03. júlí, 2005
Mauricio Pellegrino hefur skrifað undir samning við Alaves á Spáni.
Þá er spurningin hver á að vera backup fyrir Hyypia og Carragher á næsta tímabili, eða ætlar Rafa kannski að kaupa miðvörð, sem ætti að koma í staðinn fyrir Hyypia? Við höfum lítið heyrt af Gabriel Milito að undanförnu og í raun ekki verið orðaðir við neina aðra miðverði. Ef að annaðhvort Hyypia eða Carra meiðast, þá er Djimi Traore sennilega næsti maður inní liðið og þar á eftir Zak Whitbred eða Carl Medjani. Ég efast um að Benitez fari inní tímabilið án þess að vera með meiri breidd í þessari stöðu, nema þá að hann treysti Whitbred eða Medjani þeim mun betur.