Liverpool Bloggið

Æfingaleikur: Liverpool – Valencia 2-0
Uppfært: Leik lokið

Æfingatímabilinu lauk með góðum sigri og ágætum leik gegn spænska liðinu Valencia, lokatölur 2-0 með mörkum frá Andy Carroll og Dirk Kuyt, þó mér sýndist reyndar Kyrgiakos eiga þetta mark.

Ljómandi gott að klára undirbúninginn með sigri og gott að halda hreinu loksins þó þessi leikur komi ekki til með að sitja lengi í minningunni.

Besti kafli leiksins var fyrstu sjö mínúturnar er við pressuðum gestina stíft og uppskárum á endanum gott mark. David Albelda sýndi reyndar að hann er að verða fullgamall er hann sendi hroðalega sendingu til baka á markmann sem Andy Carroll náði og slapp aleinn í gegn. Carroll þurfti reyndar tvær tilraunir til að skora þar sem fyrra skot hans fór í stöngina og meðfram markinu en hann var fyrstur til að ná í boltann og skilaði honum í netið.

Eftir þetta dó leikurinn nokkuð út þó okkar menn hafi haldið yfirhöndinni allan leikinn, fannst aðeins vanta X factorinn í sóknarleikinn á köflum en hefði þessi leikur skipt einhverju máli væri ég alveg sáttur við þessa niðurstöðu og leik okkar manna.

Seinna markið kom á 90.mínútu eftir aukaspyrnu frá Joe Cole sem Valencia menn náðu ekki að hreinsa frá markinu, Kuyt náði að pota í boltann og líklega féll hann fyrir fætur Kyrgiakos sem mér sýndist moka honum yfir marklínuna, en markið er a.m.k. skráð á Kuyt og því rengjum við það ekki frekar.

Þetta var auðvitað fyrsti leikur nýju leikmannanna á Anfield sem áttu misgóðan dag. Downing var með betri mönnum vallarins og ógnaði vel upp vinstri kantinn og lofar mjög góðu fyrir veturinn. Charlie Adam var einnig flottur sem stjórnandi á miðjunni þó ekki hafi borið neitt gríðarlega mikið á honum. Henderson var síðan ekkert sérstakur í þessum leik þó það sé auðvitað allt of snemmt að fara dæma hann fyrir frammistöðu í svona leik.

Af öðrum leikmönnum fannst mér einna mest gaman að sjá Agger, hann er í fínu formi og að spila eins og hann á að sér að gera. Carroll var líka ágætur og með smá meiri leikæfingu verður hann fljótlega sama skrímsli í boxinu og hann var hjá Newcastle í fyrra. Hann mun fá þjónustu hjá Liverpool í vetur, það er ljóst. Aquilani byrjaði líka í dag og átti ekkert sinn besta dag, var full langt frá Carroll fannst mér og ógnaði ekki eins mikið og hann hefur verið að gera fyrri leikjum sumarsins. Eina leiðinlega við daginn var að Johnson fór snemma útaf meiddur, virkaði ekkert alvarlegt svosem og Martin Kelly kom inná fyrir hann og stóð sig vel.

Gerrard, Suarez, Meireles, Skrtel, Insúa og Poulsen sem skartaði peysu með hestum á voru allir í stúkunni (nema Suarez) og ættu að verða klárir bráðlega, eins var Rafa Benitez mættur á Anfield í dag að sjá sýn gömlu félög kljást og það er óhætt að fullyrða að þetta Valencia lið var ekkert í líkingu við liðið sem mætti síðast á Anfield, undir stjórn Benitez.

Næst er það Sunderland á Anfield, bring it on.

Uppfært 15:35 – Byrjunarliðið fyrir leikinn er komið:

Reina

Johnson – Carragher – Agger – Aurelio

Henderson – Spearing – Adam – Downing

Aquilani

Carroll

Bekkur: Jones, Doni, Cole, Maxi, Kyrgiakos, Kuyt, Lucas, Ngog, Kelly, Flanagan, Robinson.

Áhugavert lið í dag, vörnin líklega eins og við viljum hafa hana miðað við hópinn í dag, Spearing er áfram á miðjunni og virðist vera í plönum Dalglish fyrir þetta tímabil þó það sé gott að sjá Lucas aftur á bekknum. Henderson verður líklega aðeins hægramegin á miðjunni og Downing á kantinum með Aquilani aðeins fyrir framan miðjumennina. Þó ég búist við því að þeir skipti endalaust um stöður.

Leikurinn er í beinni á Stöð 2 Sport 2 og niðurtalning í “kick off” er hafin á LFC TV, leikurinn hefst 16:30.

Núna er tíminn til að fullyrða að Juan Mata sé að koma til Liverpool og sé bara líklega mættur…með Valencia sem verður síðasta upphitunarbanið áður en við förum á stóra sviðið um næstu helgi.

Fátt hægt að nota til að gera þennan leik spennandi eða merkilegan utan þess að Liverpool er auðvitað að spila og þetta er fyrsti leikurinn á Anfield  hjá nokkrum leikmönnum sem leikmenn Liverpool.

Kick off er 16:30 að okkar tíma (17:30 úti) og við notum þennan þráð til að fjalla um leikinn. Uppæfæri svo hérna þegar búið er að tilkynna byrjunarliðin og svo auðvitað eftir leik.

Galatasaray 3 – Liverpool 0
Leik lokið

16 dagar í fyrsta leik í deild og við að fara til Tyrklands að fara að spila við gott lið sem ætti að hefja deildina sína um næstu helgi.

Á maður þá að stilla upp liði þar sem kannski 1 eða 2 eru að fara að spila fyrsta deildarleikinn?

Ég segi nei, en kóngurinn segir já!  Það segir eiginlega allt um leikinn.  Við vorum teknir að stela snúðum í bakaríinu þar sem ungt lið og leikmenn sem eiga ekki að fá að æfa með liðinu fengu mínútur.  Í hálfleik komu Kuyt og Aquilani inn og í 25 mínútur gátum við sent boltann á milli okkar.  En þá var ákveðið að setja Spearing inná í stað Shelvey og stuttu seinna fleiri ungir inn.  Spearing lagði upp mark fyrir Galatasaray og annar 0-3 ósigurinn í röð staðreynd.  Við höfum fengið á okkur þrjú mörk í öllum leikjum sumarsins.

Ég held okkur sé að verða ljóst að Dalglish og félagar leggja ekki mikið upp úr æfingaleikjum, þessi var að mínu mati marklaus.  Eina jákvæða fannst mér að sjá Joe Cole í fínu líkamsformi og leggja sig fram.  Á fyrstu 25 mínútum seinni sá maður glefsur af góðum leik, en svo bara datt það uppfyrir.

Næst er það Vålerenga á mánudaginn og þá hljótum við að fara að sjá alvöru lið í action!  Þetta var tímasóun fannst mér…

Skiptingar í hálfleik

Jones inn fyrir Doni, Kuyt og Aquilani koma inn fyrir Robinson og Degen.  Cole á vinstri og Kuyt á hægri kanti, Aquilani undir Carroll.  Þeta ætti að laga eitthvað!!!

Hálfleikur

Ég var búinn að lýsa þeirri skoðun minni að ég teldi líklegt að við sæjum eitthvað í þessum leik sem við hugsanlega gætum litið á sem líklegt til að virka á tímabilinu.

Hversu rangt hafði ég fyrir mér.

Að mínu mati óskiljanleg liðsuppstilling og mikið vorkenni ég Carroll að vera hafður með í þessum leik með þessari liðsuppstillingu.  Galatasaray-liðið er mörgum klössum betra lið en það sem við erum að stilla hér upp í kvöld.  Erum 2-0 undir og það er meira á leiðinni held ég.  Vona að við sjáum Kuyt, Spearing og Aquilani fljótlega!!!

17:12

Liðið komið:

Doni

Flanagan – Kelly – Kyrgiakos – Robinson

Poulsen – Shelvey

Degen – Cole – Insua

Carroll

Bara 7 manns á bekknum eins og í alvöru leik:  Jones, Wisdom, Ayala, Spearing, Coady, Kuyt, Aquilani.

Það er nefnilega það, Philip Degen fær leik og allt. Við erum að far að horfa á öðruvísi leik en ég reiknaði með.  Verður gaman að sjá Kelly í hafsentinum.  Gæti líka verið þannig að Robinson sé á kantinum og Insua í bakverði.

Það er uppselt á völlinn og verður alvöru próf fyrir þá sem fá að spila!  Skemmtilegt verður að sjá hverjir spila 90 mínútur.

15:38

Leikið er á nýjum velli Gala, Türk Telecom Arena, sem var opnaður 15.janúar á þessu ári.  Þann 18.mars mældist hæsti hávaði sögunnar á knattspyrnuvelli þarna, enda aðdáendur félagsins með eindæmum háværir.

Liðið átti erfitt í fyrra, lenti í 8.sæti í deildinni og er nú ákveðið í að bæta þann árangur upp.  Þekktustu leikmenn þess koma utan Tyrklands, utan Arda Turan sem er fyrirliði þeirra og lykilmaður í tyrkneska landsliðinu.  Meðal leikmanna Gala eru Tomas Ujfsalusi, Felipe Melo, Bogdan Stancu og okkar ástkæri Milan Baros.  Í sumar bættist í þeirra hóp Svíinn knái Johan Elmander sem kom frá Bolton og var um sinn orðaður við okkur.  Semsagt, leikur gegn hörkuliði á glæsilegum velli framundan!

Upphitun

Fellur í minn hlut að fá að fylgjast með þessum leik fyrir kop.is og ég ætla að reyna að blanda saman upphitun og leikskýrslu með því að færa stöðugt neðar eldri atburði.

Höldum þessum þræði um leikinn, en notum þá sem neðar eru til að ræða leikmannamál og annað skemmtilegt.

Fyrir það fyrsta þá virðist ljóst að leikurinn í dag er annar tveggja leikja þar sem halda á áfram að dæla út mínútum á menn.  Þeir sem spila í kvöld verða hugsanlega með minna hlutverk á mánudaginn gegn Vålerenga í Osló, þeir sem ekki eru með í kvöld munu spila þar.  Helst er að nefna að Downing, Henderson og Adam fóru ekki til Tyrklands og að auki er Reina enn meiddur, Gerrard líka og Lucas og Suarez ekki komnir til æfinga.  Ekki enn frétt hvort Johnson og/eða Skrtel séu í hópnum en Aquilani var mættur til Tyrklands í morgun og því líklega með.

Uppfæri svo reglulega fram að leik, stutt yfirlit í hálfleik og svo skýrsla eftir leik…

Malaysia XI – Liverpool 3-6
Uppfært: Leikskýrsla

Þú veist að þetta jaðrar við að vera vandamál þegar þú ert farinn að rífa þig upp til að horfa á æfingaleik í júlí sem fer fram í Malasíu að morgni til að íslenskum tíma. Flestir hér inni eiga auðvitað við þetta “vandamál” að stríða og það er ekki hægt annað en vera sáttur við æfingaleik sem inniheldur níu mörk.

Dalglish fór heim til að ganga frá kaupunum á Downing og Doni og því var það Steve Clarke sem stillti liðinu svona upp í þessum leik:

Byrjunarliðið:

Jones

Flanagan – Carragher – Agger – Robinson

Coady – Spearing – Adam – Cole

Meireles

Carroll

Bekkur: Gulacsi, Hansen, Maxi, Pacheco, Kyrgiakos, Kuyt, Wilson, Ngog, Poulsen, Shelvey, Kelly, Wisdom, Aquilani, Insua.

Tempóið í fyrri hálfleik var ekkert gríðarlegt og líklega var nokkuð heitt í Malasíu í dag. Charlie Adam var að spila sinn fyrsta leik í byrjunarliði Liverpool og var líklega besti leikmaður okkar í fyrri hálfleik og átti nokkrar álitlegar sendingar sem lofa góðu upp á tímabilið. Hann skoraði líka fysta mark leiksins er hann endurtók vítaspyrnu sem Andy Carroll fékk gefins frá dómara leiksins er hann var að reyna að ná fyrirgjöf frá Adam. Adam tók spyrnuna reyndar tvisvar þar sem dómarinn var eitthvað ósáttur við fyrri spyrnuna en skotinn afgreiddi báðar af miklu öryggi.

Mohd Safiq Rahim leikmaður Malasíu jafnaði síðan metin rétt fyrir leikhlé með þræl keppnis marki úr aukaspyrnu. Brad Jones átti reyndar að öllum líkindum að eiga þennan bolta, annaðhvort það eða þá að hann stillti veggnum fáránlega upp því leiðin að marki virtist ansi greið úr spyrnunni.

Í leikhléi skipti Clarke öllum okkar varamönnum nema Pacheco, Wisdom og Hansen inná og byrjunarliðið í seinni hálfleik var því svona:

Gulacsi

Kelly – Kyrgiakos – Wilson – Insúa

Poulsen – Shelvey

Kuyt – Aquilani – Maxi

N´Gog

Þar með var besti leikmaður vallarins, Alberto Aquilani kominn inná og hann tók við stjórninni á miðjunni og gerði það svo vel að meira að segja eigandi félagsins, hinn nýji Ryan Babel, twittaði þessu í seinni hálfleiknum:

John W. Henry

One missing link last year: Acquilani. Put the ball near Ngog and the goal and it’s going in.

Mjög hressandi að sjá þetta og vonandi merkir þetta að ítalinn fái annan séns á Anfield. Annar leikmaður sem gaman var að sjá aftur Emiliano Insúa spilaði líka vel og skilaði meiru til sóknarleiks okkar manna í þessum seinni hálfleik heldur en Konchesky allt árið í fyrra.

Liverpool var svosem ekki með neina flugeldasýningu í þessum leik og úrslitin bara nokkuð fáránleg en líklega segir þetta eitthvað smá um mótherjann. Eftir rúmlega klukkutímaleik náði David N´Gog loksins að koma okkar mönnum aftur yfir í leiknum og það með ekki litlu heppnismarki. Insúa sem var að spila eins og kantmaður sendi bolta fyrir markið sem fór í bakvörðinn, þaðan í miðvörðinn sem sparkaði boltanum í hinn miðvörðinn þaðan sem hann rúllaði óvænt fyrir fætur N´Gog sem gat ekki annað en skorað. Stórglæsilegt mark auðvitað.

N´Gog var ekki lengi að bæta öðru marki við eftir góða sendingu frá Aquilani. Maxi bætti fjórða markinu við eftir góða fyrirgjöf frá Insúa sem fékk auða flugbraut upp kantinn eftir að Aquilani fann hann með góðri sendingu. Staðan því orðin 1-4 og leikurinn loksins í höfn.

Eitthvað gleymdist að láta Malasíu menn vita af því og þeir komu sér heldur betur aftur inn í leikinn, fyrst með hjálp frá Martin Hansen sem kominn var í markið og síðan frá dómara leiksins. Fyrra markið kom í kjölfar afar mikils klaufagangs Hansen í markinu sem missti að því er virtist saklausa fyrirgjöf beint fyrir fætur sókarmanns Malasíu sem þakkaði pent fyrir sig og minnkaði muninn. Örstuttu seinna fékk sami sóknarmaður, Sali, annað dauðafæri sem hann nýtti glæsilega. Hann virtist reyndar vera svona 3-4 metra fyrir innan vörn Liverpool þegar hann fékk sendinguna innfyrir en auðvitað var það fullkominn óþarfi að taka markið af kallgreyinu!

Maxi Rodriguez klárði leikinn svo með góðu skallamarki eftir fyrirgjöf frá Kuyt og Hollendingurinn fljúgandi geirnelgdi þetta síðan sjálfur er hann hammraði inn sjötta marki Liverpool í leiknum.

Þetta var æfingaleikur og tempóið ekkert gríðarlegt. Að vanda er nákvæmlega ekkert hægt að lesa í æfingaleik og því ætla ég ekki einu sinni að reyna það. Það er bara alltaf gaman að sjá Liverpool spila og auðvitað sjá nýja leikmenn. Adam og Aquilani lofa góðu, Insúa og Cole gætu einnig orðið eins og ný leikmannakaup á þessu tímabili og N´Gog heldur áfram að vera flottur í júlí.

Næst held ég að það sé Valerenga og persónulega fagna ég því að þessi auglýsingatúr sér búinn.

Annars talandi um eiganda Liverpool og burtséð frá leiknum þá má ég til með að setja hér inn FACE dagsins í gær sem hann Höddij, meðlimur hérna í Kop.is samfélaginu ef ég man rétt fékk verðskuldað í gærkvöldi á twitter.

Höddi, hress eins og sunnudagsmorgun póstaði þessari speki á John W Henry sem líklega hefði ekki haft það út daginn án þess að heyra hans álit:

@hoddij – Hörður Jónsson

@John_W_Henry we won´t make the Champions League , and won´t be able to sign the best players yet again, willing to bet my house on that …

John W Henry, öllu ríkari en Höddi geri ég ráð fyrir svaraði þessu eflaust með það í huga að taka þessu helvítis veðmáli:

John_W_Henry

@hoddij How high are the property taxes in Iceland?

…og síðan hefur lítið heyrst til Hödda.

Uppfært: Leik lokið.

Kærar þakkir Liverpool og Malasía, ég ætlaði að komast upp með örstutta og ómerkilega skýrslu eftir þennan næturæfingaleik. Lokatölur 3-6 sem gera níu mörk og við gerðum 12 skiptingar! FRÁBÆRT.

Lítil og nett skýrsla á leiðinni.

Uppfært (hálfleikur):

Steve Clarke hefur verið hoppandi brjálaður með fyrri hálfleikinn og skiptir bara öllum útaf:

Byrjunarlið Liverpool í seinni hálfleik:

Gulacsi

Kelly – Kyrgiakos – Wilson – Insúa

Poulsen – Shelvey

Kuyt – Aquilani – Maxi

N´Gog

Liverpool er núna í Kuala Lumpur að spila sinn annan æfingaleik á þessu ári, núna gegn úrvalsliði Malasíu. Leikurinn er í gangi og við uppfærum leikskýrslu hingað inn að honum loknum og getum haldið umræðu um leikinn í ummælum hérna.

Byrjunarliðið er svona:

Jones

Flanagan – Carragher – Agger – Robinson

Coady – Spearing – Adam – Cole

Meireles

Carroll

Bekkur: Gulacsi, Hansen, Maxi, Pacheco, Kyrgiakos, Kuyt, Wilson, Ngog, Poulsen, Shelvey, Kelly, Wisdom, Aquilani, Insua.

Reina, Gerrard, Johnson eru allir á Melwood. Sama held ég að megi segja um Aurelio ásamt auðvitað Downing og Doni sem eru nýkomnir. Henerson fékk lengra frí og Lucas og Suarez gengur ekkert að láta slá sig út í Copa America. Dalglish er síðan ekki á bekknum þar sem hann fór heim til að taka í spaðann á Downing og Doni þannig að Steve Clarke er að stýra liðinu í dag.

Kaiserslautern á morgun
Í september 1992 gerðist ég svo frægur að sjá Kaiserslautern, andstæðinga morgundagsins spila live, og það á Laugardalsvellinum gegn Fram af öllum liðum í evrópukeppni félagsliða.

Þá var Kaiserslautern nokkuð stórt nafn í þýska boltanum og með eitt besta liðið þar og var eitt af fjórum liðum sem aldrei hafði fallið úr Bundesliga (núna er bara HSV eftir). Hnignun þessa fornfræga liðs hófst þó fljótlega eftir leikinn gegn Fram og féll liðið 1996 þrátt fyrir að verða bikarmeistarar sama ár. Þeir komu þó beint aftur upp um deild með miklum látum og urðu meistarar sem nýliðar 1998 með kónginn, Otto Rehagel við stjórnvölin.

Þetta hefur verið dýrt ævintýri fyrir þá þar sem klúbburinn lenti í tómu rugli árin á eftir, var alveg við það að fara á hausinn, völlurinn var seldur og stig voru tekin af þeim.

Árið 2006 féll liðið á ný niður um deild eftir níu erfið ár í Bundesliga. Þá var við stjórnvölin  Wolfgang Wolf (sem að sjálfsögðu var einu sinni með Wolfsburg) og hafði hann gefið mörgum ungum uppöldum leikmönnum séns án þess að það skilaði tilætluðum árangri. Árið eftir var norska hetjan Kjetil Rekdal ráðinn í það verkefni að koma liðinu aftur meðal þeirra bestu en honum tókst ekki vel upp og var rekinn með liðið í blóðugri botnbaráttu. Í  hans stað var fenginn núverandi stjóri,  Milan Šašić sem tók við í febrúar 2008 og bjargaði hann liðinu frá skammarlegu falli í 3.deild með því að sigra FC Köln í síðasta leik tímabilsins, en Köln var þegar búið að tryggja sér sæti í efstu deild.

En Kaiserslautern slapp allavega við fall og komust síðan upp um deild í fyrra eru þar af leiðandi nýliðar í Bundesliga núna og nokkuð óþekkt stærð, að öllum líkindum betri en Grashoppers allavega.

Til gamans má geta að þeir spila á Fritz Walter stadium en sá völlur er skýrður í höfuðið á einum besta leikmanni í sögu félagsins (hann var upp á sitt besta í kringum 1954).

Helstu vinarklúbbar í þýskalandi eru 1860 Munich og Werder Bremen en helstu andstæðingar eru Mannheim (nágrannar þeirra) og Bayern Munich. Eins hefur þeim líkað illa við Mainz 05 (liðið sem Helgi Kolviðs besti leikmaður Íslands spilaði með) og Karlsruher SC eftir veru þeirra í næstefstu deild undanfarin ár.

Kaisersautern hefur líka haldið vinatengslum við Kilmarnock í Skotlandi eftir viðureignir gegn þeim árið 1999. Spurning afhverju engin tengsl mynduðust við Fram!!

Að lokum má síðan geta þess að Kaiserslautern er minnsta borgin sem hefur hýst Þýsku meistarana síðan Bundesligan var stofnuð. En borgin er minni en Reyjavík með um 100.þúsund íbúa.

Með liðinu hafa menn á borð við Michael Ballack, Miroslav Klose, Stefan Kuntz, Tom Wiese, Roman Weidenfeller, Youri Djorkaeff, Tjorbjorn Nilsson, Mario Basler og sjálfan Andreas Brehme spilað en þeir eru allir svo sannarlega á brott núna og lítið um nöfn sem maður hefur heyrt um áður.

Hvað okkar menn varðar þá má aftur búast við afar ungu liði. Það fóru 13 manns frá klúbbnum á HM og tveir af nýju leikmönnum liðsins voru þar líka. Riera,  Benayoun og Insúa sem ekki fóru á HM eru á leið frá klúbbnum (eða þegar farnir) og því orðið afar lítið um byrjunarliðsmenn (ef svo má segja) eftir í Sviss til að nota í þessum leik.

Þó er Hodgson búinn að staðfesta í góðu viðtali við opinberu síðuna að Milan Jovanovic kemur til með að byrja þennan leik rétt eins og Hercules Kyrgiakos. Báðir fóru þeir á HM en verða að teljast líklegir til að vera í hóp þegar kemur að Europa League leikjunum, þrátt fyrir að nýtt læknastaff á Melwood mæli sterklega með því að hvíla alla HM leikmenn liðsins í þeirri keppni.

Þeir sem koma alveg 100% ekki til greina á morgun er kappar eins og Gerrard, Carragher, Cole, Insúa, Johnson og Agger sem allir eru þó mættir til æfinga á Melwood. Eins eru þeir sem fóru lengra á HM, eins og Rodriguez og Macherano út alveg eins og auðvitað þeir sem fóru alla leið á HM, Reina, Torres, Kuyt og Babel.

Kuyt ætti að reyndar að vera klár strax og þarf varla mikla hvíld enda afar duglegur. Annars talandi um Babel þá er ég með hann á Twitter og hef hann grunaðan um að vera svona max 15 ára í þroska miðað við uberTwitterið hans þar. Hann er allavega skv. því á Miami núna og í flenni gír alveg.

Líklegt byrjunarlið er nánast vonlaust að segja til um en prufum þó svona upp á grínið:

Cavalieri

Kelly – Kyrgiakos – Ayala – Darby

Lucas – Spearing

Amoo -Aquilani -Jovanovic

Ngog

Þetta er svosem jafn ólíklegt og hvað annað, spurning hvort Jovanovic sé hugsaður sem striker eða vængmaður eins og hann var hjá Standard. Eins gæti Shevenly kom inn fyrir t.d. Spearing sem væri gaman að sjá og eins veit ég ekkert hvort þessi nýji skoti, Danny Wilson sé í hóp í þessum leik.

Leikurinn er sýndur á opinberu síðunni fyrir þá sem hafa e-season ticket og ég held svei mér þá að maður fari bara að endurnýja e-season miðann sinn aftur eftir að opinbera síðan hefur verið algjörlega frábær undanfarið og hrúgað efni þar inn.

Ég er ekki viss hvort leikurinn sé sýndur á LFC sjónvarpsstöðinni. Útsending hefst allavega klukkan 14:10 fyrir þá sem hafa Stöð 2 Sport 2 og síðan efa ég ekki að einhver hér lumi á link á leikinn þegar nær dregur kick off.

Espanyol í dag
Eru ekki allir í bænum, límdir við tölvuna, bíðandi frétta af Alonso-málinu? Eða er það bara ég? Allavega, þá er ekkert að frétta enn sem komið er og því er gott að fá eins og eitt stykki leik í dag til að dreifa huganum aðeins. Okkar menn heimsækja Espanyol á nýja völlinn þeirra, Cornella-El Prat, og hjálpa þeim til við að vígja kvikindið. Þetta er fallegur völlur, lítill og sjarmerandi, tekur 40 þúsund manns í sæti sem hentar Espanyol betur en heimili þeirra undanfarin ár, Ólympíuvöllurinn í Barcelona, sem er talsvert stærri og þeir hafa átt erfitt með að fylla.

Þessi leikur er, held ég að ég fari með rétt mál, hluti af kaupsamningnum á Albert Riera í fyrra. Þá keyptum við Riera frá Espanyol en þeir fengu á móti Steve Finnan á frjálsri sölu frá okkur í óskyldum leikmannaviðskiptum. Því miður nær Steve ekki að spila þennan leik en eftir mikið meiðslatímabil leyfðu Espanyol honum að fara aftur til Englands í síðustu viku og samdi hann við Portsmouth.

Af okkar mönnum er það helst að frétta að Martin Skrtel og Nabil El-Zhar eru enn meiddir frá því í leiknum gegn Tælandi auk þess sem Daniel Agger verður ekki hætt í þennan leik. Að sjá bæði Agger og Skrtel meidda fyrir tímabilið gerir mig 100% vissan um að Rafa muni kaupa miðherja í þessum ágústmánuði. En allavega, Rafa talar um það fyrir leikinn að nú sé tími fyrir suma af lykilmönnunum til að stíga upp um einn gír á undirbúningstímabilinu og að sumir þeirra muni spila 60-75 mínútur í dag og sumir jafnvel allan leikinn. Þannig að þessi leikur gæti orðið líkari alvöru fótboltaleik en fyrstu æfingaleikirnir, þar sem Rafa skipti alveg um liðið í hálfleik og nánast enginn lék meira en 45 mínútur.

Leikurinn er á dagskrá kl. 19:00 í kvöld og er sýndur á LFC TV á netinu.

Undirbúningurinn hingað til – uppfært.
Miðað við grófa talningu má segja að við lok Asíuferðarinnar sé undirbúningur Liverpool fyrir tímabilið u.þ.b. hálfnaður.  Fjórir leikir að baki hjá aðalliðinu og tveir hjá XI liðinu sem er blanda vara- og unglingaliðanna auk einhverra mögulegra A-liðsmanna.

Ég hef náð að horfa á fimm þessara leikja og langaði að hlaupa snöggt yfir mína upplifun hingað til…

Leikskipulag

Ansi skiptar skoðanir hafa verið á meðal fólks hér varðandi leikstíl stjórans og skemmtanagildi leikjanna.  Liverpool valdi sér erfiðari mótherja og aðstæður en þeir hafa áður gert.  St. Gallen og Rapid Vín á þeirra heimavöllum í miðri erfiðisvinnu liðsins sem byggðist mest á líkamsþjálfun, miklum hlaupum og stífu lyftingaprógrammi.

Enda voru þeir leikir á lágu tempói gegn liðum sem voru komin lengra í sínum undirbúningi og 442 leikkerfið miðaðist fyrst og síðast að því að 24 leikmenn léku þá leiki.  Lítið hægt að dæma frammistöðu liðsins í raun.

Þá var haldið til Thailands og leikið gegn nokkuð spræku landsliði heimamanna.  Þar sá maður að liðið var á léttara róli, sennilega mest keyrsluhlaupin að baki, en ennþá lyftingar stór þáttur æfinganna.  Þarna voru líka allir leikmenn komnir, utan fyrirliðans.  Hann lék á meðan leik gegn Tranmere með XI liði félagsins, á miðjunni við hlið Guðlaugs nokkurs Pálssonar.  Bar auðvitað af þær 60 mínútur og sýndi karakter að leggja sig verulega fram í þeim leik, við hlið ungra og efnilegra leikmanna í 2-2 jafntefli.

Í dag var svo komið að markaveislu gegn frekar slöku liði Singapore.  Fyrri hálfleikinn tók að brjóta níu manna varnarmúr heimamanna á bak aftur og þegar að skiptingar liðanna voru framkvæmdar sást verulegur getumunur.  Stór sigur hefði getað orðið enn stærri, og leikmenn virtust mun léttari en í Sviss allavega.  Í þessum töluðum orðum er liðið á heimleið með flugi, frí verður á æfingum á morgun, en svo verður æft tvisvar á dag þar til haldið verður til Barcelona og spilað þar við Espanyol næstu helgi.

Í heildina hefur leikur liðsins verið að taka skref framávið sóknarlega, og smátt og smátt sér maður hvaða leikmenn virðast fá séns hjá Rafa karlinum.  Skoðum nánar nokkra flokka leikmanna, fyrst þá sem ég held að hafi komist vel frá undirbúningnum hingað til:

Plúsarnir.

Ryan Babel. Hefur virkað sprækur á mig, sérstaklega í Asíuferðinni.  Er mun áræðnari og grimmari en síðasta vetur og virðist ætla að gera atlögu að því að verða partur af Liverpoolliði framtíðarinnar.

Glen Johnson. Vissulega fáar mínútur en klárt mál að þar er gæðaleikmaður á ferð, vonum að hann verði heill í upphafi tímabils, eykur verulega sóknarmöguleika liðsins.

Diego Cavalieri.  Var ekki viss um hann í fyrra, en finnst hann yfirvegaður og öruggur í þessum leikjum sem ég hef séð.  Öflugur varamarkmaður þar á ferðinni.

Jay Spearing.  Reyndar hlutdrægur hér, vill sjá meira af þessum strák.  Fannst hann sterkur í fyrstu tveimur leikjunum varnarlega og svo sýndi hann í Asíu að hann getur hjálpað í bakvarðarstöðunum líka.

Dani Pacheco.  Mikið efni hér á ferð, ekki síst sá maður það í dag á miðjunni.  Sennilega númeri of lítill í aðalliðið í vetur, ég held að ekki væri vitlaust að lána strákinn til annars liðs í PL þar sem hann fengi að spila.  Framtíðarmaður held ég.

Krisztian Nemeth.  Í miklum metum á Anfield og hefur sýnt í sumar að hann er öflugur klárari í teignum og með mikið markanef.  Var í láni í fyrra, en meiddist, gæti því verið lánaður í vetur.  Ég held að hann sé kominn framfyrir N’Gog.

Emiliano Insua. Einfaldlega framtíðarvinstribakvörður.  Öruggur í sínum aðgerðum, góður bæði sóknar- og varnarlega.

Mínusarnir.

David N’Gog.  Leist vel á margt hjá honum í fyrravor og var að vona að hann myndi sýna sig vel í þessum sumarleikjum.  Gerði það ekki og ég tel miklar líkur á að hann spili í láni í Championshipdeildinni í vetur.

Stephen Darby.  Var að fá langan samning á Anfield, en er alltof léttur og virkar alls ekki tilbúinn.

Gerald Bruna.  Mikið “hype” í kringum þennan strák þegar hann kom.  Hef enn ekki séð það til hans að maður telji dagana þar til hann kemst í liðið…

Javier Mascherano.  Sýnist í fýlu, argur og tuðandi í leikjum.  Finnst sjást á honum langar leiðir að hann ætlar sér ekki að vera mikið lengur á Anfield.

Umdeilanlegt.

Lucas Leiva.  Er meira sóknarþenkjandi í hlaupum sínum í þessum leikjum, á enn fáar feilsendingar og var mun minna að brjóta af sér en í fyrravor.  Er hins vegar ekki mjög afgerandi í leik sínum, nokkuð sem mann langar til að sjá hjá miðjumanni Liverpool.

Andriy Voronin.  Var tilbúinn að krossfesta manninn með taglið.  En svo hefur hann verið feykiduglegur og unnið vel fyrir liðið, fínt mark í dag.  Ef hann er tilbúinn að vera varaskeifa fyrir framherjana held ég að hann eigi skilið að vera á Anfield í vetur.

Philipp Degen.  Fengið margar mínútur, held það sé til að sjá hvort hann ræður við bakvarðarstöðuna sem backup fyrir Johnson, sem myndi þýða sölu Arbeloa.  Hleypur mikið í leikjum og overlappar stanslaust, en skilar boltanum ekki vel frá sér.  Kannski er það skortur á leikæfingu, hver veit?

Damien Plessis.  Búinn að vera efnilegur lengi.  Þarf að komast að liðinu í vetur, eða fara í lán í almennilegt lið.  Á góða leiki, en týnist á milli.  Kannski bara ungur?

Öruggur standard

Gerrard, Carra, Skrtel, Agger, Benayoun, Kuyt og Torres.  Allir á sínu pari sem auðvitað er flott!

Yngri mennirnir

Mér líst best á Martin Kelly af þeim sem fengu sénsinn hjá aðalliðinu.  Sá strákur er stór og sterkur, góður í fótunum og les leikinn vel.  Held reyndar að hann verði lánaður í vetur en mér finnst hann eiga að fá að fara í flott lið, miklu mun betra en í League One.

Í XI-leiknum var ég sammála þulunum varðandi hvaða leikmenn væru mest tilbúnir að fá séns til að æfa með aðalliðinu.  David Amoo er feykiskemmtilegur hægri kantmaður, nokkuð stór og öflugur, á fullt af “trikkum” í erminni, gríðarlega áræðinn að taka menn á og með góða krossa.  Á að geta orðið framtíðarstjarna.

Svo er það okkar maður, Guðlaugur Victor Pálsson.  John Aldridge var að lýsa og það er ljóst að sú hetja hrífst af okkar manni.  Strákurinn var auðvitað með Captain Fantastic á miðjunni, en þeir tveir náðu vel saman og hann var mjög öflugur að brjóta upp sóknir og koma boltanum í gang.  Virðist hafa tekið afar vel á því í Gym-inu og við megum held ég alveg gera okkur fínar vonir um að hann fái einhvern nasaþef af aðalliðinu, t.d. á bekkinn í Carling….

Uppfært

Hér má sjá  viðtal við strákinn “okkar” a opinberu síðunni, bauð Gerrard fyrirliðabandið en sá þáði ekki.  Talinn verða lykilmaður hjá varaliðinu í vetur.

Leikmannamál???

Í dag er enn verið að spjalla um Xabi, Masch og Arbeloa.  Ég vona virkilega að Xabi verði áfram.  Hans skarð verður erfitt að fylla og ég var glaður að sjá Rafa koma opinberlega og lýsa ósk sinni um að Alonso stjórni umferðinni áfram á miðjunni hjá okkur.  Ég hef áður lýst því að Mascherano finnst mér ekki á réttu róli með liðinu og ég held að okkur sé öllum ljóst að Arbeloa vill fara.

Miðað við það sem ég hef séð hingað til held ég að við þurfum meiri breidd í hafsentinn og skil því Distin-umræðuna.  Ef Xabi verður áfram tel ég okkur ekki þurfa fleiri á miðsvæðið aftarlega, Spearing og Lucas geta verið að hamast þar í stað Masch, og svo held ég að við þurfum enn á öflugum sóknartengli að halda, sem getur dottið í allar stöðurnar aftan við senterinn.  Veit ekki alveg með David Silva, þessa dagana er ég alveg að velta fyrir mér hvort við ættum ekki bara að næla í Agbonlahor?

Allavega, liðið er nú komið heim úr löngu undirbúningsferðunum og nú verður farið í að fínpússa liðið.  Nú fara einhverjir ungir að detta í lán og ég spái því að á næstu viku ráðist allt varðandi sölur leikmanna, allavega þeirra stærstu.  Í framhaldi af því fáum við tvo leikmenn í hópinn.

Styttist í stóru stundina elskurnar!!!

Liverpool – Singapore
Jæja, fjórði æfingaleikur sumarsins fer fram nú í dag og er hann gegn landsliði Singapore á heimavelli þeirra. Leikurinn hefst kl. 11:00 og er sýndur á Stöð 2 Sport, LFC TV á netinu og fleiri stöðum.

Rafa stillir upp svipuðu liði og undanfarið, Spánverjarnir eru á bekknum en Mascherano byrjar. Liðið er svona: Cavalieri, Degen, Carragher, Agger, San Jose, Benayoun, Mascherano, Lucas, Babel, Ngog, Voronin.

Bekkurinn, þeir sem spila í seinni hálfleik, er þá eftirfarandi: Johnson, Plessis, Torres, Riera, Pacheco, Dossena, Gulacsi, Insua, Alonso, Kelly, Arbeloa, Kuyt, Reina, Spearing, Nemeth.

Verður fróðlegt að sjá liðið í dag.

Leikjaplanið framundan
Ég er kominn með dauðleið á Owen og vill helst sem minnst heyra á hann minnst í framtíðinni.

En þó að leiktíðinni sé í raun bara nýlokið þá eru bara 10 dagar í fyrsta æfingaleikinn sem verður í Sviss. Því datt mér í huga að henda þessu hérna inn þó ekki væri nema til að þið getið farið að skipuleggja og skanna staði til að glápa á þessa leiki á í útilegunni eða hvar svo sem þið verðið niðurkomin.

15. júlí: St Gallen – úti – kl. 19:00

19. júlí: Rapid Vín – úti – kl. 18:15

22. júlí: Tæland – úti – kl. 14:00

26. júlí: Singapúr – úti – kl. 12:00

2. ágúst: Espanyol – úti – kl. 20:00

5. ágúst: FC Lyn – úti – kl. 18:00

8. ágúst: Atletico Madrid – heima – kl. 15:00

Þetta er nokkuð klassískt hjá okkar mönnum, ekki í fyrsta skipti í Sviss, Tæland og Singapúr til að selja búninga, fyrrum klúbbar Riera og Torres og svo ein ferð til Noregs. Í millitíðinni væri alveg ágætt að fá eins og 1-2 leikmenn til klúbbsins til viðbótar ;)

Liverpool 1 – Lazio 0
Liverpool spilaði sinn 8 æfingaleik og jafnframt sinn síðasta á þessu undirbúningstímabili. Liðið vann þá Lazio á eina æfingaleiknum sem spilaður var á heimavelli. Það var Voronin sem skoraði á síðustu mínútum leiksins. Þar sem ég sjálfur sá ekki leikinn þá læt ég einfaldlega fylgja leikskýrsluna frá Liverpool Echo og official síðunni.

Svona var byrjunarliðið:

Reina

Arbeloa – Carragher – Agger – Dossena

Kuyt – Alonso – Plessis – Benayoun

Keane – Torres

Á bekknum: Cavalieri, Hyypia, Ngog, El Zhar, Voronin, Darby, Pennant, Insua, Finnan, Spearing, Nemeth

Rafa hafði þetta að segja eftir leikinn:

“The young players were good too. We know all about the senior players but they all played well. Nabil El Zhar, Jay Spearing, Damien Plessis, and Nemeth – they were all good.”

Og þegar hann ræðir um Alonso segir hann:

“He was playing well. That was positive for us. He is a good player and hopefully we will have another good player coming in soon. We can improve so we will try to improve.”

Sigur á Tranmere og never ending story…
Í gær var fyrsti æfingaleikurinn hjá LFC og var spilað gegn nágrönnum okkar í Tranmere Rovers og vannst naumur 1-0 sigur þar sem Yossi skoraði sigurmarkið. Ég sá sjálfur ekki leikinn en af því sem ég hef lesið þá virðist þetta hafa verið ágætis æfing og gott að sjá Agger sé kominn á ról aftur. Nýju leikmennirnir fengu sína eldskírn í rauða búningnum en þessir spiluðu:

Martin (Cavalieri 46), Darby (Hyypia 46), Hobbs (Flynn 46), Carragher (Aurelio 46), Agger (Kelly 77), Leiva (Skrtel 46), Plessis (Gerrard 66), Insua, Pennant (Degen 46), Pacheco (Voronin 66), Benayoun (Spearing 46)

Liðið er nú farið til Sviss í æfingarbúðir og er næsti æfingaleikurinn gegn Luzern á miðvikudaginn kemur.

Svo að Barry málinu… þetta virðist ætla að vera sagan endalausa og læðist að manni sá grunur að hann komi ekki. Ég held að það sé ljóst að ef Barry kemur þá muni Alonso fara frá félaginu og þótt ég taki fagnandi á móti Barry þá langar mig ekki til að missa Alonso. Niðurstaða: Ég er sáttur við núverandi ástand á miðjunni og vil frekar að Rafa einbeiti sér að kaupa kantmenn og framherja.