beach
« Bjartsýnismaðurinn Einar | Aðalsíða | Álftanes »

07. janúar, 2004
Siiiigur

Aaaaaaaaah, Liverpool vann.

Ég var næstum því búinn að gleyma þessari tilfinningu. Þessari sælutilfinningu, sem maður fær eftir að hafa öskrað allt kvöldið og liðið manns vinnur. Svo stendur maður upp og einhverjir Man United aðdáendur fara að setja útá leik Liverpool eða stöðu liðsins í deildinni. Og manni er nákvæmlega sama! Þetta hljómar bara einsog suð í eyrunum á manni, því Liverpool vann og þá skiptir ekkert annað í þessum heimi máli.

Einhvern veginn var þetta allt nógu yndislega súrealískt til að virka. Liverpool höfðu ekki unnið á Stamford Bridge síðan ég var 12 ára og þegar maður sá liðsuppstillinguna fékk maður sjokk. Heskey einn frammi, BRUNO CHEYROU inná (hann hefur aldrei leikið vel fyrir Liverpool), Henchoz í hægri bakverðinum og Traore í þeim vinstri.

Svo hefst leikurinn og Bruno Cheyrou og Emile Heskey eiga stórkostlegan samleik og skora frábært mark. Svona hlutir bara gerast ekki! Svo meiðist Dudek og einhver Patrice Luzi þarf að koma inná. Ég hef lesið um þennan gaur en hafði aldrei séð hann. Við Friðrik sögðum að annaðhvort myndi hann verja frábærlega eða klúðra hrikalega. Og hvað gerist, jú hann ver frábærlega. Svo er Diouf rekinn útaf vegna þess að skóreimin hans festist í reiminni hjá Mutu (þetta gerðist í alvöru!). En þrátt fyrir það þá ná Liverpool menn að halda áfram baráttunni og Chelsea ná varla að skapa sér eitt færi.

Þetta tímabil hefur verið svo hræðilegt og það hefur gerst svooo sjaldana að mér hefur liðið vel útaf Liverpool.

Þess vegna ætla ég að leyfa mér að njóta þessa sigurs einsog við hefðum verið að vinna titil. Það er magnað hvað maður er fljótur að gleyma öllu þessu slæma.

.: Einar Örn Einarsson uppfærði kl. 11:27 | 278 Orð | Flokkur: Liverpool
Ummæli (8)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu
Við þökkum þeim, sem tóku þátt í umræðunum.





Um Síðuna

Um Síðuna

Um höfundana

Aggi

Einar Örn

Hjalti

Kristján Atli

Sigursteinn

Síðustu leikir

·Watford 0 - Liverpool 3
·Liverpool 3 - Arsenal 6
·Liverpool 1 - Arsenal 3
·L'pool 3 - Bolton 0
·Tottenham 0 - Liverpool 1

Leit:

Síðustu Ummæli

Matti Á.: Jæja, Mutu missir þá titilinn skíthæll m ...[Skoða]
Mýslan: Finally!!!!!! segi ég líka....eeeeen sei ...[Skoða]
árni: mutu var e-ð að skipta sér af málunum og ...[Skoða]
Einar Örn: Ég sagði það sama um Mutu, en þeir sem s ...[Skoða]
Matti Á.: Hrikalega var ég stressaður síðustu 10 m ...[Skoða]
Emil: hehe, allt í góðu og Liverpool, takk kær ...[Skoða]
Einar Örn: United, Arsenal, Chelsea, West Ham aðdáe ...[Skoða]
Emil: Bíddu bíddu, var ekki eini alvöru United ...[Skoða]

Síðustu færslur

· Eru kaupin á Neill að klikka? (Uppfært: JÁ!)
· Ungverskur táningur
· Mun Sheva spila á Anfield?
· Liverpool búið að hafa samband við Fifa vegna Mascherano.
· Lucas Neill kemur í vikunni
· ... 21 árs og afskrifaður?

Tenglar

Einar :: EOE.is

Kristján Atli.com


NewsNow Liverpool

SKY

Liverpool Echo

BBC

Liverpool (official)

YNWA spjallborð

RAWK spjallborð

Soccernet

The Guardian

Daily Telegraph

Independent

LFC History

Liverpool.is

This Is Anfield

UEFA


Staðan í ensku

Tölfræði í ensku


The Liverpool Way Blog

RAWK blog

Kop Blog

Flokkar

Almennt · Auglýsingar · Enska bikarkeppnin · Enski Boltinn · Fjölmiðlar · HM 2006 · HM Félagsliða · Kannanir · Landslið · Leikmannakaup · Leikmenn · Leikskýrslur · Leikvangur · Liðsuppstilling · Liverpool · Meiðsli · Meistaradeild · Myndbönd · Sjónvarp · Slúður · Topp10 · Um síðuna · Upphitun · Vangaveltur · Veðmál · Þjálfaramál ·




Við notum
Movable Type 3.33

Efni þessarar síðu er birt undir skilmálum frá Creative Commons.

Creative Commons License