Nei, þetta kemur ofbeldi ekkert við. Ég verð bara sennilega of afprýðissamur til að geta hlustað á sögurnar hans.
Og ég læt þig um að dæma um fegurð hans ... finnst hann persónulega frekar ljótur, greyið.
Nei en að öllu gríni slepptu, þá er ég ástfanginn akkúrrat núna. Það er eina lýsingin sem ég held að geti lýst því nægilega mikið hvað ég er ofboðslega mikill Liverpool-aðdáandi í kvöld. Ég elska alla þessa gaura, þeir eru hetjurnar mínar, og ég ætla ekki aðeins að mjólka hverja einustu sögu úr Einari þegar hann kemur heim heldur mun ég panta mér miða á fyrstu ferð sem býst á leik með Evrópumeisturunum í haust!
Og ef/ÞEGAR við verðum komnir í ca. 8-liða úrslitin í Meistaradeildinni næsta vor, þá mun ég vera forsjár og panta mér strax miða á úrslitaleikinn næsta vor. Fer þá bara út og horfi á einhver tvö önnur lið í úrslitunum ef Liverpool kemst ekki alla leið að ári, frekar en að þurfa að missa aftur af þeim í úrslitum.
En já, held ég fari að sofa núna - raddlaus, kraftlaus, nánast sjónlaus og ennþá nokkuð orðlaus. Er til fallegri íþrótt í heiminum en knattspyrna? Nei!
Góða nótt góðir hálsar, kem með frekari pælingar í fyrramálið þegar ég er búinn að sofa úr mér alsæluna og melta þennan sigur aðeins.
Og Jóhanna, farðu að sofa! Ekki dreyma neitt sem mig myndi ekki dreyma í nótt...