég ætla að muna eftir því sem hann gerði vel.

Ég held að hann sé að gera stærstu mistök sín til þessa. Hann er að missa af tækifæri til að vera fyrirliðinn sem kemur með meistartignina aftur á Anfield en í stað þess vill hann vera privat Gerrard hjá Chelski. Hann á örugglega eftir að vinna titla og hvaðeina þar og fá meiri pening, en ég held að það verði súrsæt tilfinning hjá honum.

Ég hefði viljað hafa hann áfram. Liverpool verður ekki betra án hans, en hann er ekki ómissandi og að sumu leyti er þetta léttir að þurfa ekki að hafa þennan sirkus áfram í vetur. Þótt hann hefði skrifað undir núna þá hefði þessi umræða haldið áfram á fullu.

Jói Jóns sendi inn - 05.07.05 17:03 - (
Ummæli #25)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.








:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?




Flokkar

Almennt · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · HM leikskýrslur · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·Liverpool 3 - West Ham 3 (6 - 4 eftir vítaspyrnukeppni)
·Portsmouth 1-3 Liverpool
·Liverpool 3 - Aston Villa 1
·Baros mætir á Anfield á morgun.
·West Ham 1 - Liverpool 2

Síðustu Ummæli

JónH: Mér líður eins og ég hafi verið stunginn ...[Skoða]
Jói Jóns: Ég hef verið að velta fyrir mér yfirlýsi ...[Skoða]
Einar Örn: Og sjá hérna: [Dalglish fyrir Keegan](h ...[Skoða]
Einar Örn: Það væri svo yndislegt! Ég er allaveg ...[Skoða]
Mummi: Gerrard hefur ekki haft trú á Liverpool ...[Skoða]
Kristinn: Hvað með t.d. að kaupa Jenas frá Newcast ...[Skoða]
Bjarki Balvinsson: Ég hata Real Madrid og Chelsea og held m ...[Skoða]
Kristján Atli: Einar, <a href="http://www.redandwhiteko ...[Skoða]
Einar Örn: Hefði ekki Scott Parker verið ákjósanleg ...[Skoða]
Satan: Ummæli Les Lawson, Liverpool Internation ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Aurelio og Gonzales!!!
· Joaquin, Zenden, Dudek og Barragan
· Paletta skrifar undir samning... og æfingar byrja
· Tord Grip gagnrýnir Carragher.
· Hatem Trabelsi á leið til okkar?
· Cisse sár og gæti Anelka verið á leiðinni?

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License