30. júní, 2005
Kirkland til W.B.A.
Jæja, þá er “Herra Meiðsli” búinn að mæta á fyrstu æfinguna sína hjá W.B.A. en þar verður hann í láni út leiktíðina.
Annars, þá á fyrrverandi manchester united
maðurinn Bryan Robson kvót dagsins
“Chris Kirkland is a top quality keeper who forced his way into the England squad and was then just a bit unlucky with injuries.”
Just a bit unlucky?
Kirkand er án efa óheppnasti leikmaður í heimi. Hann er fullkomlega ófær um að spila 4 leiki í röð án þess að meiðast. Ég held að þetta sé jinx útaf veðmálinu, sem pabbi hans setti á að hann myndi spila með enska landsliðinu. Alltaf þegar Kirkland er nálægt því að spila, þá meiðist hann.
En vonandi nær Kirkland sér á strik, svo að við fáum einhvern pening fyrir hann þegar við seljum hann. Ég þori að veðja nokkuð háum upphæðum um að Kirkland verði aldrei aðalmarkvörður Liverpool.
.: Einar Örn uppfærði kl.
15:09
|
148 Orð
|
Flokkur:
Leikmannakaup og sölur
Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".
Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote
Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.