Þetta eru nokkuð magnaðar umræður hérna. Nokkrir punktar:
- Ef Eiður datt óvart, einsog einhverjir hafa haldið fram, þá hefði hann átt að láta dómarann vita þegar hann sá að hann ætlaði að spjalda Xabi
- Það er magnað hversu breyttan standard menn hafa útaf því að Eiður er Íslendingur. Allt í einu er svona framkoma bara “partur af leiknum” og merki um hvað hann sé snjall leikmaður. Það er náttúrulega fáránlegt að halda því fram. Eflaust má kalla hann snjallan, en hann er líka óheiðarlegur. Ef skórinn væri á hinni löppinni, þá er hætt við því að Chelsea menn væru alveg snældu vitlausir yfir slíkri hegðun. Þeir leikmenn, sem láta sig detta og núa því um nasir á leikmanni að hann verði í banni í næsta leik, eru ekki hátt skrifaðir hjá mér. Alveg sama hvert þjóðerni þeirra manna er.
Það er einfaldlega ekki rétt, CFC að “98% ykkar hefðu gert það sama og Eiður”. Að mínu mati þá er versti glæpurinn sá að nudda Alonso uppúr spjaldinu. Það er að mínu mati hegðun, sem er til háborinnar skammar og nokkuð, sem ætti ekki að sjást. Það sýnir líka hver ásettningurinn var.
Kallinn segir:
Tvilikt vael einu sinni enn herna um Chelsea
Ofundin er tvilik i gard tessa lids ad tad er med olikindum.
Þetta er náttúrulega varla svaravert. Hvað kemur gagnrýni á óheiðarlega framkomu öfund við? Nákvæmlega ekki neitt! Eiður lét sig detta og við gagnrýnum það. Það hefur ekkert með öfund að gera.
Það er líka óþolandi að fá svona komment á þessa síðu. Við skrifum fleiri þúsund orð í hverri viku og einhver smár hluti af þeim fjalla á neikvæðan hátt um Chelsea. Að gefa það í skyn að okkar skrif einkennist á einhvern hátt af einhverri Chelsea öfund er út í hött.
Chelsea er efsta liðið í deildinni og þeir hafa stöðugt verið orðaðir við einn okkar besta mann, þannig að það er eðlilegt að umfjöllun okkar snúist að Chelsea. Það er hins vegar að mínu mati fjarri sannleikanum að umfjöllun okkar um það lið hafi verið ósanngjörn. Vanalega reynum við að takmarka ómálefnaleg skot einungis við Manchester United
Annars er magnað að stuðningsmenn Liverpool, sem senda hérna inn komment, gera það undir nafni, en stuðningsmenn annarra liða gera það undir dulnefni (CFC, Kallinn). Skrifið undir nafni. Við erum ekkert að fara að hringja í ykkur útaf þessum ummælum. Það gerir ummæli ykkar einungis trúverðugari.
…
Annars, þá fannst mér þessi kafli úr Guardian greininni, sem Hafsteinn sendi inn, vera góður:
The Spaniard was inconsolable in the dressing room at Stamford Bridge, with his team-mates pledging to secure passage to the final in Istanbul next month in his absence. “He was distraught after the game and I feel for him because I know how much he wanted to play in what will be a massive game at Anfield,” said Steven Gerrard, who had had an abscess drained at a London hospital before Wednesday’s game. “That is a definitely a motivation for everyone, to get through so that Xabi will be able to play in the final.”
Nákvæmlega! Ég er sannfærður um að þessi hegðun hjá Eið Smára mun gera það að verkum að Liverpool menn verða 10 sinnum ákveðnari í að klára þetta og tryggja farmiðann til Istanbúl. Ég er allavegana orðinn verulega spenntur!