beach
« Baros frá í mánuð (+viðbót) | Aðalsíða | Boro á morgun! »

19. nóvember, 2004
Vitleysan heldur áfram!

Svo virðist sem Skjár 1 menn læri ekki af reynslunni og ætli aftur að troða Chelsea inní beina útsendingu á Liverpool leik. Matti skrifar góða færslu um þetta hér.

Magnað hversu mikil þessi Chelsea dýrkun er hjá Ská Einum. Chelsea stuðningsmenn geta einfaldlega farið á bari þegar þeirra lið er ekki í sjónvarpinu. Ef marka má mætingu hjá Chelsea mönnum á barina, þá eru þeir nú býsna fáir á Íslandi.


Viðbót (Kristján Atli): Ég skrifaði nú ítarlegan pistil um þetta klúður hjá S1 í síðustu viku og vonaði þar með að þetta rugl þeirra væri úr sögunni, þar sem ég veit að pistli mínum var fylgt eftir með miklum mótmælum af hálfu Liverpoolklúbbsins á Íslandi.

Það hafði greinilega ekki áhrif, þeir halda áfram að berja höfðinu við steininn og sleikja gö*nina á Chelsea-aðdáendum þessa lands, sem ég fullyrði að hafi flestir ekki haldið með liðinu nema í minna en tvö ár. Flestir. Allavega, Matti vitnar í bréf sem hann fékk frá Snorra Má en hann virðist halda að með því að skipta yfir á Chelsea-leikinn, en hafa Liverpool-leikinn í gangi á meðan í litlu boxi efst uppí horninu á skjánum séu þeir að “bæta enn við þjónustuna við áhorfendur enska boltans”.

Hvaða bull er það? Liverpool eru í beinni. Góð þjónusta við þá sem eru að horfa á Liverpool í beinni … er að sýna Liverpool í beinni! Á öllum skjánum!!! Ekki að sýna Liverpool-leikinn á skjánum, nema þegar eitthvað gerist hjá Chelsea … þá er Liverpool-leikurinn í örflögumynd uppí horninu á sjónvarpstækjum landsmanna.

Það er rugl. Liverpool-menn eru að horfa á Liverpool-leik. Þeir eru ekki að “bæta” eitt né neitt með þessu rugli. Þeir eru að DRAGA ÚR þjónustu við áhorfendur leiksins Middlesbrough og Liverpool.

Í pistli mínum fyrir rúmri viku sagði ég að það væri sama hvaða lið ættu í hlut, ef leikur væri auglýstur sem aðalleikur ætti hann bara að vera á skjánum allan tímann og ekkert rugl. Málið er bara það að nú er þetta að gerast í annað sinn, og þar með er farið að myndast mynstur í hegðum S1. Mynstrið er nokkurn veginn svona:

1: Ef Liverpool er að spila á sama tíma og Chelsea, og Liverpool eiga að vera í beinni, þá skal skipta yfir á Chelsea þegar eitthvað markvert gerist.

2: Ef önnur lið en Liverpool eru að spila á sama tíma og Chelsea, og þessi önnur lið eiga að vera í beinni, þá er allt í lagi að leyfa þeim leik að njóta sviðsljóssins.

3: Hins vegar þá skal sýnt frá Chelsea-leik með einum eða öðrum hætti hverja einustu fjandans helgi. Ennfremur skal Chelsea-liðið vera eina liðið af tuttugu í ensku Úrvalsdeildinni sem nýtur þessara forréttinda.

4: Eiður Smári spilar með Chelsea, og því teljast reglur 1-3 sjálfkrafa réttar og góðar.

Fokking rugl… það liggur við að maður sleppi því að horfa á þennan leik á morgun, í mótmælaskyni. Myndi kannski gera það ef ég gæti, en ég er háður mínu liði og verð því að horfa … en það er einmitt það sem S1-liðar treysta á, að við beygjum okkur bara fram og tökum við því aftan frá og höldum samt áfram að horfa, af því að við verðum að horfa á Liverpool.

Rugl. Hvenær rennur samningur S1 við Úrvalsdeildina út? Ég ætla að leggja inn framlag í boltasjóð Sýnar þannig að þeir fái þetta örugglega aftur eftir tvo-þrjú ár…

.: Einar Örn uppfærði kl. 13:19 | 563 Orð | Flokkur: Enski Boltinn
Ummæli (14)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar?





Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Landslið · Leikmannakaup · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeildin · Slúður · Topp10 · Upphitun fyrir leik · Vangaveltur · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Síðustu leikir

·Liverpool 3-1 Fulham
·Charlton 1 - L'pool 2
·Komnir í úrslit Deildarbikarsins!!!
·Southampton 2 - "Liverpool" 0
·Burnley 1 - L'pool 0

Síðustu Ummæli

Einar Örn: Jamm, ég tók eftir þessu með hljóðið. ...[Skoða]
Hafliði.: Mig langar að bæta aðeins við þessa umræ ...[Skoða]
Daði: (smá reiði í gangi) Afhverju í fjanda ...[Skoða]
Einar Örn: Ég hef ekki blandað mér í þetta hingað t ...[Skoða]
Daði: Það sem ég skil ekki er afhverju S1 sýni ...[Skoða]
Óskar: Kristján, þú ert drulluharður. Þó þér þ ...[Skoða]
Stefán: Er þetta þýðing skv. orðabók menningarsj ...[Skoða]
Kiddi: Viðurkenni að það er skömminni skárra að ...[Skoða]
Kristján Atli: Mér er slétt sama hvort ég fæ enska bolt ...[Skoða]
Páló: þeir hafa líka verið að sýna flesta leik ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Star Man
· Myndirnar frá Liverpool!
· Tíðindalítil vika...
· Sigurgleði
· Leiðinlegir fyrrverandi leikmenn
· Liverpool-helgi: ferðasagan mín!

Tenglar

Einar :: Vefleiðari

JupiterFrost

NewsNow Liverpool

ESPN

Cubs

BBC

Liverpool (official)

Liverpool.is

This Is Anfield




Við notum
Movable Type 3.121

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License