beach
« Tölfræði dagsins | Aðalsíða | Hversu mikið söknum við Xabi Alonso? »

06. mars, 2005
Blackburn (uppfært!)

Kæru Blackburn leikmenn,

Viljiði vinsamlegast vinna Everton í dag, svo að við getum enn haldið í þá veiku von að þriðjudags- og miðvikudagskvöld næsta vetur verði ánægjuleg fyrir okkur Liverpool aðdáendur.

Kveðja,

Einar Örn


Viðbót (Kristján Atli): Ég veit ekki með ykkur hina Púllarana, en ég sit núna límdur við skjáinn og ætla að horfa á þennan leik af mikilli athygli. Gæti jafnvel laumað inn smá hugleiðingar um þennan leik í kvöld … mér finnst ég verða að horfa á þetta, ekki bara til að styðja Blackburn heldur einnig til að meta þetta Everton-lið. Eru þeir virkilega með nógu gott lið til að geta staðið sig í Meistaradeildinni á næsta ári, eða munu þeir hrynja út í forkeppninni strax næsta ágúst?

Sjáum til. Áfram Blackburn.

.: Einar Örn uppfærði kl. 15:59 | 125 Orð | Flokkur: Enski Boltinn
Ummæli (22)

Sammála því.

Kristján Atli sendi inn - 06.03.05 22:56 - (Ummæli #17)

Við verðum þá bara sammála um að vera ósammála. Mér finnst alveg gríðarlega stór munur á liðinu á heimavelli og útivelli. Kannski eru þau gleraugu sem ég nota svona skrítin (kannski ástæða fyrir mig að byrja að nota gleraugu :-) ). Við höfum spilað fimm sinnum á heimavelli:

Chelsea - Spiluðum virkilega vel í þessum leik, um það eru flestir sammála.

Man.Utd. - Persónulega fannst mér við spila bara all vel í þessum leik, en úrslitin ekki eftir því.

Watford - sigur, en sammála því, dapur leikur.

Fulham - Vorum mjög aggressívir og mér fannst liðið vera langt frá því að spila illa. Vorum að sundurspila þá lengi vel.

Leverkusen - Spiluðum mjög vel.

Að mínum dómi höfum við bara einu sinni spilað illa á heimavelli og það var gegn Portsmouth, en þó við höfum ekki spilað vel þar, þá glutruðum við þeim leik niður fyrir algjöran klaufaskap á síðustu sekúndum leiksins.

Kristján, ég var ekki að tala um að neinn leikur væri unninn fyrirfram. Það er heldur enginn leikur tapaður fyrirfram. Ég tel okkur vera í fullum séns í þessu. Ég nenni heldur ekki að tapa mér í eitthvað svartsýniskast þegar möguleikarnir eru fyrir hendi. Ég hef fulla trú á að við klárum Blackburn á heimavelli eftir rúma viku. Ef það gengur eftir, þá lítur dæmið bara alls ekki illa út.

Ég ætla mér allavega að halda áfram að vera bjartsýnn á framhaldið. Fyrirfram var þetta mjög erfitt að fara upp til Newcastle. Gríðarlega erfiður útivöllur og bjóst ég ekki við nema í mesta lagi stigi þar. Ég bjóst reyndar við sigri Everton í dag á Blackburn, en þar fengum við óvæntan glaðning.

Þetta er fljótt að gerast, og það er nú ekki eins og að Everton og Boro séu nú á einhverri geðveikri siglingu þessa dagana frekar en við. Þetta gæti ráðist á því hvert liðanna verður “minnst lélegt” :-)

Nando, Harry, Djimi, Didi og Dudek ættu að vera orðnir klárir fyrir næsta leik í deildinni. Ég mun allavega vera á áhorfendapöllunum og öskra mig hásann á næstu 2-3 leikjum á Anfield og hef þá trú á að staðan gæti verið orðin mun svo vænlegri eftir þá.

YNWA

SSteinn sendi inn - 06.03.05 23:07 - (Ummæli #18)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Við áskiljum okkur allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart stjórnendum síðunnar eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · Landslið · Leikmannakaup og sölur · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·Aston Villa 0 - Liverpool 2
·Liverpool 3 - Anderlecht 0
·Liverpool 2 - West Ham 0
·C. Palace 2 - Liverpool 1 (uppfært)
·Fulham 2 - Liverpool 0

Síðustu Ummæli

Eiki Fr: Þessi leikur gegn Everton verður vart úr ...[Skoða]
SSteinn: he he, Kristján minn. Það er óþarfi að ...[Skoða]
Eiki Fr: Ef mið er tekið af frammistöðu Everton o ...[Skoða]
Kristján Atli: Steini, við skulum bara semja hér og nú. ...[Skoða]
SSteinn: Við verðum þá bara sammála um að vera ós ...[Skoða]
Kristján Atli: Sammála því. ...[Skoða]
Einar Örn: Já, þetta var gert á örstuttum tíma, þan ...[Skoða]
Kristján Atli: Og spiluðum við ekki líka heima gegn Che ...[Skoða]
Kristján Atli: Og Einar - Fulham-leikurinn var á Anfiel ...[Skoða]
Kristján Atli: Steini - síðast þegar við áttum "leik ti ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Kewell biður um þolinmæði, Riise vill framlengja samninginn sinn og fleira til.
· Sabrosa falur!
· Hinn Króatíski Beckham
· He's big, he's red ...
· Rafa í hálfleik í Istanbúl
· Liverpool að fá bandaríska fjárfestingu?

Tenglar

Einar :: Vefleiðari

JupiterFrost

NewsNow Liverpool

ESPN

Cubs

BBC

Liverpool (official)

Liverpool.is

This Is Anfield




Við notum
Movable Type 3.121

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License