beach
« Charlton 1 - L'pool 2 | Aðalsíða | Húmor... »

02. febrúar, 2005
Boltaferð til Liverpool um helgina.

Jæja, það er komið að því. Eins og glöggir menn hafa tekið eftir undanfarna daga hefur Einar Örn verið fjarverandi, en hann fór til útlanda á laugardaginn síðastliðinn og verður í tvær vikur, upptekinn við vinnu. Þá vill svo skemmtilega til að ég er sjálfur að fara út til Liverpool-borgar á föstudagsmorgunn í þeim tilgangi að horfa á okkar ástkæra lið spila gegn Fulham á laugardag (og djamma feitt alla helgina!) og þar sem ég kem ekki heim fyrr en á sunnudagskveldið erum við í fyrsta sinn í þeirri aðstöðu að hvorugur okkar getur uppfært síðuna yfir helgina.

Við höfum samt fengið góða hjálp og á meðan ég verð úti mun hann Benni Jón ofurLiverpoolpenni væntanlega láta heyra aðeins í sér. Hann ætlar sem sagt að redda okkur með leikskýrslu á laugardaginn að leik loknum, auk þess sem hann mun kannski tjá sig eitthvað hérna um stórfréttir helgarinnar, EF eitthvað stórt gerist.

Annars mun ég uppfæra að einu leyti nokkuð oft yfir helgina. Áhugasamir geta kíkt á MBloggið mitt yfir helgina fyrir nýjustu myndirnar af því sem ég sé. Ég mun eflaust senda frá stöðum eins og Bítlasafninu, miðbæ borgarinnar, Anfield og leiknum á laugardeginum og svo loks skoðunarferðinni um Anfield á sunnudeginum … svo fátt eitt sé nefnt. Þannig að endilega kíkið á þá síðu og sjáið hvað kallinn er að gera af sér þarna úti. :p

Ég kem með upphitun fyrir þennan leik annað kvöld - óvenju snemma - þar sem ég fer út snemma á föstudag og eins og áður sagði, þá mun Benni Jón redda okkur yfir helgina. Ekki vera leiðinleg við hann. :-)

Og koma svo … You’ll neeeeeeveeeeeeeer waaaaaalk aloooooneeeee!
Þarna verð ég á laugardag!!! Gaman! Gaman!!!
Þetta verður yndislegt… smile

.: Kristján Atli uppfærði kl. 22:28 | 281 Orð | Flokkur: Almennt
Ummæli (4)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Landslið · Leikmannakaup og sölur · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Upphitun · Vangaveltur · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·L'pool 2 - Kaunas 0
·Kaunas 1 - L'pool 3
·Liverpool 4 - Olympiakos 3
·T.N.S. - Liverpool 0 - 3
·Liverpool 3 - T.N.S. 0

Síðustu Ummæli

Daði: Skemmtu þér vel bara. ...[Skoða]
Kristján Atli: Heh... við sjáum til með það. Kæmi mér e ...[Skoða]
Páló: því miður hef ég ekki trú á að Benni Jón ...[Skoða]
Eiki Fr: BENNI JÓN *KLAPP KLAPP KLAPP* BENNI JÓ ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Hvað þarf Morientes til að sýna sitt besta?
· Rafa enn brjálaður vegna Gonzales
· Þriðji penninn
· Dudek og Medjani
· Meiðsli, meiðsli, meiðsli (uppfært: meiðsli)
· Newcastle í viðræðum við Real (uppfært: Og Man U líka!)

Tenglar

Einar :: Vefleiðari

JupiterFrost

NewsNow Liverpool

ESPN

Cubs

BBC

Liverpool (official)

Liverpool.is

This Is Anfield




Við notum
Movable Type 3.121

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License