04. mars, 2005
Það er merki um hversu mikið hlutirnir hafa breyst undir stjórn Rafa að mann finnst það nú vera hræðileg tíðindi að Djimi Traore skulu vera meiddur. Hann spilar ekki með gegn Newcastle.
Nú er spurning hvort Benitez setur Riise í bakvörðinn gegn Newcastle eða hvort Carra fari í bakvörðinn og Pellegrino í miðvörðinn. Newcastle er gríðarlega sterkt sóknarlega, þannig að það eru slæmar fréttir að þurfa að breyta vörninni fyrir þennan leik.