30. október, 2004
Ok, ég mæli ekki með þessari mynd fyrir viðkvæma, en hér sést hversu slæmt fótbrotið hans Cisse er.
Núna er bara spurning hvað Benitez gerir. Hvaða möguleika höfum við? Það er ljóst að MIKIÐ mun mæða á Milan Baros og líklega mun Benitez byrja á því að hafa hann og Luis Garcia saman frammi.
Við þurfum samt fleiri möguleika. Spurning hvort Le Tallec verði kallaður aftur úr láni eða hvort fleiri menn verða keyptir. Vonandi fær nú Florent Sinama-Pongolle tækifæri til að sanna sig. Hlutirnir breytast fljótt í fótbolta.
Það er ekkert komið fram um hversu lengi Cisse verður frá, en það er alls ekki ólíklegt að þetta tímabil sé búið fyrir hann. Ég legg til að við hættum að spila á Ewood Park!
Uppfært (Einar Örn): Niðurstaðan er fengin. Þetta er einsog við óttuðumst, Cisse leikur að öllum líkindum ekki meira með Liverpool á þessu tímabili. Þetta er hræðilegt! Greyið Djibril Cisse. Við Kristján vonum svo innilega að hann nái sér sem fyrst.
Það var líka bent á það í kommentunum að Le Tallec er líka meiddur og verður frá næstu tvo mánuði. Og svo er auðvitað líka rétt að Sinama-Pongolle er einnig meiddur, en hann verður vonandi leikfær á næstu dögum.
Spurningin er núna helst sú hvað Benitez gerir á næstu dögum og vikum. Það er spurning hvort hann reynir að fá leikmenn að láni, eða hvort hann vilji kaupa leikmenn. Hann veit eflaust að núna þegar önnur lið vita að Liverpool eru “desperate”, þá reyna þau eflaust að fá alltof hátt verð fyrir sína leikmenn, þannig að það er spurning hvort það sé réttara að reyna að fá leikmann að láni til að byrja með.
Líklegast er að Garcia spili mest, en þá opnast staðan hans á hægri kantinum. Þar eru nokkrir möguleikar. Til að mynda gæti Finnan haldið áfram að spila þá stöðu (sem væri hræðilegt, að mínu mati) eða þá Kewell gæti skipt um kant og Riise haldið áfram á þeim vinstri. Einnig er mögulegt að þegar loksins Nunez nái sér af meiðslum komi hann inná hægri kantinn.
En við verðum bara að bíða og sjá hvað gerist. Það eina, sem við getum gert núna er að vona að Cisse nái sér aftur. Hann er bara 22 ára gamall, svo það er vonandi að hann nái sér af þessum meiðslum.