beach
« AC Milan skal það vera! | Aðalsíða | Sími »

05. maí, 2005
Ákvörðun í dag

Enska knattspyrnusambandið mun ákveða það í dag hvort að Liverpool fái sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili ef þeim tekst að vinna AC Milan í úrslitum. Sjá frétt á BBC

Einsog Rafa hefur bent á þá eru fordæmi fyrir því að liðið, sem vinni Meistaradeildina taki sæti af öðru liði í keppninni á næsta ári. Þegar að Real Madrid vann keppnina fyrir nokkrum árum en lenti of neðarlega í Meistaradeildinni, þá gaf spænska sambandið þeim sæti í Meistaradeildinni árið eftir.

Alan Hansen segir að Everton eigi sætið skilið ef þeir lendi í 4. sæti. Ég er eiginlega dálítið sammála þessu viðhorfi, þótt ég vilji auðvitað sjá Liverpool þarna. En fordæmið með Real Madrid er þó líka mikilvægt.

Ég er reyndar á því að EINA SANNGJARNA LEIÐIN sé að leyfa báðum liðum að komast í Meistaradeildina á næsta tímabili. Mér finnst það sjálfsagt að sú deild, sem á sigurvegarann í Meistaradeildinni njóti góðs af því ári seinna.


Já, og ef að Liverpool vinnur AC Milan, þá munu þeir EIGNAST bikarinn, þar sem liðið hefur þá unnið Evrópukeppni Meistaraliða FIMM SINNUM. :-)


Uppfært (Einar Örn): FA hefur staðfest að Liverpool muni EKKI fara í Meistaradeildina á kostnað Everton ef að Liverpool vinnur Meistaradeildina og Everton lendir í fjórða sæti í ensku deildinni.


Viðbót (Kristján Atli): SJÁIÐ ÞETTA!

Þetta er á heimasíðu enska knattspyrnusambandsins, for fuck’s sake! Textinn er frá því í fyrra, en hann er andskoti skýr:

Should Arsenal or Chelsea win the Champions League, they will automatically qualify for next season’s competition but England will not gain an extra Champions League place, even if they finish outside of the top four in the Premiership.

In that scenario the fourth-placed team in the Premiership will play in next season’s UEFA Cup.

Þetta er greinilega staða FA, enska knattspyrnusambandsins, fyrir ári síðan þegar Chelsea og Arsenal voru ein enskra liða eftir í keppninni og áttu að mætast í 8-liða úrslitunum.

Nú, ári síðar, gæti Liverpool virkilega lent í því sem þeir eru að fjalla um þarna - að vinna Meistaradeildina og lenda samt fyrir neðan 4. sæti í deildinni. Maður hlýtur að spyrja: HVAÐ HEFUR BREYST Á EINU ÁRI? Af hverju var það sjálfsagður hlutur að sigurlið Meistaradeildarinnar yrði tekið fram yfir liðið í 4. sæti í fyrra, þegar Arsenal og Chelsea áttu í hlut, en ekki í ár þegar Liverpool á í hlut?

Ótrúlegt. Fordæmið er til staðar, Real Madríd var tekið fram yfir Real Zaragoza árið 2000 og enska knattspyrnusambandið voru greinilega reiðubúnir að taka nákvæmlega sömu afstöðu fyrir tólf mánuðum síðan, þegar Arsenal og Chelsea áttu í hlut, en ekki núna? Fáránlegt.

Auðvitað getum við bara sjálfum okkur um kennt ef Everton aulast til að tryggja sér þetta 4. sæti, nóga sénsa höfum við haft á að ná þeim að stigum undanfarið, en þetta er engu að síður fáránleg tilhugsun - að meistarar Evrópu fái ekki að verja titil sinn. Ótrúleg ákvörðun FA og sýnir meira en lítið hversu mikla sérmeðferð Lundúnarliðin fá hjá FA.

Ekki sáttur. :-)

.: Einar Örn uppfærði kl. 11:17 | 500 Orð | Flokkur: Meistaradeild
Ummæli (12)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · Landslið · Leikmannakaup og sölur · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·Aston Villa 0 - Liverpool 2
·Liverpool 3 - Anderlecht 0
·Liverpool 2 - West Ham 0
·C. Palace 2 - Liverpool 1 (uppfært)
·Fulham 2 - Liverpool 0

Síðustu Ummæli

Einar Örn: Djöfull er það fyndið að þeir skuli reyn ...[Skoða]
DaðiS: Núna eru FA búnir að taka niður tilkynni ...[Skoða]
Einar Örn: jamm, Uefa segja núna að ef að Liverpool ...[Skoða]
Óli Þ: Er FA ekki í rauninni að setja ákveðna p ...[Skoða]
JónH: Ég er ekki alveg að skilja menn sem segj ...[Skoða]
Einar Örn: Þetta er ansi magnað, sem þú bendir á, K ...[Skoða]
Lambi: Ef lið verður evrópumeistarar eru þeir e ...[Skoða]
Pétur: Ef Evrópumeistararnir eru það lélegir að ...[Skoða]
R.ó.K.: Ég er sammála mér finnst að það ættu bar ...[Skoða]
Svenni: Málið með Real Madrid fordæmið er að á þ ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Kewell biður um þolinmæði, Riise vill framlengja samninginn sinn og fleira til.
· Sabrosa falur!
· Hinn Króatíski Beckham
· He's big, he's red ...
· Rafa í hálfleik í Istanbúl
· Liverpool að fá bandaríska fjárfestingu?

Tenglar

Einar :: Vefleiðari

JupiterFrost

NewsNow Liverpool

ESPN

Cubs

BBC

Liverpool (official)

Liverpool.is

This Is Anfield




Við notum
Movable Type 3.121

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License