beach
« júlí 04, 2005 | Main | júlí 06, 2005 »

05. júlí, 2005
Gerrard talar

Jæja, Gerrard hefur talað. Í samtali við Sky segir hann:

“The last six weeks have been the toughest of my life. The decision I have come to has been the hardest decision I have ever had to make.

“I fully intended to sign a new contract after the Champions League final but the events of the past five or six weeks have changed all that.

“I have too much respect for the club and the people at it to get involved in a slanging match.”

Ó plís. Gimmí a FOKKING BREIK!

Gerrard mun aldrei takast að snúa þessu sér í hag. Hann segist ekki ætla að ræða þetta frekar af því að hann hefur ekkert til að ræða um. Hann getur ekki mögulega kennt Liverpool um þetta. Það er hreinlega ekki sjens. Ekki eftir öll skiptin, sem hann vildi fresta samningaviðræðunum.

Hversu lélegt er að fresta alltaf viðræðunum þegar illa gengur, en loksins þegar vel gengur vilja þá allt í einu semja. Og fara svo í fýlu af því að klúbburinn stekkur ekki upp til handa og fóta og býr til samning á þeirri sekúndu.

Lélegt, Gerrard! Lélegt!

Þú verður að koma með betri afsökun til að sannfæra okkur.

Mikið vona ég að þetta mál klárist sem fyrst, svo við getum einbeitt okkur að framtíðinni og látið stælana í Steven Gerrard vera vandamál einhvers annars liðs.


Xabi og Carra, þetta er YKKAR LIÐ!

liverpool_2_27915a.jpg

Sýnið nú öllum heiminum að Gerrard hefur rangt fyrir sér!

.: Einar Örn Einarsson uppfærði kl. 16:39 | Ummæli (20) | Flokkur: Leikmenn

Dómsdagur í dag? (Uppfært: JÁ!)

Uppfært (Kristján Atli): Yfirlýsingin var að berast: STEVEN GERRARD VILL YFIRGEFA LIVERPOOL FC!

Flott mál. LOKSINS búið að fá niðurstöðu í þetta mál, af eða á, og nú getum við LOKSINS hafið það ferli að losa okkur við manninn sem hefur ekki trú á Rafael Benítez og félögum sínum, og kaupa í staðinn leikmann sem vill spila fyrir Liverpool FC undir stjórn Rafael Benítez.

Þetta er ekki skemmtilegur tími til að vera Liverpool aðdáandi. EN… þetta er vissulega áhugaverður tími til að vera Liverpool aðdáandi.

Þegar Keegan fór, þá fengum við leikmann í staðinn. Man einhver hvaða leikmaður það var? :-)



Upphafleg færsla:
Mér líður eins og ég sé staddur inná biðstofu tannlæknis. Eftir að aðgerðinni á kjálka mínum hefur verið frestað í nokkur skipti, sit ég hér enn einu sinni og bíð eftir að aðstoðardaman opni hurðina, brosi til mín og segi mér að ég megi koma inn núna.

Akkúrrat á þessari stundu, áður en daman opnar hurðina, má segja að ég sé að undirbúa mig undir áfallið. Áfallið virðist vafra fyrir ofan axlirnar á mér og bíður eftir þessu augnabliki, þegar það getur sest með öllum sínum þunga á brjóstið og axlirnar á mér. Ég veit að aðgerðin er nauðsynleg og mun gera mér gott til lengdar, en það breytir því ekki að aðgerðin sjálf er stressandi og sársaukafull, auk þess sem ég er skíthræddur við nálar.


Steven Gerrard. Helvítið hann Steven Gerrard. Hvort hann er “sekur” í þessu máli eða ekki veit enginn, og ég efast um að við munum nokkru sinni vita nákvæmlega hvers vegna atburðir síðustu þriggja sólarhringa gerðust. Það eina sem við getum haldið tangarhaldi í er þetta:

EF hann fer getum við með fullkominni samvisku snúið baki við honum, kallað hann öllum illum nöfnum og fylkt liði á bak við Strákana Okkar - þá sem ekki svíkja lit fyrir peninga - og beðið til Guðs, Allah, Jesú, Búddha og John Lennon að Rauði Herinn fái einhvern tímann að spila gegn því liði sem Gerrard fer til, bara svo að við getum notið þess að sjá hann skíttapa fyrir liðinu sem hann átti aldrei að yfirgefa!

…eða…

EF hann verður kyrr getum við enn á ný breitt út sameiginlegan faðm okkar og hrósað happi - einn allra besti miðjumaður í heiminum er ennþá fyrirliði Liverpool FC og með hans hjálp ætlum við okkur stóra hluti!

Spurningin er bara, hvor niðurstaðan verður að veruleika? Það er erfitt fyrir mann að ætla að hrópa á Stevie núna og kalla hann öllum illum nöfnum, þar sem hann er ekki farinn og það er alls ekkert víst að hann eigi nokkra sök í þessu máli. Að sama skapi finnst manni erfitt að reyna að verja hann, meðvitaður um það að hann er kannski að stinga klúbbinn í bakið í þessum töluðum orðum.


Paul Tomkins, sem við Einar höfum báðir gríðarmikið álit á, birti í dag nýjustu grein sína sem fjallar að sjálfsögðu um þessa ljótu, ljótu, ömurlegu sápuóperu alla saman: STEVEN GERRARD: SIGN UP, OR SHIP OUT!

Í þessari grein fjallar Tomkins á sinn skýra og einfalda hátt um Gerrard-málið, og lýkur greininni á eftirfarandi orðum. Mér finnst við hæfi að láta þau fylgja hér, þar sem ég er 1,000% sammála því sem hann segir hér:

“At this point in time I actually don’t care that much if he stays or goes, as I see Liverpool being winners both ways. Losing him on the cheap in 2006 or 2007 would be a disaster; but someone paying top dollar this summer would satisfy me, as it would give Rafa the chance to build a better all-round side, providing he spends that money wisely (he has tended to, so far). If prospective players might want to play alongside Gerrard, then I feel satisfied that this will pale when compared to their desire to play for Benítez.

All I care about is where Gerrard goes. Chelsea or Manchester United, and I’d feel sick to the core, and concerned at strengthening our domestic rivals; Real Madrid and I’d see a lot of new ‘possibilities’ –– a better Real Madrid, of course, but a better, and more unified Liverpool, too.”

Nákvæmlega. Mér líður svona núna. EF Gerrard framlengir við Liverpool og spilar með öllu hjarta og af fullri alvöru, bjartsýnn á framtíðina undir stjórn Rafa, fyrir Liverpool þá verð ég sáttur við að hann sé áfram.

Ef ekki, þá vill ég selja hann og það sem fyrst. Lesist: Ég vill selja Steven Gerrard … svo lengi sem hugur hans og hjarta liggi ekki lengur hjá Liverpool FC. Eins og Tomkins sagði, betra að fá útlending sem spilar af fullum hug en að hafa heimalinginn, dýrðling okkar allra, sem hengir haus.

Sjáum hvaða yfirlýsingu við fáum seinna í dag. Sú yfirlýsing mun sennilega skýra ansi margt…

.: Kristján Atli uppfærði kl. 13:26 | Ummæli (26) | Flokkur: Leikmannakaup

Liverpool hafnar 32 milljón punda boði Chelsea

Rick Parry hefur staðfest að Liverpool hafi hafnað 32 milljón punda tilboði í Steven Gerrard.

Í fyrsta lagi vilja Liverpool ekki selja. Og í öðru lagi, ef að Chelsea borguðu 26 milljónir fyrir Didier fokking Drogba, þá þurfa þeir að hækka þetta tilboð sitt.

.: Einar Örn Einarsson uppfærði kl. 08:12 | Ummæli (15) | Flokkur: Slúður

Flokkar

Almennt · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · HM leikskýrslur · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

Síðustu Ummæli

Bjarki Breiðfjörð: Já mjög góður dagur.. Annað en sama dags ...[Skoða]
Einar Örn: Jammm, Hössi, það var nákvæmlega það sem ...[Skoða]
Hannes: LOKSINS! FRÁBÆRT! :-) ...[Skoða]
Hössi: Eins og staðan er í dag held ég að Kewel ...[Skoða]
Kristján Atli: Snilld! Þetta eru sannarlega fr ...[Skoða]
Páló: er eitthvað vitað hvaða númer nýju menni ...[Skoða]
eikifr: Ég einhvern veginn stórefast um að Betis ...[Skoða]
Liverbird: Við höfum ágætis cover í Harry Kewell, h ...[Skoða]
Davíð Már: Eftir að hafa séð þennan mann almennileg ...[Skoða]
Arnar: Mjög spennandi leikmaður Joaquin vona in ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Gerrard talar
· Dómsdagur í dag? (Uppfært: JÁ!)
· Liverpool hafnar 32 milljón punda boði Chelsea

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License