08. júní, 2005
Ja hérna. Stjórnarformaður Southampton hefur staðfest við BBC að þeir hafi hafnað 5 milljón punda boði í Peter Crouch. Allir og ömmur þeirra telja að boðið sé frá Liverpool, en það er þó ekki sagt beint í fréttinni, þrátt fyrir að einnig sé haft eftir Harry Redknapp í fréttinni:
t would be better for Peter to stay at Southampton and play rather than go somewhere like Liverpool and be on the bench.”
Ok.
Semsagt þá er það staðfest að Rafa vill fá Crouch til Liverpool og hann var tilbúinn að borga 5 milljónir punda. Sagt er að Southampton vilji fá 7 milljónir fyrir Crouch, sem mér þykir ískyggilega nálægt upphæð, sem við seldum einn enskan framherja til Real Madrid á og keyptum sömuleiðis einn spænskan framherja frá sama lið á.
Þá er spurningin, metur Rafa Crouch virkilega svo mikils að hann sé tilbúinn að borga sama pening og fyrir Fernando Morientes? Ég trúi því varla, en ef Rafa vill sjá hann fyrir 5 milljónir þá eru nú frekar miklar líkur á að hann sjái eitthvað verulega mikið í Crouch, sem geri það að verkum að hann muni bæta í tilboðið. Hver segir svo að enskir leikmenn séu dýrir?