beach
« Didi vill vera áfram | Aðalsíða | Figo leystur undan samningi »

31. maí, 2005
Leikmannamarkaðurinn opnar á ný!

Jæja, þá er komið að því. Á morgun er hinn eini, sanni, fyrsti júní og það þýðir aðeins eitt: liðin í ensku Úrvalsdeildinni mega kaupa og selja leikmenn á nýjan leik!

En það eru tvær hliðar á þessum annars dásamlega degi, þegar liðið okkar má löglega kaupa leikmenn á ný og styrkja leikmannahópinn. Neikvæða hliðin er sú að fyrir hvern einn leikmann sem liðið kaupir á endanum eru svona tíu aðrir orðaðir við félagið. Sem gerir það að verkum að maður er jafnan frekar ringlaður hvað varðar framtíð Liverpool FC á sumrin. Það er engin furða að Bretarnir kalla sumarið ‘silly season’ … :-)

Ég hef tekið saman þau nöfn sem hafa þegar verið orðuð við okkur, hér koma þau og mitt álit á því hversu líklegt er að verði af þessum kaupum. Hafið í huga að þetta er aðeins mitt álit, og því allt eins líklegt að ég hafi rangt fyrir mér og rétt. En hér kemur listinn, hann skiptist í mark, vörn, miðju og sókn:

MARK: José Reina (Villareal)
Þarf í rauninni ekkert að tjá mig um þetta. Fjölmiðlar töldu hann flestir vera besta markvörð spænsku La Liga á nýafstöðnu tímabili, hann hefur alltaf verið pottþéttur þegar ég sé hann spila, og ég verð hissa ef það er ekki búið að tilkynna um kaupin á honum áður en næsta helgi rennur í hlað. Þetta er pottþétt mál, því miður Dudek!

VÖRN:

GABRIEL MILITO (Real Zaragoza)
Það er talað um kaupverð á bilinu 6-8m punda, sem er raunhæft miðað við að hann er 24ra ára miðvörður sem er fastamaður í argentínska landsliðinu. Ég væri ekkert á móti þessu, hef mikið álit á Milito, og finnst þetta í raun frekar líklegt þar sem hann er akkúrrat sú týpa sem ég sé Rafa fyrir mér vilja kaupa.

MATTHEW UPSON (Birmingham)
Ég hefði ekkert á móti þessu heldur, ungur og metnaðarfullur enskur miðvörður sem hefur reynslu í Úrvalsdeildinni og hefur spilað gegn öllum þessum liðum sem við mætum á hverju ári. Finnst þetta samt ólíklegt, ef ekki nema bara vegna þess að mér finnst ólíklegt að Birmingham láti hann fara án mikillar barátu.

JOHN O’SHEA (Manchester United)
Sko, þegar ég heyrði þennan orðróm fyrst hló ég. En svo fattaði ég eitt: John O’Shea er uppalinn Púllari. Ef þið væruð uppaldir Púllarar og fengjuð tækifæri til að spila atvinnubolta fyrir manchester united - mynduð þið segja nei? Ekki ég heldur. Hins vegar sé ég því miður ekki hvað hann getur boðið okkur sem Djimi Traoré getur ekki gert betur, og yrði frekar hissa ef Rafa færi að eyða einhverjum pening í hann. Við þetta bætist sú staðreynd að enginn leikmaður hefur farið frá United til Liverpool í nærri því hálfa öld, og því finnst mér þetta vera mjööög ólíklegt.

PATRICE EVRA
Já takk! Ungur, franskur landsliðsmaður sem hefur ávallt vakið athygli mína í vinstri bakverðinum hjá Mónakó! Mér myndi finnast þetta pottþétt kaup hjá Rafa og vona að af þessu verði - og það er nú bara déskoti líklegt ef mið er tekið af því að Mónakó eru víst að eltast við Bruno Cheyrou, sem við eigum. Gætum látið hann og pening í skiptum fyrir Evra? Plís?

CÉSAR (Deportivo La Coruna)
Var orðaður við okkur í janúar-glugganum en lítið heyrst síðan, svo ég hlýt að áætla að Rafa hafi snúið sér annað. Er heldur ekkert spenntur fyrir honum eftir að hafa horft á Baros og Biscan fífla hann í útileiknum í haust - ég væri þá öllu spenntari fyrir næsta nafni…

SÉRGIO RAMOS (Sevilla)
Nítján ára, örfættur miðvörður sem er jafn hár og Sami Hyypiä, jafn fljótur og William Gallas og frábær skotmaður? JÁ TAKK!!! En … þangað til annað kemur í ljós verður þetta að teljast draumur í dós og lítið annað, einfaldlega af því að hann er svo efnilegur að við hljótum að fá samkeppni frá stóru liðunum á Spáni. En ég held í vonina…

MIÐJAN:

LUIS FIGO (Real Madríd)
Hann er 33ja ára gamall, situr á bekknum hjá Real og langar til að sanna sig í nýju landi? Eða … hann er 33ja ára gamall og langar til að fá vel borgað í hinsta sinn. Ég veit það ekki, ef hann er í einhverjum Rivaldo-pælingum þá vill ég alls ekki sjá hann. En ef hann er hungraður í að sanna sig og láta að sér kveða í nýju landi, þó ekki sé nema í tvö tímabil eða svo, þá er ég mikið meira en til. Muniði eftir Gary McAllister? Hann átti að vera útbrunninn, sjáið hvað gerðist þar! Figo gæti orðið stórkostlegur liðsauki fyrir okkur, eins lengi og hann kemur með rétta hugarfarið. Ég mun fylgjast náið með fréttum af þessu…

MIÐJUMENN HJÁ VALENCIA
Pablo Aimar, Vicénte, Ruben Baraja, Mohammed Sissoko. Alls fjórir miðjumenn Valencia sem ég hef heyrt orðaða aftur og aftur við Liverpool. Í ljósi þess að Valencia skitu á sig í deildinni í vetur og þurfa að fara í Intertoto-keppnina til að komast í Evrópu í haust, þá er ég nokkuð viss um að Rafa mun í það minnsta reyna að fá leikmenn frá sínu gamla félagi. Spurningin er bara: hvaða leikmann??? Væri til í að sjá þá alla, en myndi alveg sætta mig við Vicénte. :-)

LUCIANO GALLETTI (Real Zaragoza)
Fyrirliði Real Zaragoza, 25 ára gamall fjölhæfur sóknar-miðjumaður sem getur spilað á báðum köntum og í holunni. Mmmmm, Luis García einhver? Ef þessi gæji gæti skilað einhverju á borð við það sem hinn fjölhæfi García hefur gert, þá gætu það verið stórkostleg kaup. Þetta er líka reyndur gæji, spilar á báðum köntunum fyrir Zaragoza og frammi fyrir Argentínu. Já takk!

SHAUN WRIGHT-PHILLIPS (Manchester City)
Fréttir síðastliðinnar helgar segja að við höfum þegar boðið 15 milljónir punda í hann, og vona ég að það sé satt, en satt best að segja þá held ég að það sé ólíklegt að hann komi til okkar, hvort sem að við bjóðum nóg í hann eða ekki. Af hverju? Út af því að fósturpabbi hans er Ian Wright, sem vill örugglega sjá strákinn spila í Arsenal-treyju, og einnig af því að José Mourinho hjá Chelsea ku hafa mikinn áhuga á honum. Og með þá samkeppni til hliðsjónar þá held ég að það sé best að maður æsi sig varlega þangað til annað kemur í ljós. Yrði samt snilld að sjá hann í rauðu treyjunni í ágúst!

DAVID PRUTTON (Southampton)
Öööö, þeir féllu og hann er 22ja ára miðjumaður sem komst ekki í liðið hjá þeim nema í nokkrum leikjum í vetur. Sem varaskeifa fyrir hina, uppá breiddina? Kannski. Sem lykilmaður í framtíðarsýn Rafa? Getoutoftown! Mjööög ólíklegt.

TOM SOARES & WAYNE ROUTLEDGE (Crystal Palace)
Palace féllu í vor og því er viðbúið að einhver reyni að næla í þessa tvo ungu, sókndjörfu, 19-ára-gömlu miðjumenn þeirra. Og þeir eru báðir hörku efnilegir, það er ekki spurning. Ef Rafa ákveður að ná í annan þeirra eða báða, þá sé ég ekkert því til fyrirstöðu að þeir komi þar sem Palace geta varla haldið þeim í deildinni fyrir neðan. Þetta veltur allt á Rafa, en mér litist ekkert illa á annan eða báða þeirra.

OWEN HARGREAVES (Bayern München)
Hann talaði um áhuga Liverpool fyrir ári síðan, og tveimur árum síðan, og enn og aftur í síðustu viku. Mér finnst alltaf jafn líklegt að hann komi, en það virðist alltaf koma á daginn að áhuginn sé eingöngu hans megin. Nú í gær sagði Rumenigge, aðalkálfurinn hjá Bayern München, að Hargreaves yrði refsað fyrir að ‘daðra við’ Liverpool, og því held ég að þetta sé ólíklegt. Væri samt til í að fá hann.

KEVIN NOLAN (Bolton Wanderers)
Það hefur verið talað um að hann komi til okkar í skiptum fyrir El-Hadji Diouf, og í sannleika sagt er það eina leiðin til að Sam Allardyce fengist til að láta hann af hendi, en mér finnst það samt ólíklegt. Held að hann sé bara ekki sú týpa sem Rafa er að leita að á miðjunni, þótt góður sé.

JOAQUÍN (Real Betís)
Það er gott að láta sig dreyma… mig langar líka í Adriano, Ronaldinho og Andriy Schevchenko! Ef Rafa léti af þessu verða þá væri það vottur um stórkostlegt aðdráttarafl hans öðru fremur, en þetta er með því ólíklegra sem ég hef heyrt. Því miður, hann er #1 á óskalistanum mínum en það eru ,9% líkur á að við fáum hann!

GARY O’NEIL (Portsmouth)
Ungur, varnarsinnaður baráttuseggur á miðjuna. Af hverju ekki? Vildi óska þess að ég myndi eitthvað eftir honum, sem segir kannski margt um getu hans miðað við að ég hef horft á þó nokkra leiki með Portsmouth…

MARK GONZALEZ (Albacete)
Albacete féllu úr La Liga í vor og því var víst nánast búið að ganga frá kaupum á þessum gaur, sem ég hef aldrei séð spila og hef því enga skoðun á, þegar hann meiddist illa í maíbyrjun. Hann verður víst frá í rúmlega hálft ár og því verður ekkert af kaupunum á honum. Samt athyglisvert að gefa honum gaum, þar sem sögurnar segja að Rafa hafi verið búinn að klára þessi kaup og aðeins átt eftir að skrifa undir þegar kauði meiddist svona illa.

MODESTO M’BAMI (Paris St Germain)
Ég hef aðeins séð hann leika einu sinni, í haust þegar Chelsea rústuðu PSG 0-3 í París í Meistaradeildinni. Hann var hræðilegur og miðað við þann leik þá eigum við að forðast hann með öllum ráðum. Ég verð stressaður þegar leikmenn sem Lampard hefur rassskellt eru orðaðir við okkur, sem ætlum okkur að rassskella Lampard á næsta tímabili…

GUTI (Real Madríd)
Það er frekar langsóttur orðrómur í gangi um að Guti muni fara frá Real Madríd í sumar, jafnvel á frjálsri sölu, þar sem hann á ekki fast sæti í byrjunarliðinu. Þessi gaur er náttúrulega mjög góður leikmaður, en er hann í heimsklassa? Gæti hann slegið Hamann, Alonso eða Gerrard út úr liðinu hjá okkur? Ég held ekki, og því held ég að hann komi aldrei til okkar, þar sem hann vill fá að spila reglulega. Væri samt ekkert á móti því að fá hann, upp á breiddina… :-)

MAREK MINTAL (Nürnberg)
Var þrálátlega orðaður við okkur framan af vorinu, endaði sem þriðji markahæsti leikmaður Evrópu í vetur (og hann er miðjumaður) og spilar fyrir lið sem rétt slapp við fall í Bundesligunni í vetur. Ef við viljum hann, þá er hann okkar. En eitthvað hefur hægst á slúðrinu undanfarið, eins og Rafa hafi snúið sér annað þegar ljóst var að hann átti pening til að kaupa betri miðjumann en Mintal. Ég veit það ekki, þetta gæti alveg orðið að veruleika en maður bíður frekari frétta. Hef aðeins einu sinni séð hann spila og hann var góður þá, skoraði tvö mörk og minnti mig nokkuð á Frederik Ljungberg, eða jafnvel Paul Scholes.

SÓKNIN:

DIRK KUYT (Feyenoord)
Já takk! Þessi gaur er frábær, eða hefur allavega verið það í þau skipti sem ég hef séð hann. Hann er líkamlega sterkur, grimmur og áræðinn og mjög góður skotmaður, með báðum fótum og höfðinu. Hann var markakóngur hollensku deildarinnar í ár og næst markahæstur í fyrra á eftir Kezman, og ég held að hann myndi fitta inn í liðið okkar. Þá væri Morientes stóri, klóki refurinn í boxinu og skallasérfræðingurinn, Djib væri sprengjan í holunni, Flo-Po væri léttleikandi senterinn og Kuyt væri grimmi og gráðugi potarinn. Það eina sem gæti staðið í vegi fyrir þessum kaupum er sú staðreynd að Feyenoord eru víst að heimta himinhátt verð fyrir hann, en við eigum svo sem alveg pening fyrir honum eftir velgengnina í Evrópu. :-)

ANDY JOHNSON (Crystal Palace)
Hann var frábær í vetur en samt er eitthvað aftast í höfðinu á mér sem minnir mig á Marcus Stewart hjá Ipswich og Kevin Phillips hjá Southampton. Bara af því að maður á gott tímabil og skorar helling fyrir lakara lið sem treystir eingöngu á mann, þá er ekkert sem segir að sami maður geti blómstrað í liði þar sem hann er bara einn af mörgum hetjum, og þar sem kröfurnar eru miklu, miklu meiri. Ég er í raun hvorki jákvæður né neikvæður í garð AJ - ef hann kemur þá myndi ég bara mynda mér álit byggt á því hvernig hann spilar fyrir Liverpool í framtíðinni. Telst líkleg kaup eins og staðan er í dag.

PETER CROUCH (Southampton)
Ef Rafael Benítez kaupir Peter Crouch heimta ég að hann verði rekinn. Já, ég þori að segja þessi orð! Ég vill ekki sjá hann hjá Liverpool… leiðinlegasti, asnalegasti og gagnslausasti leikmaður Englands í dag! Oj bara!

FERNANDO TORRES (Atlético Madrid)
Sjá Joaquín að ofan. Maður getur aðeins látið sig dreyma, en þetta mun aldrei gerast, sama hversu mikið hann er orðaður við okkur.


Og þar með er það komið. Rétt um þrjátíu leikmenn sem hafa verið orðaðir við Liverpool, og enn er sólarhringur í að leikmannamarkaðurinn opni. Ef við leikum okkur að getgátum þá gæti sumarið hæglega litið einhvern veginn svona út:

ÚT: Jerzy Dudek, Gregory Vignal, Bruno Cheyrou, Salif Diao, El-Hadji Diouf, Igor Biscan, Vladimir Smicer, Milan Baros.

INN: José Reina, Gabriel Milito, Patrice Evra, Luciano Galletti, Luis Figo, Gary O’Neil, Andy Johnson.

Átta leikmenn út, sjö leikmenn inn? Hver veit … rússíbanaferðin hefst á morgun, og ég veit að þetta verður svakalegt sumar! :-)

In Rafa we trust…

.: Kristján Atli uppfærði kl. 00:27 | 2178 Orð | Flokkur: Slúður
Ummæli (18)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Landslið · Leikmannakaup og sölur · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Upphitun · Vangaveltur · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·L'pool 2 - Kaunas 0
·Kaunas 1 - L'pool 3
·Liverpool 4 - Olympiakos 3
·T.N.S. - Liverpool 0 - 3
·Liverpool 3 - T.N.S. 0

Síðustu Ummæli

Aggi: Joaquín á miðjuna? Hann er kantmaður lík ...[Skoða]
Kristján Atli: Já Svavar, það er allt útlit fyrir að Ba ...[Skoða]
Svavar: Flottur pistill as useal. Reyndar mjög ...[Skoða]
Óli: Frábær úttekt hjá þér :-) Það er e ...[Skoða]
Eiki Fr: SWP er kröftugur hægri kantur sem okkur ...[Skoða]
Aggi: svo ekki sé minnst á Smicer og Dudek. ...[Skoða]
Kristján Atli: Jæja Einar? Er veðmál á leiðinni.....? ...[Skoða]
Einar Örn: Frábær úttekt, Kristján. Ég er reyn ...[Skoða]
Aron:

Jájá, þú ert ágætur. Fyrrum
...[Skoða]
Zlatan: Ég er eiginlega sammála þér með einn - t ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Hvað þarf Morientes til að sýna sitt besta?
· Rafa enn brjálaður vegna Gonzales
· Þriðji penninn
· Dudek og Medjani
· Meiðsli, meiðsli, meiðsli (uppfært: meiðsli)
· Newcastle í viðræðum við Real (uppfært: Og Man U líka!)

Tenglar

Einar :: Vefleiðari

JupiterFrost

NewsNow Liverpool

ESPN

Cubs

BBC

Liverpool (official)

Liverpool.is

This Is Anfield




Við notum
Movable Type 3.121

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License