06. maí, 2005
Jæja, BBC er farið að fjalla um skyndileg skoðanaskipti enska knattspyrnusambandsins, sem við fjölluðum um í gær
FA eru greinilega í tómu tjóni, því í fyrra sögðu þeir að sigurvegari Meistaradeildarinnar (sem hefðu þá verið Arsenal eða Chelsea) myndu fá sæti í deildinni að ári, jafnvel þótt þeir yrðu ekki í fjórða sæti í ensku deildinni. Um þetta var gömul frétt á vef FA, sem þeir hafa nú eytt út, en BBC birta þó afrit af þeirri frétt.
Það verður spennandi að sjá hvað gerist núna víst BBC eru komnir í málið. FA eru allavegana í ruglinu.
Já, og by the way: Þetta er mjööög fyndið. Af því að Arsenal getur aldrei neitt í Meistaradeildinni þá ætlar Wenger að hætta að leggja áherslu á þá keppni. Frönsk snilld!