beach
« HAMANN SKRIFAR UNDIR (STAÐFEST!) | Aðalsíða | Meistaradeildin (uppfært - VIÐ VERÐUM MEÐ!) »

09. júní, 2005
KAUPUM KUIYT NÚNA!!!

441e036de0866f0bd8d7de627dced39a.jpgOk, ég ætla að beita allri hugarorku minni næstu mínúturnar í að senda þessi skilaboð til Rafa Benitez:

HÆTTU VIÐ PETER CROUCH.
KAUPTU DIRK KUYT!!!

Sjáiði bara þessa frétt: Kuyt admits Reds desire

Dirk segir:

“Liverpool have contacted Feyenoord but no bid has been made yet by Liverpool.”

“I would really want to go to Liverpool. It’s a great club and I hope I can play for them.”

Þarf eitthvað meira?

Ok, þetta er útrætt mál af okkar hálfu hér á Liverpool blogginu. Kaupum Dirk strax! Ekki bara að hann sé frábær framherji, heldur þá hefðum við Kristján loksins tækifæri á að hafa leikmann, sem spilaði bæði fyrir okkar uppáhaldsfélagslið og uppáhaldslandslið. Semsagt, Hollending, sem spilar fyrir Liverpool.

Nennirðu að drífa í þessu og klára þetta mál, Rafa minn. Ok?

.: Einar Örn uppfærði kl. 16:33 | 130 Orð | Flokkur: Slúður
Ummæli (24)

Ef Crouch, sem skoraði einhver 16 mörk í vetur, kostar 7 millur … þá ætti Dirk Kuyt, sem skoraði 28 mörk í vetur, að vera á tilboði fyrir 10 millur.

Þetta bara hlýtur að gerast, ég trúi ekki að Rafa velji Crouchy fram yfir Kuyt!

Kristján Atli sendi inn - 09.06.05 17:56 - (Ummæli #3)

ehem…Albert Luque, Raúl, Luis Figo og núna Dirk Kuyt. Þið hafið slefað yfir þessum mönnum þegar að þeir hafa verið tengdir við okkur. Fyrir utan Kuyt, þá dæmið þið hina leikmennina eftir því hvað þeir gátu, ekki eftir því hvað þeir GETA. Í núna 2 tímabil í röð er Raúl búinn að vera crap fyrir Real og spænska landsliðið. Figo kemst/komst ekki einusinni inní liðið og er orðinn gamall í þokkaót og Luque er búinn að vera LÉLEGUR á þessu tímabili og vel ofmetinn í þokkabót hjá Depor síðan að hann kom þangað (Irureta á þá sök, spilaði hann alltaf í vitlausri stöðu og lét hann alltaf byrja inná þrátt fyrir að vera í hörmulegu formi).

…og er núna striker númer 2 hjá Hollendingum á eftir Van Nilsteroy hjá Man U. Þannig að hann er góður.

Hann er góður vegna þess að hann er 2. stræker hollenska landsliðsins? Hafa Hollendingar úr svona mörgum strækerum að velja? Hooijdonk er 34/5 ára, Hasselbaink er 33/4 ára gamall og Kluivert er búinn að vera. ÞVÍLÍK SAMKEPPNI :-)

Ég fylgist lítið með hollensku deildinni (hún er frekar léleg í þokkabót) og sækist ekkert sérstaklega mikið eftir að fylgjast með hollenska landsliðinu þannig að ég get ekkert sett út á Dirk Kuyt en ég vill samt ekki fara að hoppa í 7. himinn útaf einhverjum sem að var markahæstur í hollensku deildinni. Hvar var markahæstur í fyrra þar á bæ og hvar er hann nú?

Aron sendi inn - 09.06.05 21:25 - (
Ummæli #11)
Hvað er pointið hjá þér, Aron, fyrir utan að rakka okkur niður
Ég er ekki að rakka ykkur niður, ég er að benda ykkur á staðreindavillur og koma mínum skoðunum á framfæri í leiðinni. Hér ríkir málfrelsi, ekki satt?
Og má ég spyrja þig einnar spurningar: hefurðu séð Kuyt spila? Ef ekki, slepptu þá þessum barnalegu kommentum.
Ekki skjóta þig svona í fótinn Einar minn. Ég hélt að ég hefði sagt/skrifað að ég hefði nákvæmlega ekkert fylgst með Dirk Kuyt? Lastu það ekki? Mér finnst bara hálf undarlegt að þér finnst kappinn vera frábær eða nógu góður til þess að spila fyrir Liverpool eftir að hafa séð aðeins fáeina leiki með honum í broddi fylkinga en rakkar síðan Peter Crouch niður þrátt fyrir að hann hafi átt frábært tímabil (og ekki skjóta þig aftur í fótinn með því að halda að mér finnist Peter Crouch betri en Dirk Kuyt því að ég er ekki í neinni stöðu til þess að segja til um það).
Ef þér finnst Figo eða hver sem er vera lélegri en okkur, þá geturðu sett það fram á skynsamlegan hátt í stað þess að segja:
Guði sé lof að þú ert ekki Rafa Benitez

Ekki gera svona lítið úr mér, þetta var nú bara kaldhæðni enda finnst mér leiðinlegt að endurtaka sömu orðin aftur og aftur. Þú þarft ekki að leyta langt til þess að finna þetta:

NEI!!! Það væri stórt skref niðrávið fyrir klúbbinn að fá málaliða eins og Figo. Hvað í fjandanum á hann að bæta? Hann er ekki betri en Garcia og ekki betri en Riise og ekki betri en Kewell. Hann mundi aldrei sætta sig við það að vera á bekknum þannig að hver verður skilinn útundan í staðin fyrir hann?

http://www.eoe.is/liverpool/gamalt/2005/04/28/11.07.06/index.php#comments

Þetta var mitt framlag í þá umræðu, hvort sem þér líkar betur eða ver enda sagðir þú í lok greinarinnar:

…en ég vill vita hvað ykkur finnst.
Hvað um Kezman? Var hann ekki markahæstur í hollensku deildinni síðasta vetur?

Og hvað meinar þú með þessu? Veistu hver hefur líka verið markahæstur í hollensku deildinni?

Ég veit að þú ert ekki dofinn, elsku Einar minn, en stundum þarftu að leggja aðeins harðar að þér. Með þessu á ég einfaldlega við að þrátt fyrir að leikmaður slái gegn í einni deild þarf ekkert að vera að hann muni vera frábær í annarri. Það er engin trygging að þrátt fyrir að við keyptum Dirk Kuyt að hann mundi skila frá sér 20 mörk á tímabili.

Já, Raúl og Figo hafa átt lélegt tímabil. Það hafa líka Fernando Morientes, Ruud Van Nilsteroy og fleiri átt. Þýðir það allt í einu að menn séu orðnir lélegir. Hvurlags bull er þetta eiginlega?

Ég segi það nú, hvurslags bull er þetta? Hvar skrifaði ég að þrátt fyrir að menn ættu lélegt tímabil að þeir yrðu sjálkrafa lélegir? Þú kannski útvegar mér tengil á það comment?

Einar át Aron

:-)

Aron sendi inn - 09.06.05 23:43 - (
Ummæli #17)

Jæja, þetta er komið gott í bili. Er það ekki?

Ég tek undir með Aron í því að auðvitað getum við ekki verið handviss um að Kuyt skori jafn mikið fyrir Liverpool og hann hefur gert fyrir Feyenoord, þar sem maður veit aldrei hvernig útlendingur kemur til með að aðlagast nýrri deild í nýju landi.

Hins vegar verða menn að hafa það í huga, að Peter Crouch gat ekki nokkurn skapaðan hlut í tvö heil ár með Aston Villa! Hann var lélegasti leikmaður deildarinnar - ekki einn sá lélegasti, heldur SÁ LÉLEGASTI! David O’Leary hlýtur að hafa dottið í það þegar hann loksins losnaði við Crouchy fyrir ári síðan.

Og svo á hann eitt gott tímabil fyrir Southampton, og varla það. Hann átti í raun aðeins hálft gott tímabil, þar sem hann var ekki það mikið í liðinu fyrr en James Beattie fór til Everton í janúar.

Þannig að ég spyr, Aron, af hverju er það endilega líklegra að Crouchy - sem átti 2-3 ööömurleg tímabil og svo hálft gott tímabil í Englandi - muni reynast betur með Liverpool heldur en Kuyt - sem hefur skorað 25+ mörk tvö tímabil í röð með Feyenoord í Hollandi og er farinn að raða inn mörkum með hollenska landsliðinu?

Það er einfaldlega það sem ég er að segja. Við getum ekki verið viss hvernig menn bregðast við nýju umhverfi, hvort sem það er Peter Crouch frá suðurströnd Englands eða Dirk Kuyt frá Feyenoord (þessi tvö svæði eru, í raun, svipað langt í burtu frá Liverpool-borg) ???

Er þá ekki betra að meta menn bara eftir þeim gæðum sem þeir hafa sýnt, og versla þann sem manni þykir betri? Og jú, þótt Crouchy hafi skorað 16-18 mörk fyrir Southampton í vetur og átt góða 6 mánuði … þá er það lítið í samanburði við það sem Kuyt hefur afrekað meira og minna allan sinn feril.

Kuyt er eins og Cissé - hefur skorað 10+ mörk frá því hann byrjaði fyrst að spila sem unglingur. Crouch hefur aldrei skorað meira en 5 mörk á tímabili, þangað til í vetur. Hvorn þeirra telur þú líklegri til að vera minnst sem leikmanns sem átti bara eitt gott tímabil?

Kristján Atli sendi inn - 10.06.05 08:28 - (Ummæli #19)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Landslið · Leikmannakaup og sölur · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Upphitun · Vangaveltur · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·L'pool 2 - Kaunas 0
·Kaunas 1 - L'pool 3
·Liverpool 4 - Olympiakos 3
·T.N.S. - Liverpool 0 - 3
·Liverpool 3 - T.N.S. 0

Síðustu Ummæli

Einar Örn: >neh, efast um að Einar nenni að sóa tím ...[Skoða]
Aron:

Þannig að ég spyr, Aron, af
...[Skoða]
Hannes: Aron...ertu ekki aðeins að gleyma Roy Ma ...[Skoða]
SteiniBaros: Aron með comeback, þetta er að verða spe ...[Skoða]
Daði: Aron talar um staðreyndarvillur, skoðani ...[Skoða]
Kristján Atli: Jæja, þetta er komið gott í bili. Er það ...[Skoða]
Snorri: Hey ! Pabbi minn er sterkari en pabbi yk ...[Skoða]
Aron:
Hvað er pointið hjá þér, Aro
...[Skoða]
SteiniBaros: Einar át Aron, hvernig smakkaðist hann E ...[Skoða]
K!ddi: Ég sá Finnland-Holland í gær og Kuyt vir ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Hvað þarf Morientes til að sýna sitt besta?
· Rafa enn brjálaður vegna Gonzales
· Þriðji penninn
· Dudek og Medjani
· Meiðsli, meiðsli, meiðsli (uppfært: meiðsli)
· Newcastle í viðræðum við Real (uppfært: Og Man U líka!)

Tenglar

Einar :: Vefleiðari

JupiterFrost

NewsNow Liverpool

ESPN

Cubs

BBC

Liverpool (official)

Liverpool.is

This Is Anfield




Við notum
Movable Type 3.121

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License