19. maí, 2005
Luis Garcia og Xabi Alonso eru báðir í spænska landsliðshópnum fyrir leiki gegn Litháen og Bosníu.
Jose Reina, sem menn telja að sé nær öruggt að komi til okkar í sumar, er líka í hópnum. Hann er að öllum líkindum markvörður númer 2, á eftir Iker Casillas, en á undan Canizares. Gott mál.
Talandi um Spán, þá finnst varaforseta Milan vera ástæða til að gefa út yfirlýsingu um að hann sé ekki stressaður yfir því að dómarinn í leiknum sé Spánverji. Einhverjir eiga víst að hafa haft af því áhyggjur að Spánverjinn yrði of góður við landa sína hjá Liverpool.
Bleh bleh ble ble ble…