Liverpool Bloggið

Lille
Áður en ég hef þessa upphitun vil ég benda þeim sem hug hafa á því að tjá sig í ummælum við hana að mér og líklega flest öllum öðrum er nokkuð slétt sama um skoðun þína á Benitez, Kuyt, Lucas ect. og við höfum mjög líklega þegar lesið hana nokkrum sinnum nú þegar. M.ö.o. reynum að hafa þetta á hærra plani heldur en þessi viðbjóðslega leiðinlega og neikvæða umræða undanfarið hefur verið og í guðana bænum reynum frekar að tala niður til frakka heldur en okkar liðs og leikmanna, þrátt fyrir að það gangi eins illa og það hefur gengið undanfarið.

Þeir sem verða fyrir því að setja inn ummæli sem þykja of neikvæð og leiðinleg verða meis-aðir (",)

En jæja þá að næsta leik, andstæðingar okkar í Evrópu að þessu sinni hafa það framyfir stórlið Debrechen og Unirea að það hafa actually fleiri en einn heyrt á þetta lið minnst áður og raunar er þetta bara nokkuð þekkt franskt lið. Þó ekki svo þekkt að ég fari ekki smá yfir sögu félagsins:

Lille Olympique Sporting Club Lille Métropole eins og það heitir í sveitinni var stofnað árið 1944 þegar tvö lið frá sama svæði voru sameinuð, stórliðin Olympique Lillois og SC Fives. Lille er staðsett í norðurhluta Frakklands ekki svo ýkja langt frá landamærum Belgíu og helstu rival klúbbar þeirra eru þ.a.l. lið eins og Reims og Lens. En af seinna liðinu hefur Lille löngum staðið í skugganum af í gegnum tíðina.

Í kjölfar seinni heimsstyjaldarinnar unnu Lille tvo titla og 5 bikarmeistaratitla ásamt því að lenda 4 sinnum í öðru sæti í deildinni en uppfrá því fór að halla aðeins undan fæti og liðið féll svolítið í skuggann á nágrönnum sínum Í Lens, bæði hvað varðar frammistöðu á vellinum og eins í vinsældum á svæðinu. Vinsældir Lens framyfir Lille má líka líklega að einhverju leiti rekja til þess að Lens er venjuleg verkamannaborg á meðan Lille var aðeins meira í Chelsea-ish aðdáendunum ef svo má segja.

En uppgangur félagsins hófst að einhverju leiti fyrir um áratug síðan er þeir komust upp í úrvalsdeild eftir þrjú ár þar á undan í annari deild. Við höfum svolítið séð og heyrt af þessu liði í Evrópukeppnum undanfarin ár og t.a.m. töpuðu þeir fyrir United og dómaranum í 16.liða úrslitum meistaradeildarinnar árið 2007.

<object classid="clsid:d27cdb6e-ae6d-11cf-96b8-444553540000" width="425" height="350" codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,40,0"><param name="src" value="http://www.youtube.com/v/7Qc7FbtvyT8" /><embed type="application/x-shockwave-flash" width="425" height="350" src="http://www.youtube.com/v/7Qc7FbtvyT8"></embed></object>

Dómarinn,  Braamhaar (sem dæmdi fyrri leikinn gegn Unirea) leyfði Giggs að taka spyrnuna áður en Lille var búið að stilla upp!! Leikmenn Lille voru rétt búnir að ganga af velli í mótmælaskyni vegna þessa, enda mótmæli þjóðaríþrótt frakka. Þeir kláruðu þó leikinn og kvörtuðu til UEFA sem aðhafðist ekkert af ótta við að Ferguson myndi ekki fara sér að voða með HubbPubba- ið sitt.

En Lille liðið hefur reyndar komist tvisvar í meistaradeildina þrátt fyrir að besti árangur þeirra undanfarin ár sé 2.sæti árið 2005. Síðasti titill í sögu félagsins kom árið 1955 að ég held.

Núvernadi heimavöllur Lille er Stade Lille Métropole og er hann staðsettur í nágrannabænum Villeneuve d’Ascq. Eins og sjá má er þetta fjöllnota völlur sem þó er að mestu notaður fyrir fótboltann. Þó skal tekið fram að sá sem hannaði þennan rúmlega 18.þúsund manna völl á alls ekki skilið Thule og fær engar 2.000 kr. þó hann fyrir yfir byrjunarreitinn því það á aldrei að setja þessar asnalegu hlaupabrautir í kringum fótboltavelli.

Blessunarlega fyrir Lille er fyrirhugað að flytja liðið á nýjan og glæsilegan leikvang árið 2012 sem kemur til með að rúma yfir 50.þúsund áhorfendur og verður það að auki með þaki.

Ólíkt okkur hafa frakkarnir komist þetta langt með því að spila í keppninni sjálfri (ekki í CL eins og við) og hafa leikirnir spilast eins og hér segir:

Sevojno (Serbia) 2-0,2-0 (Þriðja umferð, umspil)

Genk 4-2,2-1 (undanúrslit, umspil)

Valenica 1-1,1-3 (Riðalakeppni)

Genoa 3-0,2-3 (Riðlakeppni)

Slavia Prague 3-1,5-1 (Riðalakeppni)

Fenerbahce 2-1,1-1 (32.liða úrslit)

Þeir semsagt slógu Fenerbahce út í síðustu umferð og það í Tyrklandi.

Í deildinni er Lille í fjórða sæti þremur stigum frá toppliði Lyon en hafa spilað tveimur leikjum meira en þessi lið og því er sæti í Europa League raunhæfast í stöðunni fyrir þá eins og staðan er núna, því miður ekki ósvipað okkur. Eftir áramót hafa þeir spilað fimm leiki í deildinni, skorað í þeim öllum en bara haldið markinu hreinu einu sinni þannig að líklega má gera ráð fyrir mörkum á morgun.

Líklegt byrjunarlið hjá Lille gæti litið svona út:

Landreau

Beria – Rami – Chedjou – Emerson

Balmont – Mavuba – Cabaye

Hazard – Obraniak

Pierre-Alain Frau

Verð þó að játa að ég er nokkurnvegin alveg skák og mát hvað þekkingu á þessum leikmönnum varðar og hélt t.d. að Chedjou væri bara stafarugl. Líklega er ég að gleyma einhverjum þarna því þeir Gervinho og Vittek hafa verið að skora mörkin fyrir Lille ásamt Frau.

Þjálfari Lille er Rudi Garcia sem áður hafði þjálfað minni lið í Frakkandi. Hann tók við af Claude Puel sem stjórnaði liðinu frá 2002 – 2008. Sá kappi stjórnar núna Lyon.

Liverpool

Hvaða lið kemur til leiks frá bítlaborginni er bara allskostar óvíst, ekkert hefur gengið i vetur og var síðasti leikur  hreinasta hörmung svo vægt sé til orða tekið. Þar sem þetta er eina keppnin sem við eigum einhvern möguleika á verðlaunum í er vonandi að okkar menn rífi sig ærlega upp á rassgatinu og komi af miklum krafti til leiks í Frakklandi.

Það er mjög erfitt að spá fyrir um byrjunarlið enda margir sem verðskulda sannarlega bekkjarsetu eftir síðasta leik, tippa á að þetta verði svona:

Reina

Johnson – Carragher – Agger – Insúa

Aquilani – Mascherano

Babel – Gerrard – Benayoun

Torres

Gæti reyndar alveg séð fyrir mér að Riera kæmi inn líka en hef þó Benna Jón þarna. Kuyt er auðvitað líklega í liðinu en eftir síðasta leik held ég að hann hefði gott af hvíld. Hef þetta allavega svona og er ekkert að orðlegja þetta frekar.

Þetta var 1-2 fyrir Liverpool.

Minni menn að lokum á upphafsorðin og óska eftir að umræðan verði á hærra plani heldur undanfarið (ég sjálfur meðtalinn).

Babú

Ný færsla
Hér með er þessi Wigan leikskýrsla ekki það fyrsta sem maður sér á kop.is

Vanalega reynir maður að finna eitthvað skemmtilegt til að skrifa um, en ég fann bara afskaplega lítið til að gleðjast yfir.  En allavegana, við eigum enn möguleika á einum bikar í ár – það er þó allavegana eitthvað.

Wigan – Liverpool 1-0
Verkefni kvöldsins var hið misjafna lið Wigan á HRÆÐILEGUM heimavelli þeirra sem lætur mýrarboltavöllinn á Ísafirði líta vel út. Þeir eru nýbúnir að leggja nýtt gras á völlinn því hann var svo slæmur hjá þeim!! Ef hann var verri en þetta ætti vallarstjórinn líklega að fara leita sér að vinnu þar sem söngs ei krafist er, ef svo má segja.

Niðurstaðan var ÖMURLEGUR leikur okkar manna gegn slöppu Wigan liði sem við náðum þó að láta líta sæmilega út.

Að eiga skýrslu núna er ekki alveg málið því líklega væri best að slökkva á internetinu í 1-7 daga og láta renna af sér reiðina. En það er ekki í boði.

Byrjunarliðið var svona:

Reina

Mascherano – Carragher – Kyrgiakos – Insúa

Gerrard – Lucas

Kuyt – Benayoun – Maxi

Torres

Bekkur: Cavalieri, Johnson, Aquilani, Agger, Riera, Babel, N’Gog

Okkar menn byrjuðu leikinn betur en heimamenn og áttu nokkrar misgóðar sóknir. Besta færið kom á 8. mínútu þegar hornspyrna frá Gerrard var skölluð á fjærhornið þar sem Fernando Torres beið einn á auðum sjó en viðstöðulaust skot hans fór í utanverða stöngina og framhjá.

Eftir kortersleik fóru leikmenn Wigan að láta meira til sín taka og voru þar með Charles N´Zogbia af öllum önnum í algjörum sérflokki. Mjög mjög mjög mikið var um misheppnaðar sendingar hjá báðum liðum og erfitt fyrir liðin að fóta sig á vellinum en virtust þau þó bæði vera að reyna að spila fótbolta eins og þau gátu.

Á 30.mínútu tók Benayoun mjög góðan sprett inn á teiginn og reyndi að finna Gerrard í teignum en varnarmenn Wigan náðu að verjast fyrirliðanum. Gerrard var annars með öllu ömurlegur á miðjunni í fyrrihálfleik og raunar var það aðeins Dirk Kuyt sem toppaði slæman leik hans í fyrri hálfleik. Það gerði hann er hann tók sína færgu móttöku á boltann eftir saklaust innkast, sendi beint á N´Zogbia (eina heppnaða sending Kuyt í dag) sem var í kjörstöðu á kantinum og sendi strax fyrir á Hugo Rodallega sem kláraði færið auðveldlega, 1-0 Wigan. Ömurleg mistök hjá Kuyt sem gerði fátt af viti í fyrri háflleik og kórónaði slæman fyrri hálfleik hjá flestum leikmönnum Liverpool.

Seinni hálfleikur var ekki mikil bæting þó ég hafi nú misst áhugann á því að punkta það niður sem var að gerast. Við vorum öllu sterkari en Wigan sem varðist af krafti og það var eins og nokkrir leikmanna Liverpool væru í keppni hver gæti spilað verst. Eftir fyrri hálfleikinn verð ég að viðurkenna að ég var hissa að sjá óbreytt byrjunarlið koma til leiks í seinni hálfleik! Engu að síður fékk þjálfarateymi Liverpool það út að líklega væri best að eyða aðeins meiri tíma með þessa tréhesta inná vellinum.

Fyrsta skiptingin kom ekki fyrr en Lucas meiddist og hann hafði líklega verið okkar skásti maður á miðsvæðinu, Johnson kom inná sem eru góðar fréttir en hann náði ekki að setja mark sitt á leikinn og líklega var þetta ekki góður leikur til að koma inn í eftir meiðsli.

Aquilani leysti Benayoun af hólmi um miðjan seinni hálfleikinn og var öllu ferskari og hefði eins og fleiri mátt koma mun fyrr inná.

Það tók Benitez síðan 82.mínútur að átta sig á því að  Dirk Kuyt væri að spila einn sinn versta leik á ferlinum og jafnvel í sögu fótboltans (frá upphafi) og skipti þá Babel loksins inná. Hraði Babel hefði svo sannarlega getað nýst okkur betur fyrr í leiknum heldur en labbitúrar Kuyt og Maxi á köntunum.

Torres átti 3-4 mjög góð færi í þessum leik og hefði alveg getað reddað okkur í dag, það gerðist ekki og það sem var inná með honum gat ekki blautan skít og var alls ekki líklegt til að skora í leiknum. Hann dró sig mjög mikið út til hægri en líklega var það bara til að komast eitthvað í boltann.

Ef við skoðum aðeins liðið þá var Reina fínn í markinu og ekki hægt að kenna honum um neitt. Mascherano var líka að spila ágætlega í þessum leik bæði sem bakvörður og miðjumaður. Insúa var sæmilegur en eins og flestir aðrir með allt og mikið af vafasömum sendingum. Carragher og Kyrgiakos gerðu ekki mikið af sér þannig í leiknum Kyrgiakos þá klárlega sterkari heilt yfir en við hefðum alveg þegið Agger í dag.

Á miðjunni var Lucas skítsæmilegur en Gerrard með öllu ömurlegur, sérstaklega í fyrri hálfleik sem verður að teljast einn hans versti hjá klúbbnum. Völlurinn hjálpar ekki en er ekki næg afsökun.

Hvað Maxi Rodriguez varðar þá hugsaði ég á tímabili í leiknum um að hvað ég væri feginn að hann hafi ekki komið fyrir síðasta tímabil þegar hann var orðaður við okkur, hann hefur sýnst allt of lítið og alls ekki komið með kraft inn á kantinn eins og maður var að vona að hann myndi gera er hann kom í janúar.

Dirk Kuyt var síðan með öllu vonlaus í leiknum og líklega bara næst besti leikmaður Wigan í dag.

Torres átti hættulegustu færin og var sá eini hjá okkur sem virtist hæfur til að skora, það gerðist ekki.

Niðurstaða:

Ömurlegt kvöld, ömurlegur leikur, ömurlegt tímabil og meistaradeild ólíkleg á næsta ári.

Ég hata mánudaga.

Babú

Liðið gegn Wigan
Jæja þökk sé bjánunum á EOTK varð smá ruglingur með byrjunarliðið i dag, þeir settu lið á Twitter sem var bara langt í frá rétt lið!

En byrjunarliðið er svohljóðandi:

Reina

Mascherano – Carragher – Kyrgiakos – Insúa

Gerrard – Lucas

Kuyt – Benayoun – Maxi

Torres

Bekkur: Cavalieri, Johnson, Aquilani, Agger, Riera, Babel, N’Gog

Mascherano heldur áfram í bakverði og Agger er líklega ekki 100% fit í þennan leik. Johnson er kominn á bekkinn sem eru frábærar fréttir. Gerrard er áfram á miðjunni og Benayoun í holunni. Enginn Babel inná (suprise suprise) en Kuyt og Maxi sjá um kantana. Frammi er síðan BLESSUNARLEGA Fernando Torres.

Lýst mátulega á þetta og við eigum allavega marga kosti á bekknum.

Wigan á morgun
Þetta er búin að vera hálf skrítin fótboltahelgi, og í rauninni fótboltavika.  Enginn Liverpool leikur, nokkrir gagnslausir æfingalandsleikir og svo split up á milli FA bikarsins og svo deildarinnar.  Ég hef því horft á fótbolta í rauninni með einarri, suma leiki hef ég ekki haft minnsta áhuga á að kíkja á, en sumum hefur maður fylgst aðeins meira með.  En það bar helst til tíðinda að Mick McCarthy ákvað að hvíla ekki 23 bestu leikmenn sína fyrir leikinn gegn fósturföður sínum.  En það sem stóð upp úr um helgina var vöntun á einu stykki Liverpool leik.  En úr því verður ráðin bót á morgun, öllu heldur annað kvöld.  Þetta eru voðalega skrítnar tímasetningar á leikjum, mánudagskvöld, það er bara eitthvað sem er ekki að passa saman í þessu.  Ef ég mætti ráða, þá væru tveir vikudagar sem væru algjörlega fótboltalausir, mánudagar og föstudagar.  Það er bara eitthvað rangt við að spila fótbolta á þessum tveim dögum.

En að leiknum á morgun og þessu Wigan liði.  Maður veit í rauninni aldrei hvaða liði maður er að fara mæta þegar Wigan á í hlut.  Þeir geta litið út eins og lang slakasta lið deildarinnar einn daginn, og svo hörkugott baráttulið í næsta leik á eftir.  Þeir voru í rauninni með alveg hörkugott lið alveg þar til fyrir rúmu ári síðan.  Wilson Palacios var keyptur frá þeim og smátt og smátt byrjaði að kvarnast meira úr liðinu og núna er það hreinlega talsvert veikara en þegar Steve Bruce var með það.  Svo kom nýr stjóri, sem ku vera ansi hreint efnilegur, en hann byrjaði að kaupa með sér einhverja Swansea kalla og hefur verið að vonast til þess að þeir séu í Premier League gæðum, en því miður fyrir hann, þá eru menn eins og Jason Scotland ekki á þeim standard (fyrir nú utan það, hverjum dettur til hugar að heita í höfuðið á landi?  Sigursteinn Nýfundnaland, hvernig hljómar það?).

En þessi leikur á morgun er einn af þessum leikjum sem er “must win”.  Þetta “must win” dæmi er í rauninni einn ofnotaðisti frasi í frasabókinni, því að sjálfsögðu eru allir leikir möstvin leikir, þó það nú væri.  Það er mikilvægt að sigra, það er mikilvægt að hala inn 3 stig, og það er nokkuð sama hvar þú ert í deildinni á þessum tímapunkti, það eru allir leikir þess eðlis að þú þarft helst að vinna þá.  En þetta er ekki langt ferðalag fyrir okkar menn, steinsnar frá Liverpool borg og því ættu nokkur þúsund stuðningsmenn Liverpool FC að láta vel í sér heyra.  Við höfum verið í þeim pakka að vera að “grinda út” úrslit, og maður man varla bara eftir þeirri tilfinningu sem fylgir því að vinna leiki örugglega, vera nokkrum mörkum yfir í hálfleik og halla sér aftur og njóta.  Æj hvað ég væri til í svoleiðis leik á morgun, bara smá svona break fyrir pumpuna.

Meiðslalistinn var alveg að tæmast, en að sjálfsögðu er það ennþá sá listi sem við stöndum okkur afburða vel á og sýnum þar mikinn stöðugleika.  Glen Johnson verður væntanlega í hópnum á morgun, en þeir Aurelio og Skrtel sjá til þess að sjúkraþjálfararnir hafa í nóg að snúast.  Reyndar er það svo með Aurelio að fleiri hans líkir gætu verið hjálplegir hér heima á klakanum, því hann telst vera ferlega atvinnuskapandi og hver leikur sem hann leikur, skapar 2 störf í landi.  En hvað um það, nokkuð heilt lið þess utan að velja úr og það fer nú hreinlega að verða skrambi erfitt fyrir Rafa að velja liðið með svona marga framliggjandi leikmenn heila.

Ég ætla að leggja hausinn að veði og skjóta á það að Reina byrji í markinu, þetta er long shot, ég veit það, en ég læt vaða.  Ég efa það stórlega að Rafa treysti Glen strax í bakvörðinn, og svo er stóra spurningin með Agger.  Ég ætla að tippa á það að Agger verði heill, verði með Kyrgiakos sér við hlið og Carra í bakverðinum.  Ef Agger verður ekki orðinn heill, þá heldur Javier áfram í bakverðinum og Carra og Kyrgiakos í miðvörðunum.  Insúa á svo vinstri stöðuna algjörlega núna eftir að Aurelio datt út.  Maxi hefur svo sannarlega verið að koma til og ég býst við að hann fái áfram tækifærið og baráttan á milli hans, Riera, Babel, Kuyt og Yossi um þessar stöður er orðinn svaðaleg.  Svo þar fyrir utan eru það Aquilani og Stevie.  Allt í einu finnst manni vera orðin fín breytt hjá liðinu þegar kemur að þessum stöðum fyrir aftan framherjann.  Torres verður auðvitað uppi á topp í leiknum og bara spurning um þessar blessuðu stöður þar fyrir aftan.  Ég ætla að giska á að Mascherano og Lucas verði á miðjunni, Dirk hægra megin, Maxi vinstra megin og Gerrard í holunin fyrir aftan Fernando:

Reina

Carra – Kyrgiakos – Agger – Insúa

Mascherano – Lucas

Kuyt – Gerrard – Maxi

Torres

Bekkurinn:  Cavalieri, Johnson, Aquilani, Babel, Riera, Benayoun og Ngog

Ég hef eins og áður, fulla trú á sigri, erum með margfalt betra lið en þetta Wigan lið, en það er ekki spurt að því þegar á hólminn er komið, menn verða að vilja sigra og sýna það á vellinum.  Þetta er útileikur, þeir hafa verið okkur erfiðir, en ég hreinlega neita að trúa öðru en að við förum að detta almennilega í gang.  Fínt að byrja á því á morgun með 0-3 sigri.  Fernando, Stevie og Maxi með mörkin.

Ekkert Meistaradeildar umspil
Sem betur fer var smá vit í kollinum á stjórnarformönnum liðanna í Ensku Úrvalsdeildinni og hugmyndum um umspil um 4. Meistaradeildarsætið, sópað út af borðinu.  Mér fannst þessi hugmynd algjörlega galin.  Það getur vel verið að það sé stimplað á þann hátt að ég segi þetta eingöngu út af því að Liverpool FC hefur verið í ströggli í vetur og eini raunhæfi möguleikinn sé þetta blessaða fjórða sæti, en ég neita því að það sé ástæðan.  Þegar svona reglur eru settar, þá þýðir ekkert að vera að horfa til skemmri tíma.  Það getur vel verið að Liverpool verði að spila um titilinn á komandi árum, eða hreinlega að liðið yrði neðar og þessi regla gæti komið liðinu til góða.  Þetta snýst nefninlega ekki bara um stöðuna á þessu tímabili.

Margir virðast gefa sér það að þetta fjórða Meistaradeildarsæti sé bara fast fyrir England um ókomna tíð.  Það eru ekkert svo mörg ár síðan að England var bara með 3 sæti.  Af hverju er England með 4 sæti?  Jú, af því að liðin sem hafa verið að keppa í Meistaradeildinni hafa verið að standa sig afar vel og því er sætið þeirra.  Eykur það líkurnar á því að halda þessu sæti, að hleypa jafnvel liði úr 7. sætinu í keppnina?  Nei, engan veginn.  Og hvar ætti þá að draga mörkin, til hvers er þessi 38 leikja deild?  Er hún ekki besti mælikvarðinn á liðin?  Er ekki skynsamlegast að þú vinnir þér inn rétt með því að standa þig í deildinni, en ekki innbyrðis viðureignum eftir tímabilið?  Það er allavega mín skoðun á þessu.  Af hverju þá bara umspil um fjórða sætið?  Af hverju bara liðin í sætum 4-7?  Eigum við að hafa play offs fyrir öll sætin í deildinni?  Eigum við að hafa play offs um Englandsmeistaratitilinn?

En það þarf ekkert að velta þessu frekar fyrir sér, sem betur fer er búið að sópa þessari heimsku hugmynd út af borðinu.

Landsleikir gærkvöldsins
Liverpool átti nokkra þátttakendur í landsleikjum gærdagsins.

Fyrst er að nefna auðvitað Steven Gerrard sem var fyrirliði enskra í gærkvöldi í 3-1 sigri á Egyptum.  Strákur lék vel í 72 mínútur og hefur vafalítið tryggt sér varafyrirliðastöðuna hjá Capello karlinum.

Dirk Kuyt skoraði úr vítaspyrnu fyrir Hollendinga á 40.mínútu í 2-1 sigri á Bandaríkjunum.  Dirk lék í 81 mínútu en þá tók Ryan Babel við af honum.

Annar höfðingi skoraði í gær, Yossi Benayoun skoraði fyrra mark Ísraela í 0-2 sigri í Rúmeníu.  Sá lék allar 90 mínúturnar, eins og Sotiris Kyrgiakos sem var með Grikkjum í 0-2 heimatapi gegn Senegal.  Báðir höfðu gott af því að fá heila leiki að mínu mati og styrkir þá bara í framhaldinu.  Argentínski fyrirliðinn okkar Javier Mascherano kláraði líka leik sinna manna sem unnu góðan 0-1 sigur í Þýskalandi.  Diego örugglega grátið af gleði og smellt á kinn Javiers eftir það!

Í Frakklandi unnu Spánverjar öruggan 0-2 sigur, þar sem Fernando Torres kom inná í hálfleik.  Sem betur fer virðist hann, sem og allir landsliðsmennirnir aðrir, hafa sloppið ómeiddir í gegnum kvöldið og þar með tilbúnir í næsta leik, gegn Wigan á mánudagskvöldið.

Rúnturinn
Í dag snýst nú mest um meiðsli eins og svo oft áður.

Á opinberu heimasíðunni kemur fram að Martin Skrtel hafi fótbrotnað í Rúmeníu og verði ekki með næstu tvo mánuðina.  Það þýðir í raun að hann verður varla meira með á tímabilinu.

Það er því ljóst að enn þarf að hrista upp í varnarpakkanum í næsta leik, gegn Wigan, því líklegt er að Agger hafi ekki náð sér þá af meiðslum sem hann hlaut gegn Blackburn.  Kyrgiakos karlinn er að koma úr banni og fer væntanlega beint í liðið með Carra, spurning hvort Mascherano verður bakvörður enn um sinn, því ekki er talið líklegt að Johnson geti leikið fyrr en gegn Portsmouth.

Talandi um Mascherano virðast Liverpool hafa boðið honum nýjan samning með verulegri launahækkun.  Eftir hæga byrjun í haust hefur Masch leikið afar vel að undanförnu og eftir að góðvinur hans Maxi mætti á Anfield virðist honum líða betur.  Vonandi gengur þetta eftir.

Meira af samningum, Liverpool Echo heldur fram að Pepe Reina sé búinn að samþykkja samning sem gildi út leiktímabilið 2014 – 2015 og verði skrifað undir fyrir næstu helgi.  Vonandi er þetta rétt og þá eru það frábærar fréttir fyrir okkur öll.  Pepe á orðið góða möguleika á að vinna Gullhanskann í vor fyrir að halda oftast hreinu í deildinni, sem yrði þá hans fjórði á ferlinum.  Ég hef lengi sagt og stend algerlega við það að við erum með besta markmanninn í deildinni og ef að við höfum nú eignarhald á honum næstu fimm árin er það bara frábært!

Svo er hér enn ein áminning til félagsins hvað þarf að gerast til að við séum samkeppnishæf.  Verulegur ávinningur hefur orðið hjá nýjum yfirmanni söludeildar, Ian Ayre, sem hefur skotið okkur í 7.sæti yfir ríkustu lið heims að mati einhverra fjármálafræðinga.  En það einfaldlega dugar lítt þegar borin er saman innkoman við hin stóru ensku liðin sem eru ennþá himin og haf fyrir ofan okkur þegar kemur að innkomu fyrir leiki og sölu minjagripa.  Við þurfum nýjan völl til að lifa til langs tíma í samkeppninni!!!

Eitt af því sem Rafa breytti síðasta haust var að ráða nýjan yfirmann Akademíunnar, Frank McParland, og fela honum aukin völd við að ná í nýja unga og efnilega leikmenn, t.d. Kristján Gauta Emilsson.  Um helgina var það svo tilkynnt að einn  heitasti ungi molinn á markaðnum – Rasheed Sterling – væri kominn á Anfield.  Sá þykir mikið efni, hraður og teknískur sóknarmaður sem miklar vonir eru bundnar við.  Vonum að hann uppfylli háar væntingar á réttum stað!

Liverpool 2 Blackburn 1
Okkar menn tóku á móti Blackburn Rovers í Úrvalsdeildinni í dag og höfðu eftir mikinn baráttuleik að lokum 2-1 sigur sem lyftir liðinu aftur upp í 6. sætið, stigi á eftir Tottenham og Man City (sem eiga leik til góða). Þetta var einfaldlega leikur sem varð að vinnast og sem betur fer hafðist það með herkjum að lokum.

Rafa Benítez gerði nokkrar breytingar á liði sínu í dag. Martin Skrtel er meiddur og Sotirios Kyrgiakos er í banni þannig að Jamie Carragher var færður aftur inn í miðja vörnina og Javier Mascherano tók bakvörðinn. Frammi kom Fernando Torres inn í liðið á nýjan leik sem og Maxi Rodriguez.

Liðið var sem hér segir:

Reina

Mascherano – Carragher – Agger – Aurelio

Maxi – Gerrard – Lucas – Benayoun

Kuyt – Torres

BEKKUR: Cavalieri, Ayala, Kelly, Insúa (inn f. Aurelio), Aquilani, Babel (inn f. Benayoun), Ngog (inn f. Torres).

Öll mörk leiksins komu í fyrri hálfleik. Okkar menn byrjuðu vel í sókninni og á 20. mínútu fékk Gerrard boltann á miðjum vellinum. Hann átti góðan þríhyrningssamleik við Kuyt sem sprengdi miðju Blackburn upp og þaðan gaf hann boltann á Benayoun sem lék inná teiginn og gaf svo aftur á Gerrard á vítapunktinum. Gerrard rak vinstri fótinn í boltann og missti hann frá sér … hárfínt innfyrir Samba í miðri vörn Blackburn þar sem Gerrard náði honum aftur og lagði hann vel yfir Robinson í markinu. Smá heppnisstimpill yfir þessu en engu að síður mjög vel spilað hjá liðinu og flott mark hjá Gerrard.

Eftir þetta virtist liðið ætla að kafsigla gestina en þó náðu þeir ekki að skora og á 40. mínútu fengu gestirnir jöfnunarmark á silfurfati. Boltinn barst inn í teig Liverpool þar sem Carragher var illa staðsettur og virtist varla vita hvað hann var að gera. Miðverðirnir okkar höfðu verið daprir fram að þessu og virtust ekki hafa hlutina á hreinu þarna og þetta kraðak endaði með því að Carragher datt aftur á bak, fékk boltann að hliðinni á sér og blakaði honum frá með hendinni. Óskiljanlega klaufalegt og réttilega dæmt víti sem Keith Andrews skoraði úr, þótt Pepe Reina hefði verið mjög nálægt því að verja vítið.

Adam var þó ekki lengi í paradís því fjórum mínútum síðar voru okkar menn aftur komnir yfir. Lucas Leiva átti þá frábæra sendingu af miðjum vellinum innfyrir á Torres. Ef Torres hefði verið í fullri leikæfingu hefði hann sennilega haft meiri snerpu til að stinga af með þennan bolta og skora en hann náði því ekki alveg og Blackburn-vörnin náði að pota boltanum frá honum og út til hægri … þar sem Maxi náði fyrstur í boltann, rúllaði honum beint fyrir á nærstöngina þar sem Torres skoraði auðveldlega. Staðan 2-1 í hálfleik og það urðu lokatölur leiksins.

Ég verð að minnast snögglega á eitt áður en ég fer í seinni hálfleikinn. Fabio Aurelio fór út af meiddur eftir rúmlega hálftíma eftir að hafa tekið sprett á eftir boltanum og að mínu mati kristallaðist ferill hans hjá Liverpool í því atviki. Þetta er virkilega góður leikmaður, hágæða bakvörður með fantagóðar spyrnur en Liverpool FC er í dag einfaldlega ekki í aðstöðu til að hafa dýra farþega eða meiðslahrúgur innan sinna raða. Mér skilst að samningur Aurelio sé búinn í sumar og ég myndi segja að það séu 100% líkur á að honum verði ekki boðinn nýr samningur. Við verðum að sjá hversu slæm þessi meiðsli hans eru en það getur vel verið að við höfum verið að horfa á hann í síðasta sinn í rauðu treyjunni í dag. Því miður.

Þá að seinni hálfleiknum. Hann var alls ekki góður. Blackburn-menn komu grimmir til leiks og voru grófir framan af og Alan Wiley, slappur dómari leiksins, verndaði okkar menn ekki nóg að mínu mati. Steven N’Zonzi tók Lucas í upphafi seinni hálfleiks og braut á honum og eftir að dómarinn hafði dæmt brotið greip hann með flötum lófa um andlit Lucasar og skellti honum í jörðina. Fyrir þetta fékk hann aðeins gult spjald og var tekinn út af stuttu seinna. Þá handlék Martin Olsson bakvörður þeirra boltann þegar Maxi var við það að sleppa upp kantinn aleinn og fékk gult spjald og aftur var hann tekinn út af því Sam Allardyce, stjóri Blackburn, sá greinilega að ungu strákarnir hans voru á leiðinni í sturtu ef hann ekki gerði eitthvað í málinu. Í stað Olsson kom svo inn Pascal Chimbonda sem hefði átt að fá strax gult spjald fyrir að toga Maxi niður áður en hann slapp inn í teiginn, og seint í leiknum átti hann að fá beint rautt spjald fyrir að sparka með tökkunum í magann á Maxi eftir að búið var að dæma brot á hann. Annar Blackburn-maðurinn sem átti að fá að fjúka í seinni hálfleik en enn og aftur gerði Wiley ekkert.

Ég veit ekki hvort það var út af þessari baráttu, eða út af stympingunum á milli El-Hadji Diouf og Gerrard (og síðar Diouf og alls Liverpool-liðsins) en okkar menn misstu taktinn allsvakalega í sókninni í síðari hálfleik og fyrir utan Maxi Rodriguez gerðist nánast ekkert af viti upp við teig andstæðinganna. Gerrard og Torres höfðu verið frábærir í fyrri hálfleik en voru áhorfendur að þeim seinni á meðan Benayoun komst aldrei í snertingu við leikinn. Það fór því svo að okkar menn hreinlega héngu á forystunni og máttu þakka Pepe Reina, sem varði allavega þrisvar frábærlega í góðum færum Blackburn-manna, fyrir að fara með þrjú stig af velli í dag.

MAÐUR LEIKSINS: Í hálfleik var ég á góðri leið með að sæma Gerrard að titlinum bara strax, svo góður var hann í fyrri hálfleik, en ég get ekki gefið honum nafnbótina þar sem hann var ekki með í síðari hálfleik. Torres byrjaði vel en þreyttist sýnilega þegar leið á leikinn. Ég ætla því að bregða út af vananum og deila nafnbótinni með þremur leikmönnum sem voru heilt yfir bestir okkar manna í dag:

Javier Mascherano barðist eins og ljón allan leikinn í stöðu sem hann er ekki vanur að spila og hélt þeirra hættulegasta manni, Morten Gamst-Pedersen, niðri. Hann er því maður leiksins.

Maxi Rodriguez byrjaði leikinn rólega en vann sig svo inn í hann og var með hættulegustu mönnum í fyrri hálfleik og yfirburðamaður hjá okkur í þeim seinni. Hann átti stoðsendingu í sigurmarkinu í dag og er því maður leiksins.

Pepe Reina varði frábærlega þegar þess þurfti með í dag og það er mjög einfalt í mínum huga að við hefðum ekki unnið leikinn í dag ef hann hefði ekki verið á milli stanganna. Hann er því maður leiksins.

Næsti leikur er á mánudag eftir rúma viku gegn Wigan á útivelli og jeminn, ég vona að Kyrgiakos verði klár í þann leik svo Carra geti farið aftur úr miðri vörninni. Það verður að segjast að það er engin tilviljun að liðið fór að halda hreinu í desember um leið og Carra var færður úr miðverðinum og það var engin tilviljun hvað vörnin var slök í dag. Carra er 32ja ára og það fer að koma að því að við spyrjum okkur hvort hann sé í fullri alvöru byrjunarliðsmaður hjá okkur. Á meðan Johnson er meiddur má hann spila bakvörðinn en ég vona innilega að Kyrgiakos verði við hlið Agger í miðverðinum í næsta leik.

Já, og svo getum við fagnað því að þurfa ekki að spila aftur við Diouf, Allardyce og félaga á þessari leiktíð. Innilega til hamingju með það.

Liðið gegn Blackburn
Gríðarlega spennandi lið í dag miðað við undanfarnar vikur:

Reina

Mascherano – Carragher – Agger – Aurelio

Gerrard – Lucas

Kuyt – Benayoun – Maxi

Torres

Bekkur: Cavalieri, Aquilani, Babel, Insua, Ngog, Kelly, Ayala.

Mascherano og Aurelio koma inn í bakverðina í stað Insúa og Skrtel sem er meiddur. Kyrgiakos er í banni og því fer Carragher á sinn stað í miðverðinum. Hefði alveg talið Kelly nógu góðan í þennan leik en kannski er hann ekki í formi.

Gerrard kemur svo niður á miðjuna geri ég ráð fyrir og verður þar með Lucas. Frábært að sjá Gerrard loksins fá að stjórna spilinu og vonandi að það heppnist. Fjarveru Aquilani okkar skil ég samt ekki alveg.

Babel dettur “óvænt” úr byrjunarliðinu og inn koma úthvíldur Kuyt, Benayoun sem ég tippa á að sé í holunni og að lokum Maxi. Allir þessir geta svo auðvitað skipt með sér hlutverkum.

Aðal fréttin er síðan að Fernando Torres er í byrjunarliðinu og ég þori alveg að veðja að hann verði tekin útaf snemma í seinni og á morgun komi frétt um að hann sé eitthvað “meiddur”.

Lýst vel á þetta