beach
« Framherjar sem skora ekki mörk | Aðalsíða | Ýmislegt »

09. maí, 2005
Um lýsinguna á Skjá Einum

_41123083_viera-ap300.jpg Einhverjir munu merkja þennan pistil sem svekkelsi og fólk má vel gera það. Ef að Liverpool hefðu unnið í gær hefði ég aldrei nokkurn tímann látið þetta fara jafn mikið í taugarnar á mér. Eeeeeen, hér kemur það: Ég hef aldrei heyrt aðra eins lýsingu og í leiknum á Skjá Einum í gær.

Í stað þess að kalla þetta lýsingu á leik Arsenal og Liverpool, þá hefði verið nær að skýra þetta: “Spekingar” spjalla um það hversu hræðilega lélegt Liverpool liðið er. Í stað þess að lýsa leiknum í gær ákváðu Kristinn Kjærnested og Rikki Daða að leyfa okkur frekar að heyra non-stop 90 mínútur af gagnrýni á Liverpool. Ekkert gott um Liverpool, ekkert gott um Arsenal, einungis gagnrýni á Liverpool.

Lýsingin byrjaði á hreint ótrúlegum fimm mínútum, þar sem var stanslaust gert lítið úr árangri Liverpool í enska boltanum og Meistaradeildinni. Útúr Rikka Daða flæddu einhverjar fáránlegar klisjur um það að Liverpool hefði einhvern veginn komist í gegnum Meistaradeildina á varnarleik! Ég leyfi mér að efast um að þessir menn hafi fylgst með Liverpool í Meistaradeildinni. Ef Liverpool hefur spilað varnarbolta, þá hefur það aðallega verið í seinni leiknum gegn Chelsea. 99% allra knattspyrnuliða hefðu hins vegar spilað varnarleik í þeirri stöðu. Þeir eru sennilega búnir að gleyma hvernig Liverpool sundurspilaði Juventus, Bayer Leverkusen, Olympiakos og fleiri. Sennilega hefur það gleymst vegna þess að þeir eru búnir að ákveða að varnarleiksklisjan sé betri.

Best var samt þegar þeir héldu fram að Liverpool væru að spila með sömu taktík og þegar við unnum þrennuna. Þvílíka stórkostlega þekkingu á fótbolta, sem það komment sýnir. Gaurinn, sem var með Rikka kom svo með þessa snilld: “Þegar þeim (Liverpool) hefur gengið vel í vetur, þá hefur það verið byggt á varnarleik.” Já, frábært! Það sjá það allir, sem vilja sjá, að taktíkin sem Rafa Benitez beitir er svo gjörólík þeirri taktík, sem Houllier beitti. Liverpool er að spila miklu, miklu skemmtilegri bolta og mun meiri sóknarbolta en liðið sýndi 2001.

Þulirnir héldu svo áfram eftir um 10 mínútur af leiknum og sögðu að það væri greinilega takmarkið hjá Liverpool að verjast. Það var eftir að liðin höfðu verið hárjöfn í leiknum (Arsenal fór að sækja meira eftir það, en varla geta þeir séð framtíðina). Rikki Daða kemur svo með komment um að það sé “erfitt fyrir Liverpool menn að mæta til leiks, leik eftir leik eftir leik, einungis til að verjast”. Hvurslags vitleysa er þetta eiginlega? Þegar lið hefur forystu í seinni leik Meistaradeildarinnar og þegar lið spila á Highbury, þá er eðlilegt að menn ætli að spila varfærnislega. Það er hins vegar þvílík óþolandi fásinna að ætla að stimpla lið sem varnarlið útfrá því. Þetta Liverpool lið er ansi langt frá því að vera varnasinnað.

Þulirnir nýttu svo hverja einustu slæma sendingu til að koma með einhverjar neikvæðar athugasemdir um einstaka leikmenn. Milan Baros gat ekki tekið almennilega á móti erfiðri og hárri sendingu og þá kemur 2 mínútna pistill um hversu slappur framherji Baros sé. Garcia gaf eina feilsendingu og þá kom pistill frá Rikka Daða um að hann hafi alltaf efast um að Garcia myndi meika það í enska boltanum og að hann væri alls ekki að vinna varnarvinnuna sína og bla bla bla. Riise missti af einum bolta og þá kemur Rikki með það að Riise vanti hraða til að vera alvöru kantmaður. Þetta var fullkomlega óþolandi.

Til að toppa þetta allt þá þegar að Gerrard kom með góða sendingum, þá segir annar þeirra: ”Gerrard hefur nú verið orðaður við Chelsea”. NO FOKKING SJITT!!! Eru menn ekki að grínast í okkur? Má Gerrard ekki spila einn leik án þess að menn byrji að blaðra um þessar slúðursögur? Hverju bætir þetta við lýsinguna? Eru líkur á því að einhver, sem horfi á segji við sig: “Er það virkilega? Er Gerrard orðaður við Chelsea??? Ég trúi þessu ekki”. Nei, ég efast stórlega um það.

Ég efast líka um að nokkur Arsenal aðdáandi hafi haft gaman að þessari lýsingu. Það var gjammað stanslaust um hversu lélegir Liverpool voru, en aldrei tekið fram að Arsenal var að spila fínasta fótbolta.

En þetta hélt áfram nánast til enda. Í lokin þegar tölfræðin kom á skjáinn sem sýndi að Liverpool hefði verið meira með boltann kom þetta komment: ”Ja, það er ekki oft, sem við sjáum þetta: Liverpool var aðeins meira með boltann”. Á hvaða deild hafa þessir menn verið að horfa? Halda þeir því fram að Liverpool sé oftast minna með boltann? Þvílíkt endemis bull! Ef það er eitthvað, sem hefur einkennt þetta Liverpool lið þá er það að þeir hafa verið meira með boltann, en ekki náð að klára leikinn þrátt fyrir það.

Oft heyrir maður fólk segja að “lýsingin hafi verið svo slæm að fólk hafi sett á mute”. Aldrei hef ég þó gripið til þessa örþrifaráðs, þangað til í gær. Ég fékk einfaldlega nóg eftir svona 35 mínútur og slökkti á hljóðinu til að fá smá hvíld frá þessu stanslausa suði í lýsendunum (uppfært. ég kveikti reyndar aftur á hljóðinu eftir 2-3 mínútur, þar sem ég saknaði umhverfishljóðanna).

Ef þetta á að vera framhaldið á Skjá Einum, þá mun ég íhuga það vel og vandlega áður en ég kaupi mér áskrift á næsta tímabili.

.: Einar Örn Einarsson uppfærði kl. 18:04 | 863 Orð | Flokkur: Almennt
Ummæli (21)

Það eru þá fleiri en ég sem finnst Rikki Daða vera fífl :-) . Þetta er allra lélegasti lýsir sem ég hef heyrt á ævinni. Fyrir utan allt sem þú ræðir hér um í pistlinum þínum um fákunnáttu og þess háttar, þá finnst mér nauðsynlegt að minnast á annað og varpa því fram eftirfarandi spurningu.

Spurning: Hvert er hlutverk knattspyrnulýsanda? Svar: Það er að lýsa bévítans leiknum!!!!

Ég tók ekki eftir því að þeir félagar hafi lýst leiknum sem slíkum neitt í gær. Eingöngu endalaust blaður og aðallega af hálfu Rikka Daða.

Annað varðandi Rikka Daða. Hann hefur sennilega lært að tala hjá Loga Ólafssyni því annar eins stamandi (öööö, eeee, öööö) á ekki að vera á skjánum.

Ég er kominn á þá skoðun að ávallt eigi að hafa einn mann í útsendingu knattspyrnuleikja, því að þá hverfur spjallið alveg og menn fara að lýsa leiknum. Það sást vel hversu vel það var heppnað þegar í leik Liverpool og Chelsea á SÝN í síðustu viku ( :-) :-) :-) ). Þar lýsti Arnar Björnsson leiknum alveg einn og hefur aldrei verið betri. Hann getur oft á tíðum verið mjög pirrandi (sérstaklega sökum þekkingarleysis) þegar hann hefur einhvern 'speking' sér við hlið. Þetta kvöld lýsti hann leiknum og fórst það mjög vel úr hendi.

Legg því til að lokum: "Hættið að nota þessa 'spekinga' til að aðstoða (stundum) fáfróða íþróttafréttamenn við að lýsa og skýra út hvernig knattspyrna virkar. Áhorfandinn er yfirleytt vel að sér í þessum fræðum fyrir og þarf ekki langar ræður um hitt og þetta til að njóta leiksins.

Jónas H sendi inn - 09.05.05 18:32 - (
Ummæli #1)

Ég tek heilshugar undir þetta hjá þér, Einar. Mig langaði helst til að úthúða þessum vitleysingum í leikskýrslu minni í gær, en þar sem ég vissi að þú ætlaðir að skrifa þennan pistil ákvað ég að halda mig við umfjöllun um leikinn.

Þetta var einfaldlega hræðilegt á að hlusta. Ég er fyrir lifandis löngu búinn að fá nóg af þulunum á S1 en í gær fékk ég endanlega nóg. Snorri Sturlu á það til að vera fínn, er í það minnsta hlutlaus, en hinir eins og þeir leggja sig eru gjörsamlega óþolandi. Ekki bara gegn Liverpool heldur finnst mér líka bera á því gegn manchester united og svo "minni liðunum" ... eins og menn telji að það sé bara í lagi að halda með einu liði í útsendingu, af því að það leikur Íslendingur með því.

Rikki Daða og Gummi Ben hata Liverpool, það hefur ekkert farið á milli mála í vetur, og eftir gærdaginn þá finnst mér hreinasta furða að það skuli enginn yfirmaður yfir þessu klúðri fatta þetta, að það skuli enginn segja "á maðurinn virkilega að vera svona hlutdrægur í beinni lýsingu?"

Það er eins og þessir gæjar hafi enga hugmynd um það hvað knattspyrnulýsingar snúast, né önnur fréttamennska hvað það varðar. Auðvitað mega þeir benda á það sem liðin gera illa, en það var ekki minnst á það sem Arsenal var að gera illa í gær og þess í stað rætt endalaust um dugleysi leikmanna Liverpool - líka þegar við vorum að yfirspila Arsenal snemma í seinni hálfleiknum, þá heyrði maður ekkert annað en "Gerrard til Chelsea, Traoré er ekki nógu góður, Meistaradeildin hefur misst sjarma sinn... bla bla bla!"

Við sem vorum að enda við að hrósa S1 í pistli í síðustu viku, fyrir að hafa annast enska boltann ágætlega, og svo kemur eitthvað svona helvítis rugl sem minnir mann á það af hverju maður var svona reiður við þá til að byrja með!

Ótrúlegt. Ég var alvarlega að spá í það að fá mér gervihnattarpakkann fyrir helgina en eftir gærdaginn er það ákveðið, ég hlusta frekar á Everton-aðdáandann Andy Gray heldur en þessa bjána...

Kristján Atli sendi inn - 09.05.05 19:06 - (Ummæli #2)

Ég verð nú bara að segja að mér er nú nokk sama hvort Arnar Björnsson, Sirrý eða Snorri Már sé að lýsa leik. Ég er að horfa á knattspyrnuna en ekki til að hlusta á þulina.

Annars er Guðmundur Benediktsson bestur að lýsa á Skjá Einum.

Annars finnst mér nú þessi færsla aðeins bera vott af biturleika um að liðið sé ekki í meistaradeildinni á næsta ári. Þeir tala og tala um allan andskotann til að reyna að forðast einhverjar dauðar sekúndur, og allt sem að kemur á verstu slúðursíðum er sagt í lýsingunni.

Ein spurning samt líka til Einars Arnar:

Í stað þess að lýsa leiknum í gær ákváðu Kristinn Kjærnested og Rikki Daða að leyfa okkur frekar að heyra non-stop 90 mínútur af gagnrýni á Liverpool.
Ég fékk einfaldlega nóg eftir svona 35 mínútur og slökkti á hljóðinu til að fá smá hvíld frá þessu stanslausa suði í lýsendunum.

Hvernig geturu vitað að þeir hafi rakkað niður Liverpool í 90 mínútur non-stop þegar þú slökktir á hljóðinu eftir 35 mínútur? Nei ég bara spyr.

Annars er þetta ekki svo fjarri lagi hjá honum Rikka Daða.

Garcia er vissulega mjög fínn, en gæti alveg skilað meiri varnarvinnu. Baros er alls ekki nógu góður framherji. Riise er svo kannski ekki hægur, en hefur ekki þennan hraða sem að Robben, Duff, Wright-Phillips, Joaquin og C. Ronaldo hafa.

Og áður en menn ætla að fara að verja félaga Baros, þá langar mig að benda á að hann hefur ekki einu sinni skorað 10 mörk í deildinni í ár.... ekki einu sinni náð tveggja stafa tölu þar. Robbie Fowler er m.a.s. búinn að skora meira í deildinni þrátt fyrir að vera orðinn þrítugur. Menn hafa einnig talað um það hvað Nistelrooy hafi verið hrææææðilegur í ár, þrátt fyrir sín meiðsli, en hann hefur nú samt skorað meira en Baros.

Síðan eru menn að segja að Baros sé heimsklassaframherji... langt frá því. Hann verður eflaust réttilega 4.framherji liðsins á næsta ári ef að Liverpool kaupir sér einhvern framherja í sumar.

Arsenal var meira með boltann í leiknum (50.3% á móti 49,7%)

Pétur sendi inn - 09.05.05 19:10 - (
Ummæli #3)

Pétur, ég kveikti aftur á hljóðinu eftir svona tvær mínútur, þar sem ég saknaði umhverfishljóðanna.

Varðandi leikmennina okkar, þá sagði ég aldrei að krítíkin á þá væri rugl. Já, Riise er ekki sá fljótasti, já Baros er ekki nógu góður þegar hann er einn frammi. Og já, Garcia er meiri sóknarmaður en varnarmaður.

Punkturinn minn er bara þessi: Hver er tilgangurinn í þessu tali? Yfirfærum þetta á önnur lið. Hvernig væri það ef að Pires fengi boltann, þá segðu þeir "hann er ekki nógu góður varnarmaður" eða þegar Henry fengi boltann "Já, hann getur nú ekki skallað fyrir fimmaur". Þetta er bæði rétt, en hverju bætir þetta við lýsinguna? Hver er þörfin á þessum upplýsingum.

Það er ágætt að hafa svona "color commentary" einsog Rikki Daða á að koma með. Til dæmis hefur Guðjón Þórðar komið með marga góða punkta og ég þekki það í útsendingum frá baseball að það er frábært að hafa sérfræðinga, sem geta sagt manni hluti, sem maður sér ekki. Guðjón var til dæmis oft að benda á hlaup án bolta, sem maður tók ekki eftir eða annað slíkt.

Rikki Daða er hins vegar bara að þylja upp einhverjar klisjur um leikmennina, sem þjóna nákvæmlega engum tilgangi.

Arsenal var meira með boltann í leiknum (50.3% á móti 49,7%)

Í útsendingunni kom fram að Liverpool hefði verið meira með boltann. Það skiptir svo sem ekki máli, heldur voru þessi ummæli bara toppurinn á þessu öllu.

Það er líka punktur að það var nákvæmlega engu lýst í leiknum. Það var ekki sagt hver væri með boltann, hvað væri dæmt og svo framvegis. Nei, þetta var einfaldlega einsog umræðuþáttur, þar sem þulirnir sögðu skoðanir sínar á Liverpool.

Einar Örn sendi inn - 09.05.05 20:19 - (Ummæli #5)

Nei... það er alveg satt, og þeir hefðu jú alveg getað sagt eitthvað jákvætt um þá félaga, því að Riise hefur jú einn besta skotfótinn í deildinni...

Annars hefur Guðjón Þórðar líka sagt stundum eitthvað algjört rugl... sbr. þegar Dennis Bergkamp skoraði mark í meistaradeildinni og Guðjón segir: "Þetta er svokallað hlaup, eða það sem við sérfræðingarnir köllum hlaup". Ef að þarf útskýringar á því hvað hlaup sé, og finnst það vera góð ráð hjá Guðjóni Þórðarsyni þá held ég nú að skilningur á fótbolta sé ekki mjög mikil.

En mér finnst nú skárra að menn séu líka gagnrýndir stundum, sem virðist t.d. vera bannað þegar Íslendingar í sjónvarpi eiga í hlut. Alltaf þegar Hermann Hreiðarsson / Eiður Smári á lélega sendingu þá er það oft "lúmskur bolti" sem að mótherjinn áttaði sig ekki á því hann var oft langt í burt (Ekki kannski nátengt umræðunni núna).

Og ef Liverpool er að spila svona svakalegan mikinn sóknarbolta þá virðist eitthvað vera að, því að ekki eru þeir að skora mikið af mörkum. Ég held nú með Valencia á Spáni og dáist að Benitez sem framkvæmdarstjóra, en eins og með Valencia í fyrra þá liggur hann stundum dálítið til baka, og pressar stíft.

Maður hefur t.d. séð það á Benitez hvernig hann spilar í meistaradeildinni að hann er með varnartaktík. Í fyrri leiknum gegn Juve (þar sem Liverpool voru óneitanlega the underdogs), þá leggur hann allt undir, og sækir og sækir, sem skilaði 2 mörkum, og kom Juventus í opna skjöldu. Seinni hálfleikinn, og seinni leikinn gerði hann ekkert nema að verjast, og beita stöku skyndisóknum. Það var vissulega mjög sniðugt, en sóknarbolti, nei held ekki. Þeir voru ekki heldur að sækja mikið gegn Chelsea. Það var frekar að Chelsea sá um sóknarleikinn í því einvígi.

Í þriðja lagi þá kann Rikki daða ekki þá kúnst að vera óhlutdrægur. Sannaðist endanlega í leiknum á Sunnudaginn.

Þeir eru nú stundum skuggalega hlutdrægir í lýsingum sínum á Sýn.

Annars vil ég að lokum benda á að ég er hjartanlega sammála ykkur varðandi þessa lýsendur á Skjá Einum, þeir eru hrikalegir. Hélt bara fyrst að þú/þið væruð að segja að þetta væri ósanngjörn gagnrýni á þessa Liverpool menn.

Pétur sendi inn - 10.05.05 00:52 - (
Ummæli #14)

Jæja já , mikið er ég ánægður að vera hér í Danaveldi og geta horft á bolltann hér :-) Ég er að flytja heim eftir ár og er ég nokku viss að ég fái mér sky disk, þar sem ég þoli ekki svona bull í lýsingum og er það alveg sama hvort það er LIVERPOOL sem er að spila eða ekki.

Hvað er að því að þegja þegar ekkert er að gerast?? Það er eins og það sé alveg möst að tala í 90 min, þetta er alveg merkilegt ..

Hér í DK er það sama upp á teningnum, það er að segja á Dönsk stöð, þeir tala voða mikið um hitt liðið þegar LIVERPOOL er að spila og tala nú ekki um þegar dani er í líðinu úfff og verður gaman að sjá þegar LIVERPOOL spilar á móti AC :-)

Í leiknum á móti $$$$$ í meistaradeildini þá var klukkutíma spjall fyrir leik,,, og það var talað um $$$$$ í svona 50mín, viðtöl og verið að sýna frá liðinu en LIVERPOOL nei það var tekið 2 viðtöl, 1 við RAFA og 1 við RISE og um hvað var spurt?? Hvernig fynst þér $$$$$$$$ og hvað fynst þér um frank l :-)

Ég er búinn að skrifa þeim mail en á ekki vona á því að þeir félagar lesi það í næstu útsendingu :-) En þetta eru peter smakki brian laudrup og PREBER ELKEN ( ekki alveg með á hreinu hvernig þetta er skrifað)sem er sá eini í þessu teymi sem er með viti :-)

Jæja nóg af þessu bulli.. Ég vill bara þakka ykkur fyrir þessa síðu en hún búinn að bjarga mér hér í baunalandi og fer ég inná hana 3-4 á dag :-) Svo vil ég bara segja ÁFRAM LIVERPOOL OG ÞAÐ ERU EKKI SVÖRT ÁR FRAMUNDAN OK VIÐ ERUM MEÐ BESTU STUÐNINGSMENN Í HEIMI OG ÞESS VEGNA VERÐUR LIÐIÐ ALLTAF SÉRSTAKT :-)

KK sendi inn - 10.05.05 12:08 - (Ummæli #18)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·Liverpool 1 - Bolton 0
·WBA 0 - L'pool 2
·Liverpool 3 - Everton 1
·Birmingham - Liverpool 0-7
·Newcastle 1-3 Liverpool

Síðustu Ummæli

G.G: Já, ég er sammála ykkur í sambandi við þ ...[Skoða]
Biggi: Já sammála þér þessi þulir fóru virkileg ...[Skoða]
Kristján Atli: KK - það er Preben Elkjær. :-) ...[Skoða]
KK: Jæja já , mikið er ég ánægður að vera hé ...[Skoða]
Friðrik: Vildi skjóta því að að Kristinn Kærneste ...[Skoða]
Krizzi: Ég veit ekki betur en að Gummi Ben sé ha ...[Skoða]
Friðgeir Ragnar: Já það er ekki allt á eina bókina lært m ...[Skoða]
Pétur: Nei... það er alveg satt, og þeir hefðu ...[Skoða]
FDM: Hjartanlega sammála, alveg hjartanlega s ...[Skoða]
JónH: Þakka ykkur fyrir að taka þetta fyrir st ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Gonzalez og atvinnuleyfið
· Hverjir eru orðaðir við Liverpool
· Lið helgarinnar
· Liverpool 1 - Bolton 0
· Byrjunarliðið gegn Bolton
· Bolton á sunnudag!

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku




Við notum
Movable Type 3.2

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License