16. júní, 2005
Samkvæmt Echo, þá hefur Rafa gert Dirk Kuyt að sínu aðal takmarki í sumar. Samkvæmt blaðinu hefur áhugi Benitez á Peter Crouch minnkað mjög eftir að 5 milljón punda boði liðsins var hafnað af Southampton.
Einsog við höfum áður talað um, þá hefur Kuyt sagst hafa áhuga á að spila fyrir Liverpool, þannig að aðalmálið er að Liverpool og Feyenoord komi sér að samkomulagi um kaupverðið.
Diouf er loksins farinn til Bolton.
Og samkvæmt Rick Parry, þá eru Liverpool núna tilbúnir til að setjast að samningsborði með Steven Gerrard til að klára nýjan samning við fyrirliðann okkar. Það er gott mál!