22. júní, 2005

Fréttaþurrð síðustu þriggja vikna er búin að vera gjörsamlega fáránleg! Það þarf bara að líta á skrif okkar Einars í júní í fyrra til að bera saman og sjá, sem er, hversu ótrúlega lítið af leikmannaslúðri hefur verið í gangi það sem af er sumri.
Þannig að ég vona að þið skiljið að ég er orðinn örvæntingarfullur að finna eitthvað, bara eitthvað, sem gæti talist líklegt. Þannig að ég skellti mér á hollenska íþróttamiðla og - þar sem ég tala enga hollensku - fékk hjálp frænku minnar til að þýða það sem stóð í þessari frétt: Liverpool wil Kuijt voor 10 miljoen plus Dudek!
Þarna stendur í grunndráttum að Rick Parry sé búinn að hitta Dirk Kuijt og komast að samkomulagi við hann, auk þess sem búið sé að járna út flestalla hluti á milli liðanna tveggja, Feyenoord og Liverpool. Það eina sem er eftir, skv. þessari hollensku frétt, er að sættast á kaupverð. Feyenoord vilja víst fá 15m Evrur fyrir kappann en Liverpool eru bara tilbúnir að borga 10m.
Til að hjálpa samningunum í höfn eru Parry og Benítez hins vegar tilbúnir að láta Jerzy Dudek og a.m.k. einn ungan leikmann (líklegast Tony Le Tallec, mín ágiskun) fylgja með 10 millunum og vonast þeir til að Feyenoord samþykki það tilboð fyrir helgina, svo hægt sé að klára kaupin áður en Rafa og leikmennirnir hefja undirbúningstímabilið á mánudaginn n.k.
Þessi frétt er reyndar frá 17. júní sl., föstudeginum síðasta, og því ljóst að margt vatn hlýtur að hafa runnið til sjávar síðan þessar upplýsingar láku í hollenska fjölmiðla. Og auðvitað gæti maður táknað það að við höfum ekkert frekar heyrt, sem tákn um að illa hafi gengið að semja við Feyenoord. En við vonum það besta.
Hvað meira getur maður sagt? Það er fokið í flest skjól ef ég er farinn að redda þýðendum fyrir mig til að komast í meira slúður af Liverpool! :p
Ég vona hins vegar að af þessum kaupum verði - ef Reina er að koma í markið er líklega best að Dudek fái að fara hvort eð er - og þótt Le Tallec sé enn hörkuefnilegur þá held ég að Rafa hafi ekki fulla trú á honum og því sé kannski betra að hann fái að fara líka.
Mig langar bara í Dirk Kuijt (eða Kuyt, eftir því hvaða fréttamiðla maður les). Mig dreplangar að sjá þennan leikmann í Rauðu Treyjunni okkar, fallegasta búningi í heimi! Ég er sannfærður um að hann myndi reynast okkur miklu, miklu betri kostur en Peter Crouch!
Slúður, gjörið svo vel. Þetta er kannski langsótt, en þetta er þó eitthvað. Vonandi líður ekki önnur eins gúrkutíðarvika eins og sú síðasta hefur verið … ég mun sennilega fara yfirum og byrja að naga hnén á mér ef, næsta miðvikudag, við verðum ekki enn búnir að kaupa einn einasta helvítis leikmann!
p.s.
Annars las ég það eftir einum á spjallborði YNWA.tv að þegar væri búið að ganga frá kaupunum á Reina, Milito og Zenden og væri bara beðið þangað til í næstu viku, þegar æfingar hefjast og Milito er laus úr Álfukeppninni, með að halda fréttamannafund og kynna þá þrjá. Það yrði fín tilbreyting frá undanförnum vikum - þrír kynntir á einu bretti!
Uppfært (Kristján Atli): Var að finna aðra frétt FRÁ ÞVÍ Í DAG á sama miðli. Þessi segir að allt sé frágengið og Kuijt muni fara til Liverpool um leið og Feyenoord ákveða hvort þeir vilji 10 milljónir Evra + Dudek eða bara 10 milljónir Evra. Sem sagt, vantar þá markvörð eða ekki?
En allavega … skv. hollenskum fjölmiðlum virðist vera orðið déskoti líklegt að Kuijt verði orðinn Liverpool-leikmaður áður en júnímánuður er úti. Hversu mikil snilld yrði það?!?!?