23. júlí, 2004
Fabricio Coloccini, sem við höfum fjallað um áður, segist vera í viðræðum við Liverpool, samkvæmt Sky.
Þetta virðist vera nokkuð trúverðugur orðrómur. Coloccini sló í gegn í spænska boltanum, en hann var í láni frá AC Milan. Hann er ungur og sterkur miðvörður. Hann segir í viðtali:
“I’ve heard the Liverpool reports. We’re in talks and the offer interests me. I’m proud a club the size of Liverpool rates me, I really like British football and follow it a lot.
And for the coach who won the Spanish championship to ask for me - given all the players in Spain - is a boost. I’ll be very appreciative if the deal comes off. I wouldn’t let him down.”
Þannig að það er augljóst að Coloccini vill koma frá Milan til Liverpool. Þá er bara spurning hversu mikinn áhuga Benitez hefur á að fá hann til liðsins.