beach
« Manchester | Aðalsíða | Birmingham á morgun! »

05. nóvember, 2004
Afmælisbók + Liðsmynd

Ókei, þetta er smá plögg en mér finnst þetta eiga vel við hér. Afmælisbók Liverpoolklúbbsins á Íslandi verður gefin út með pomp og prakt á morgun, en hún er gefin út í tilefni af því að í vor voru liðin 10 ár frá því að klúbburinn var fyrst stofnaður.

Bókin er mjög vegleg og skartar m.a. viðtölum, myndum og fróðleik auk sögu klúbbsins, sem ég skrifaði. Þannig að þetta er vafalítið eitthvað sem allir Liverpool-aðdáendur á Íslandi vilja eiga uppí hillu hjá sér, enda frábært að geta gluggað í svona eigulegum grip!

10ara.jpg

Annars má sjá allar frekari upplýsingar um hvernig hægt er að nálgast eintak af bókinni hér á Liverpool.is.


Nú, í öðrum fréttum þá var í dag loksins gefin út LIÐSMYND fyrir tímabilið 2004/05. Þessi mynd er frekar seint á ferðinni en myndatakan tafðist víst vegna þess að í vor þurfti að bíða eftir að þeir Xabi Alonso, Luis García og Antonio Núnez kæmu til liðs við hópinn. En nú er búið að ganga frá þessu og myndin er komin út.

Og hún er asnaleg, að mínu mati. Það er eitthvað við hana sem er bara rangt … eins og einhver hafi fiktað við hausana á Salif Diao, Patrize Luzi, Vladimir Smicer, Jonny Riise og svona. Það er eitthvað við hana sem er bara illa gert … enda eru Liverpool-aðdáendur að rakka þessa mynd niður á spjallþræði á RAWK.com.

Skrýtin mynd, allavega, en samt gott að sjá þá Cissé, Alonso, García, Josemi og Nunez raða sér upp með samherjum sínum.

.: Kristján Atli uppfærði kl. 14:45 | 254 Orð | Flokkur: Almennt
Ummæli (4)



Flokkar

Almennt · Enski Boltinn · Landslið · Leikmannakaup · Leikskýrslur · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeildin · Slúður · Topp10 · Upphitun fyrir leik · Vangaveltur · Þjálfaramál ·

Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Einar Örn

Kristján Atli

Síðustu leikir

·Liverpool 3-1 Fulham
·Charlton 1 - L'pool 2
·Komnir í úrslit Deildarbikarsins!!!
·Southampton 2 - "Liverpool" 0
·Burnley 1 - L'pool 0

Síðustu Ummæli

bergur: liverpool eru bestir. auðvitað vilja öll ...[Skoða]
SSteinn: Sá þetta seint, en I'll give it my best ...[Skoða]
Einar Örn: Ég fór yfir myndina af aðalliðinu og það ...[Skoða]
Kristinn: Já þetta er eins og illa photoshoppuð my ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Birmingham í dag!
· Besti miðjumaður Liverpool FC: (+viðbót)
· Xabi og Djib að hressast
· Star Man
· Myndirnar frá Liverpool!
· Tíðindalítil vika...

Tenglar

Einar :: Vefleiðari

JupiterFrost

NewsNow Liverpool

ESPN

Cubs

BBC

Liverpool (official)

Liverpool.is

This Is Anfield




Við notum
Movable Type 3.121

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License