01. júlí, 2005
Ég held að við getum nú farið að kveðja gúrkutíðina endanlega.
Liverpool hafa að sögn Echo skrifað undir eins árs lánssamning við Mark Gonzales, leikmann Albacete. Kristján Atli fjallaði stuttlega um Gonzales fyrir nokkrum dögum. Þetta hefur ekki enn verið staðfest á opinberu heimasíðunni, en það gæti jafnvel gerst í dag.
Ef að Gonzales stendur sig, þá getur Liverpool keypt hann á um 3 milljónir punda.
Samkvæmt sömu frétt þá er Salif Diao á leiðinni frá Liverpool. Guði sé lof segi ég nú bara.
Uppfært (EÖE): Liverpool hafa staðfest að þeir séu í viðræðum við Albacete um að fá Gonzales til liðsins. Gonzales mun þurfa atvinnuleyfi til að spila. Þar sem hann er fastamaður í chileska landsliðinu, þá ætti það svo sem ekki að vera vandamál. Albacete féll úr fyrstu deildinni á Spáni, svo þeir munu ekki stoppa þetta mál.
Ok, þannig að við getum búist við að Jose Reina, Mark Gonzales og Zenden verði orðnir Liverpool fyrir næsta miðvikudag. Þá er spurning hver fjórði maðurinn sé.