beach
« John Terry leikmaður ársins! (uppfært) | Aðalsíða | Chelsea á morgun! (+viðbót) »

26. apríl, 2005
KEWELL og Baros í hópnum (uppfært)

kewell_fitness.jpgGóðar fréttir fyrir leikinn á morgun. Bæði Harry Kewell og Milan Baros verða í hópnum á móti Chelsea. Það, sem kemur okkur auðvitað skemmtilega á óvart er að Kewell skuli vera þarna. Hann hefur aðeins spilað tvo leiki á þessu ári.

Mikið væri nú ánægjulegt að sjá Harry Kewell spila seinni hálfleikinn á morgun. Við vitum öll hvað hann getur þegar hann er uppá sitt besta. Það væri svo sannarlega frábær lyftistöng fyrir Liverpool ef að við fengjum að sjá hinn raunverulega Harry Kewell spila á morgun!


Viðbót (Kristján Atli): Þetta eru náttúrulega frábærar fréttir. Fyrst, þá er gott að Baros geti verið með því ég efast um að Cissé geti spilað heilar 90 mínútur ennþá og því hefðum við verið í vandræðum án Baros. Hvað Kewell varðar, þá verð ég að segja að ég átti ekki von á að sjá hann aftur fyrr en bara næsta haust, og því kemur það á óvart að sjá hann í hópnum núna.

Spurningin er bara hvort hann er virkilega búinn að jafna sig almennilega eftir meiðslin eða hvort það er enn og aftur verið að biðja hann um að ‘harka af sér’ fyrir liðið. Það eru kannski einhverjir ósammála mér en ég er enn á þeirri skoðun að fullfrískur og ómeiddur Harry Kewell í toppformi er með betri sóknarmönnum Úrvalsdeildarinnar (hugsið til baka hvað menn voru glaðir þegar hann gekk til liðs við okkur? ) og því væru það vissulega frábær tíðindi ef hann gæti spilað af einhverjum krafti í 20-30 mínútur á morgun, ef við þyrftum á honum að halda.

Hins vegar, ef hann er enn ekki orðinn heill af meiðslunum þá myndi ég frekar vilja skilja hann eftir heima. Hann verður að jafna sig almennilega áður en hann snýr aftur, og því vona ég að hann sé búinn að yfirstíga sín meiðsli núna fyrst hann segist heill og Rafa virðist ætla að nota hann.

Samt, skemmtileg tilhugsun fyrir morgundaginn að ef við skyldum lenda undir þá getur karlinn sett Cissé og Kewell inní liðið til að styrkja sóknina. Það er laaangt síðan við höfum haft jafn virt nöfn á bekknum til að koma inní leiki :-)

.: Einar Örn uppfærði kl. 12:21 | 356 Orð | Flokkur: Meiðsli
Ummæli (6)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · Landslið · Leikmannakaup og sölur · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·Aston Villa 0 - Liverpool 2
·Liverpool 3 - Anderlecht 0
·Liverpool 2 - West Ham 0
·C. Palace 2 - Liverpool 1 (uppfært)
·Fulham 2 - Liverpool 0

Síðustu Ummæli

Kristján Atli: Sigtryggur - skemmtu þér vel úti. Myndi ...[Skoða]
Hafliði: Góðar fréttir með þá báða. En finnst eng ...[Skoða]
Sigtryggur Karlsson: Sælir félagar. Það muna allir hvað alli ...[Skoða]
Ólafur Örn: Við vitum öll hvað Kewel getur þegar han ...[Skoða]
Mummi: Ég er á því að hann eigi bara að taka sé ...[Skoða]
Óli Þ: Ef Kewell getur ekki mótiverað sig fyrir ...[Skoða]

Síðustu færslur

· García: ný hetja Spánar!
· Kewell biður um þolinmæði, Riise vill framlengja samninginn sinn og fleira til.
· Sabrosa falur!
· Hinn Króatíski Beckham
· He's big, he's red ...
· Rafa í hálfleik í Istanbúl

Tenglar

Einar :: Vefleiðari

JupiterFrost

NewsNow Liverpool

ESPN

Cubs

BBC

Liverpool (official)

Liverpool.is

This Is Anfield




Við notum
Movable Type 3.121

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License