24. apríl, 2005
John Terry var í kvöld valinn leikmaður ársins af leikmönnum Úrvalsdeildarinnar fyrir veturinn 2004/05. Hann hafði betur í kosningu en hinir útnefndu leikmennirnir: Petr Cech og Frank Lampard hjá Chelsea, Thierry Henry hjá Arsenal, Andy Johnson hjá Crystal Palace og okkar eigin Steven Gerrard.
Hvað getum við Púllarar annað gert en óskað Terry og Chelsea-stuðningsmönnum til hamingju? Þeir eru margir leikmenn Chelsea sem hafa blómstrað í vetur og þetta er vissulega þeirra ár - allavega hingað til, við breytum því vonandi á miðvikudag
- en ég held það geti enginn mótmælt því að John Terry hefur einfaldlega staðið upp úr. Hann er sennilega búinn að vera besti varnarmaður í Evrópu í vetur, í fullri alvöru, og er leitun að öðrum eins leiðtoga á velli og honum. Vissulega gæti fyrirliðinn okkar, sem einnig var tilnefndur, lært eitthvað af því að sjá hvernig Terry og Jamie Carragher, sem hefði frekar átt að vera tilnefndur en SG að mínu mati, leiða lið sín á vellinum í orði og verki. En allavega, réttur maður vann þetta í ár og var það verðskuldað.
Í öllu furðulegra vali var Wayne Rooney valinn efnilegasti leikmaður deildarinnar í sömu kosningum í kvöld. Það skil ég ekki. Ég hefði valið Arjen Robben eða Shaun Wright-Phillips fram yfir hann hvenær sem er - jafnvel Jermain Defoe. Þessir þrír hafa allir verið miklu, miklu betri en Rooney í vetur að mínu mati og ef Robben hefði ekki misst úr mikinn hluta í vetur vegna meiðsla hefði hann örugglega tekið þessi verðlaun. En svona getur þetta verið skrýtið.
Þá langaði mig fyrir háttinn að benda á góða grein um Andy Johnson, sem einnig var tilnefndur í kvöld og skoraði sitt 20. mark í deildinni gegn okkur í gær: AJ leads the way.
Þarna fjallar The Insider, góður penni hjá SoccerNet, um frammistöðu AJ gegn Liverpool í gær og veltir því fyrir sér hvort hann sé nógu góður fyrir stóru liðin.
Hvað finnst ykkur? AJ var títtnefndur í sambandi við Liverpool í janúar og sumir vilja meina að hann komi pottþétt til okkar í sumar ef CP falla. Eftir leikinn í gær, þar sem hann skoraði flott mark og var að mínu mati gríðarlega öflugur og gerði varnarmönnum okkar mjög erfitt fyrir, finnst mönnum Andy Johnson vera leikmaður sem gæti bætt framlínuna okkar?
Uppfært (Einar Örn) Hérna er lið ársins og á miðjunni með Frank Lampard er Steven Gerrard. Af einhverjum óskiljanlegum ástæðum er Rio Ferdinand með Terry í vörninni. Það þykir mér skrítið val. Var Rio ekki í banni stóran hluta leiktíðarinnar?
Í liði leiktíðarinnar eru 4 Chelsea menn, 2 Man U, 2 Arsenal menn og einn frá Manchester City, Liverpool og Crystal Palace.
Einnig þá er ég sammála Kristjáni varðandi Wayne Rooney. Held að hann hafi að stóru leyti verið að njóta árangursins af EM í þessu vali. Ef að byggt væri á frammistöðu leikmanna í deildinni, þá hefði ég valið einhvern af hinum, sem voru tilnefndir.