beach
« MILAN! | Aðalsíða | Everton á morgun! »

18. mars, 2005
Juventus (uppfært)

20 árum eftir Heysel slysið hörmulega, sem varð til þess að Liverpool var bannað úr Evrópukeppni í mörg ár, þá munum við mæta Juventus í 8 liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Að mínu mati var þetta eitt af þeim þremur liðum, sem ég óttaðist mest. Hin voru Chelsea og AC Milan. Ég mun skrifa meira um þetta þegar ég hef betri tíma. En á meðan, hvernig líst ykkur á?

Fyrri leikurinn verður á Anfield, 7.apríl og sá seinni verður 13.apríl í Tórínó.

Uppfært (Einar Örn): Það má kannski bæta því við að ef við vinnum leikinn gegn Juventus, þá munum við leika gegn sigurvegaranum úr leik Chelsesa og Bayern Munchen í undanúrslitum. Í hinum undanúrslitaleiknum munu svo mætast AC Milan/Inter Milan og PSV/Lyon. Þannig að ef við ættum að fara alla leið, þá væri ekki ólíklegt að okkar menn þyrftu að vinna Juventus, Chelsea og svo AC Milan. Jammm…

Einnig, þá sendu tveir lesendur inn fín komment á leik Juve í vetur og erum við þakklátir fyrir. Sjá hér frá Zlatan og Kallinn.

Samkvæmt þeim, þá er líklegasta byrjunarlið Juventus svona:

Buffon

Zebina - Thuram - Cannavaro - Zambrotta

Camoranesi - Emerson - Blasi - Nedved

Zlatan - Trezeguet/Del Piero

Ekki slæmt lið þar. Þarna er einn af fimm bestu markmönnum í heimi, einn af fimm bestu miðjumönnum í heimi og þrír af bestu framherjum í heimi.

.: Einar Örn uppfærði kl. 15:36 | 225 Orð | Flokkur: Meistaradeild
Ummæli (16)

Aetli eg leyfi mer ekki ad skrifa sma um Juve :-)

Juventus byrjadi timabilid af feykikrafti og virtust vera ad stinga af i deildinni a timabili en Milan rett nadu ad hanga i rassgatid a teim. Nyju mennirnir ; Emerson, Zlatan, Cannavaro og Zebina voru allir ad spila glimrandi vel og menn voru ekki i neinum vafa ad tetta lid myndi vinna Serie A lett.

Sidan tok ad halla undan faeti og eg held ad tad megi vel segja ad Juventus hafi i raun ekkert getad a tessu ari. Tad liggur nokkud ljost fyrir ad Milan mun vinna Serie A (a.m.k. ad minu mati) tratt fyrir ad lidin seu jofn med 63 stig nuna.

Nedved meiddist ad visu en tad sem hair tessu lidi er fyrst og fremst vaengspil, lidid spilar of “central”. Einnig vantar sterkan midjumann med Emerson, Blasi, Tachinardi og Appiah eru agaetir en bara engan veginn nogu godir fyrir Juventus.

Vornin hefur soldid verid ad fa a sig mork a sidustu minutunum (gegn t.d. Parma, Cagliari og Juventus), baedi mork sem hafa kostad stig og lika kaeruleysismork i unnum leikjum. Vornin er to feiknarsterk en samt sem adur farin ad eldast soldid.

Del Piero hefur verid gagnryndur og fengid ad sitja soldid a bekknum eftir ad Trezeguet kom aftur eftir meidsli.

Juventus mega to eiga tad ad teir geta verid vel massivir tegar teir turfa a tvi ad halda og eru ognarsterkir a heimavelli.

Teirra sterkasta byrjunarlid er sennilega svona :

Markvordur : Buffon,

Varnarmenn (fra haegri til vinstri) : Zebina, Thuram, Cannavaro, Zambrotta

Midjumenn (fra haegri til vinstri) : Camoranesi, Emerson, Blasi, Nedved

Frammi : Zlatan/DelPiero/Trezeguet (tid veljid bara ta 2 sem ykkur finnst :-) )

Kallinn sendi inn - 18.03.05 16:58 - (
Ummæli #3)

Já já ég get frætt ykkur meira. Ég hef séð slatta af leikjum með þeim í vetur.

Þeir spila þennan týpíska Cappello fótbolta. Liggja aftarlega og teysta á mjög sterka vörnm með frábæran markmann fyrir aftan. Úti á máti Real lágu þeir mjög aftarlega og beittu skyndisóknum og voru reyndar heppnir að tapa ekki stærra. Á heimavelli þá spiluðu þeir 4-3-3 og fannst mér Real nú aldrei ná að ógna þeim að neinu viti fyrir utan eitt stangarskot. Þeir sóttu nú ekki mjög stíft en náðu að skora þessi mörk sem þurfti.

Það verður svo að taka það með í dæmið að Nedved verður kominn aftur á móti ykkur og mér persónulega finnst Juve vera allt annað lið með hann innanborðs. Má líkja því við ykkar elskaða Chelsea með og án Robben.

Þið getið alveg búist við því að Juve liggi aftarlega á Anfield og beyti skyndisóknum. L’pool verða sjálfsagt 60% með boltann í leiknum, en verða að nýta færin sín vel.

Ég hef ekki verið nógu ánægður með spilamennsku Juve upp á síðkastið. Finnst þeir vera full varnarsinnaðir þar sem þeir eru með frábæra varnarmenn sem eiga ekki að þurfa allt liðið fyrir framan sig. En það er hins vegar rétt hjá þér Einar að Zlatan hefur verið í feiknaformi í vetur. Vona bara að hann og Trezeguet verði frammi á móti ykkur og Del Piero fái að hvíla sig.

En annars þegar Nedved er með Juve þá spila þeir 4-4-2. Líklegasta byrjunarliðið er þá Buffon-Zambrotta, Cannavaro, Thuram, Zebina-Nedved, Emerson, Blasi, Camoranesi-Zlatan,Trezeguet Að mínu mati þá liggur séns Liverpool í því að eigna sér miðjuna þar sem Blasi er arfaslakur(að mínu mati).

Zlatan sendi inn - 18.03.05 17:12 - (
Ummæli #6)

Hey! :-)

Tad ma nu ekki stimpla mig sem einhvern hardan studningsmann italska boltans. Malid er nu bara tannig ad i augnablikinu er eg stadsettur a N-Italiu vegna vinnu og hef tvi vel fylgst med boltanum tar, enda syna teir ekkert annad i sjonvarpinu fyrir utan audvitad faklaeddar stulkur og Berlusconi :-)

Tad er rett sem menn hafa sagt her ad margir leikir eru afspyrnuleidinlegir en tad leidinlegasta ad minu mati eru endalausar aukaspyrnur en ekki endlilega markaleysi. Storu lidin (Milan og Juve) eru to dugleg i 1-0 urslitunum, Milan hefur unnid 7 slika og Juve 5 en ef mig misminnir ekki ta vann Juve 5 leiki i ridlakeppni CL og allir unnust teir 1-0.

Skemmtilegustu lidin herna eru Inter og Roma. Menn einsog Adriano og Cassano eru otrulegir med boltann. Roma er to alveg hrunid eftir brottfor tjalfarans til Juve auk lykilmanna einsog Samuel, Emerson og Zebina. Auk tess er fjarhagsstada lidsins mjog slaem og liklegt ad menn einsog Totti, Cassano og fleiri turfi ad vikja til ad fa pening inn i klubbinn.

Inter hins vegar er i svipadri stodu og Liverpool, hefur ekki unnid titilinn sidan ‘89 en kaupa og kaupa a hverju einasta sumri og vaentingarnar eru ogurlegar fyrir hvert timabil en alltaf tekst teim ad valda vonbrigdum. Lidid er to storskemmtilegt og mun liklegra ad leikir hja teim fari 2-2 eda 3-3 heldur en 0-0.

Milan og Juve hins vegar hafa og virdast muna um okomna framtid rada logum og lofum i Serie A enda ansi voldugir menn tar a bak vid. Mafia? :-)

Kallinn sendi inn - 19.03.05 08:55 - (
Ummæli #14)

Bara svona aðeins til að sýna ykkur hvað það er skorað “mikið” meira í ensku deildinni: 1 sæti í báðum deildum Chelsea 53 Milan 47 mörk 2 sæti Man utd 47 Juve 46 mörk 3 sæti Arsenal 67 Inter 50 mörk 4 sæti Everton 35 Sampa 31 mark 5 sæti Liverpool 41 og Udinese 41 mark. Þetta er allur munurinn það er í raun Arsenal sem er að halda þessu uppi á Englandi. Eftir 10 umferðir þá var búið að skora meira á Ítalíu heldur en Englandi. Sá svo tölfræði aftur fyrir um mánuði síðan og þá var England komið aftur yfir en það munaði ekki svo miklu. Stærsti munurinn á þessum deildum eru aukaspyrnurnar eins og kallinn sagði.

Mér finnst það nefnilega málið með Íslendinga (sérstaklega Man utd aðdáendur) að þeir halda því alltaf fram að allt sé best og frábærast í Englandi (árangurinn í Evrópu hefur ekkert verið til að hrópa húrra fyrir) en svo ef þeir eiga að rökstyðja það þá kemur bara í ljós að þeir “vissu” ekki að það væri spilaður fótbolti annarsstaðar.

Svo ef það er hægt að spila frábæran sóknarbolta og ná árangri þá er það náttúrulega snilld. En ég vildi frekar spila varnarbolta (eins og Juve) og vera enn inni í Champions League heldur en spila sóknarbolta og hrynja út. Ég er aðdáandi Juve og Barca og það er ekki spurning að það er skemmtilegra að horfa á Barca.

Svo er náttúrlega hægt að spyrja ykkur Liverpoolaðdáendur hvort þið skemmtuð ykkur betur fimmutímabilið undir GH spilandi varnarbolta eða þegar þið spiluðuð glimmrandi sóknarbolta undir Roy Evans?

Zlatan sendi inn - 19.03.05 10:41 - (
Ummæli #15)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Landslið · Leikmannakaup og sölur · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Upphitun · Vangaveltur · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·L'pool 2 - Kaunas 0
·Kaunas 1 - L'pool 3
·Liverpool 4 - Olympiakos 3
·T.N.S. - Liverpool 0 - 3
·Liverpool 3 - T.N.S. 0

Síðustu Ummæli

Kiddi: Sammála því að það er aukaspyrnugeðveiki ...[Skoða]
Zlatan: Bara svona aðeins til að sýna ykkur hvað ...[Skoða]
Kallinn: Hey! :-) Tad ma nu ekki stimpla ...[Skoða]
Garon: Jújú, það má alveg gera lítið úr áhuga f ...[Skoða]
Einar Örn: Já, ég held að við megum ekki gera lítið ...[Skoða]
Kiddi: Að sjálfsögðu er ekkert mál að vinna lið ...[Skoða]
Einar Örn: Zlatan, Kalinn var að kommenta á mig, eg ...[Skoða]
Zlatan: Kallinn ef þú lest þetta rétt þá er þett ...[Skoða]
Kallinn: Zebina er reyndar haegra megin og Zambro ...[Skoða]
Aggi: Þetta verða rosalegir leikir.... og vona ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Hvað þarf Morientes til að sýna sitt besta?
· Rafa enn brjálaður vegna Gonzales
· Þriðji penninn
· Dudek og Medjani
· Meiðsli, meiðsli, meiðsli (uppfært: meiðsli)
· Newcastle í viðræðum við Real (uppfært: Og Man U líka!)

Tenglar

Einar :: Vefleiðari

JupiterFrost

NewsNow Liverpool

ESPN

Cubs

BBC

Liverpool (official)

Liverpool.is

This Is Anfield




Við notum
Movable Type 3.121

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License