17. desember, 2004
Jahá, sagði ég ykkur ekki!? Við drógumst gegn Bayer Leverkusen í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Þetta eru frábærar fréttir fyrir okkur, einfaldlega af því að við fáum séns á að þakka pent fyrir síðasta skipti sem við mættum þeim. Það eru tveir mánuðir í þessa leiki og það getur margt breyst á tveim mánuðum, við verðum vonandi komnir í fljúgandi gír þegar að þessum leik kemur … ég er bjartsýnn fyrir þessar viðureignir, bring it on!!!
Ó, og svo eiga hin tvö liðin sem ég held eitthvað með í Evrópu alveg frábæra leiki: AC Milan fær að éta manchester united
lifandi, mér til mikillar ánægju … og svo er stórviðureign þessarar umferðar BARCELONA og Chelsea. Ég get ekki lýst því hvað ég mun njóta þess mikið að horfa á Barcelona taka snobbhausana frá London í nefið… auðvitað geta United og Chelsea alveg tekið þetta, en að mínu mati eru AC Milan og Barca með sterkustu liðin í þessari keppni og því er ég mjög ánægður að þau skyldu lenda á United og Chelsea. Hehe…
En allavega, ég held að það geti allir glaðst yfir þessum fréttum. Ekki af því að Leverkusen verði auðveldir, við gerðum þau mistök síðast að halda það … þetta lið er rooosalega sterkt og þykir miklu sigurstranglegra liðið í þessum viðureignum við okkur, en eins og ég segi þá verður okkar mönnum mikið í mun að ná að hefna sín eftir vorið 2002. Þetta verður yndislegt!