beach
« Fernando vill bara Liverpool! | Aðalsíða | Byrjunarliðið komið »

25. desember, 2004
W.B.A. á morgun!

Jæja … vonandi hafa allir notið sín yfir jólin, og munu vonandi gera áfram næstu dagana! Maður er í sannkölluðu hátíðarskapi og þótt maður voni að okkar menn hafi notið sín yfir jólin þá verð ég að segja að ég vona líka innilega að þeir hafi getað náð einbeitningu í dag og á morgun fyrir þennan mikilvæga deildarleik okkar.

Á morgun, annan dag jóla, er það W.B.A. sem við þurfum að heimsækja á The Hawthorns. W.B.A. komu upp úr fyrstu deildinni í ár eftir að hafa fallið niður í hana fyrir einu og hálfu ári. Þegar við mættum þeim síðast á útivelli unnum við 0-6 útisigur og Michael nokkur Owen skoraði fjögur mörk. Owen verður að sjálfsögðu fjarri góðu gamni á morgun en Milan Baros, sem skoraði hin tvö af sex mörkum okkar síðast, verður í fullu fjöri og vonandi reiðubúinn að bæta við markatölu sína gegn West Brom.

Líklegt byrjunarlið? Nú, það eru ekki miklar fréttir að hafa af leikmannamálum. Josemi verður frá í sex vikur en hann var hvort eð er ekki í liðinu í síðasta leik. Þá var Didi Hamann hvíldur í síðasta leik gegn Newcastle á Anfield og því kæmi mér ekkert á óvart ef hann kemur aftur inn í liðið á morgun.

Hins vegar þykir mér yfirgnæfandi líklegast að Rafa Benítez muni stilla upp óbreyttu liði á morgun, sem yrði þá svona:

Dudek

Finnan - Carragher - Hyypiä - Riise

García - Gerrard - Alonso - Kewell

Baros - Mellor

Auðvitað er Chris Kirkland orðinn heill og því spurning hvort hann kemur inn í markið. Held þó að Dudek haldi stöðu sinni. Og síðan verður maður að spyrja sig, ef Hamann á að koma inn í liðið, hver á þá að detta út? Auðvitað er Neil Mellor augljós kostur, en hann er búinn að skora 5 mörk í 11 leikjum fyrir okkur og skoraði í síðasta leik. Er það ekki starf framherja að skora mörk, öðru fremur? Hann er kannski ekki jafn flinkur leikmaður og Milan Baros með boltann, en það er Ruud van Nistelrooy ekki heldur. Neil Mellor skorar mörk og á meðan hann er að skora finnst mér rétt að hafa hann áfram í liðinu.

Þá virðist Milan Baros starfa betur með öðrum framherja, eins og hann sagði sjálfur eftir Newcastle-leikinn.

Að öðru leiti er ekki líklegt að breytingar verði. Núnez gæti komið inn fyrir García og eins Traoré fyrir Riise, en ég efast samt um það eftir góðan sigur í síðasta leik.

MÍN SPÁ: Ég held að við tökum þennan leik. Það verður ekki 0-6 útisigur eins og síðast en ég á fastlega von á því að við vinnum öruggan útisigur á morgun. Hvort við fáum á okkur eitt mark eða ekki veit ég varla, við höfum ekki haldið hreinu í 10 leikjum í röð núna. En við þurfum á morgun að einbeita okkur að því að skora meira en eitt mark, að mínu mati. Ég gæti séð okkur fyrir mér vinna svona 3-1 eða 4-1 sigur, og mér finnst bara yfirgnæfandi líkur á að Baros og Mellor skori báðir aftur, þar sem West Brom-vörnin hefur ekki verið upp á marga fiska í vetur.

Liverpool gáfu okkur ástæðu til að brosa yfir jólin með sigri á Newcastle. Vonandi gefa þeir okkur líka ástæðu til að brosa í vinnuvikunni á milli hátíða! :-)

Áfram Liverpool!

.: Kristján Atli uppfærði kl. 23:22 | 552 Orð | Flokkur: Upphitun
Ummæli (5)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Landslið · Leikmannakaup og sölur · Leikmenn · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Slúður · Topp10 · Upphitun · Vangaveltur · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Aggi

Síðustu leikir

·L'pool 2 - Kaunas 0
·Kaunas 1 - L'pool 3
·Liverpool 4 - Olympiakos 3
·T.N.S. - Liverpool 0 - 3
·Liverpool 3 - T.N.S. 0

Síðustu Ummæli

eikifr: MÍN SPÁ: Ef við spilum 4-4-2 vinnum við ...[Skoða]
Ólafur Örn: Ég er sammála því að Dudek muni sennileg ...[Skoða]
Kristján Atli: Ég er sammála þér Einar í því að Pongoll ...[Skoða]
Einar Örn: Nei nei, hvaða vitleysa. Við vinnum þen ...[Skoða]
Svavar: Mín tilfinning er ekkert alltof björt fy ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Hvað þarf Morientes til að sýna sitt besta?
· Rafa enn brjálaður vegna Gonzales
· Þriðji penninn
· Dudek og Medjani
· Meiðsli, meiðsli, meiðsli (uppfært: meiðsli)
· Newcastle í viðræðum við Real (uppfært: Og Man U líka!)

Tenglar

Einar :: Vefleiðari

JupiterFrost

NewsNow Liverpool

ESPN

Cubs

BBC

Liverpool (official)

Liverpool.is

This Is Anfield




Við notum
Movable Type 3.121

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License