30. mars, 2005
Ef að Höddi Magg segir: “Einhvern tímann hefði nú Michael Owen…. bla bla bla” einu sinni enn, þá brýt ég sjónvarpið.
Má Michael Owen ekki klikka á einu færi án þess að það þýði að ferill hann sé á niðurleið? Ég veit ekki hver ástæðan er, en mér þykir ennþá ferlega vænt um Michael Owen. Ég hélt að ég myndi snúast gegn honum eftir að hann fór til Real, en það hefur ekki gerst. Ef hann hins vegar ákveður að spila með öðru bresku liði, þá mun það fljótt gerast.
Annars talandi um þessa landsleiki, þá hafa nú tveir Liverpool menn skorað í vikunni. Milan Baros skoraði um helgina og Stevie G í kvöld. Gerrard er þá búinn að skora í tveimur af síðustu þremur leikjum sínum. Ég væri alveg til í að veðja nokkrum krónum um það að hann myndi skora á laugardaginn.
Uppfært (Einar Örn) Í kvöld þá fiskaði Milan Baros víti, lagði upp annað mark og skoraði það þriðja. Ekki slæmt. En gleymum því samt ekki að Milan Baros getur ekki neitt í fótbolta!