Ég skil hvað þú ert að benda á Kallinn, en að mínu mati liggur munurinn í því að í Chelsea-markinu hefur aðilinn sem er brotlegur (Carvalho) bein áhrif á getu markvarðarins til að stöðva skallann, þar sem hann rífur í hann.
Í Barcelona-markinu hins vegar, þótt Börsungurinn hafi verið fyrir innan, hefur brotlegi aðilinn ekki bein áhrif á markið. Cech hefði að mínu mati aldrei varið þetta skot, hvort sem það voru 50 menn að skyggja sýn hans eða enginn. En auðvitað er það alltaf matsatriði dómarans hvað hefur áhrif á leikinn og hvað ekki.
Hins vegar tel ég ólöglega sigurmark Chelsea vera minnsta skandalinn í þessari umræðu, þar sem það var nær ógjörningur fyrir dómarann að sjá þetta brot. Carvalho var mjög lúmskur og það var ekki fyrr en í annarri eða þriðju endursýningu að ég fattaði að það var brotið á Victor Valdes. Dómarar sjá því miður ekki allt og því stóð markið.
Enda tapaðist þessi leikur að mínu mati ekki á sigurmarkinu. Barcelona töpuðu þessu þegar þeir fengu á sig 3 mörk á 20 mínútum … lið sem gerir sig sekt um slíka varnarvinnu á ekki skilið að slá lið eins og Chelsea út, því hef ég ekkert út á úrslit leiksins að setja.
En ég er samt með það á hreinu að framkoma Mourinho fyrir, á meðan og eftir þennan leik er ekki aðeins vítaverð fyrir sínar eigin sakir, heldur gaf hann MJÖÖÖG slæmt fordæmi fyrir aðdáendur Chelsea, sem svöruðu kallinu með hótunum til Frisk, með fyrrnefndum afleiðingum.
Samt eru Chelsea-menn ekkert einir um hótanir. Við munum enn eftir því þegar Liverpool-aðdáendur, nokkrir óprúttnir aðilar, hótuðu Gérard Houllier lífláti hvað eftir annað ef hann ekki segði af sér. Því miður þá er það bara staðreynd í dag að hótanir eru orðnar allt of algengur hluti af leiknum og það hreinlega verður að gera eitthvað til að stöðva þessa hættulegu þróun!
…og auðvitað á að sekta Mourinho, hann á að vita betur en að hegða sér svona.