Já ég skal reyndar alveg fyllilega viðurkenna að umfjöllun okkar Einars um Everton í vetur hefur verið ‘til skammar’, eða hvað sem menn vilja kalla það. Málið er einfaldlega það að, eins og þú segir, maður hefur verið að bíða eftir að “blaðran” springi og því hefur maður örugglega ekki gefið Everton það kredit sem þeir eiga skilið.
Nú er hins vegar að daga uppi fyrir mér að það eru bara 10 leikir eftir (11 hjá mínum mönnum) og Everton eru enn 8 stigum á undan okkur. Það eru þrír mánuðir síðan þeir unnu okkur 1-0 á Goodison og juku þá forskot sitt upp í 9 stig ef ég man rétt. Þá var maður rólegur þrátt fyrir tapið, því maður bjóst fastlega við að þetta forskot yrði orðið að engu eftir svona 2 mánuði. Svo þegar Gravesen fór til Real í janúar viðurkenni ég að ég hreinlega afskrifaði Everton í keppninni um 4. sætið og fór að hafa meiri áhyggjur af Middlesbrough og Tottenham fyrir neðan Liverpool í deildinni.
En nú eru 2 mánuðir síðan Gravesen fór til Real og 3 mánuðir tæpir síðan þínir menn unnu 1-0 á Goodison, og forskotið er ennþá þarna. Maður er orðinn nett stressaður.
Ég er sammála þér í því að Everton á eftir að tapa stigum í síðustu 10 leikjunum, sér í lagi eiga þeir líklega eftir að tapa a.m.k. öðrum leiknum gegn Chelsea og/eða Arsenal. Ég er sammála þér í því Makkari að spurningin felst ekki í því hvað Everton munu gera fram á vorið, ég sé þá fyrir mér enda jafn stöðugt og þeir hafa verið að gera (þ.e. spila sterkan bolta og vinna þónokkra nauma sigra, gera mikið af jafnteflum en tapa ekki mikið meira en 1-2 leikjum).
Spurningin er: hvað gerir Liverpool? 11 leikir eftir, 33 stig í pottinum og ljóst er að til að ná að vinna upp 8 stig í 33ja stiga potti þá má liðið alls ekki tapa nema í mesta lagi einum leik. Ef við gerum ráð fyrir að sá leikur sé á útivelli gegn Arsenal í maíbyrjun er ljóst að liðið verður að gjöra svo vel og vera taplaust næstu tvo mánuðina til að eiga séns. Að mínu mati náum við Everton ekki ef að annað eða bæði af þessu tvennu gerist:
Við náum ekki að vinna Everton á Anfield eftir 2 vikur. Ef við gerum jafntefli eða töpum þeim leik getum við gleymt þessu.
Ef við töpum fleiri en einum leik og gerum fleiri en fjögur jafntefli.
Af þessu má reikna það út að Liverpool þarf að mínu mati að lágmarki að vinna 6 leiki, gera 4 jafntefli og tapa einum leik í 11 síðustu til að komast í 4. sætið. Þar bætist við að Everton-leikurinn verður að vera sigurleikur, ekkert annað kemur til greina.
Það myndi gefa okkur 22 stig í viðbót, sem þýddi að við enduðum tímabilið með 65 stig … eða 5 stigum meira en í fyrra. Þá voru 60 stig nóg til að ná 4. sætinu, ég held að 65 stig ættu að duga okkur í vetur, eins lengi og við pössum okkur að vinna Everton á Anfield.
Vandamálið er bara það að ég er ekkert viss um að við sigrum Everton á Anfield. Ég hef horft á marga leiki með Everton í vetur og ég hef aðeins einu sinni séð þá yfirspilaða, gegn Arsenal á Goodison í annarri umferðinni. Þeir hafa staðið uppí hárinu á liðum á borð við Man U, Chelsea og okkur án mikilla erfiðleika auk þess sem þeir hafa klárað þessa minni leiki nær undantekningarlaust. Hafa allavega ekki verið að tapa mörgum leikjum í vetur.
Bottom line: vinna Everton á Anfield, tapa ekki meira en einum leik og gera ekki fleiri en 4 jafntefli. Ef Everton tapa þá fyrir okkur og einum öðrum leik, og gera 4 jafntefli eins og við, myndi það nægja okkur til að fara uppfyrir þá.
Maður heldur í vonina.
Samt maður, ef við dr*llum í brækur á laugardag gegn Newcastle og Everton vinna heimaleikinn við Blackburn á sunnudag, þá gæti þetta ‘kapphlaup’ verið búið eftir þrjá sólarhringa maður. Þá verð ég sko dapur!