Liverpool Bloggið » SSteinn

Leikmannaglugginn: Góður? Vondur?
Þá hefur leikmannaglugganum þetta sumarið verið formlega lokað.  Eflaust ansi margir F5 takkar orðnir eyddir á mörgum tölvum stuðningsmanna ensku félaganna og að vanda þá hafa menn misjafna sýn á hlutina.  Sumir eru sáttir, aðrir svona la la og sumir verulega ósáttir.  Auðvitað er margt sem spilar inni þegar kemur að leikmannakaupum og hægt að kenna mörgu um það sem illa fer og þakka mörgu um það sem vel hefur verið gert.  Ég ætla bara strax að taka það fram að ég fell inn í flokkinn yfir þá sem eru verulega ósáttir.

Í rauninni skil ég ekki alveg hvað okkar menn hafa verið að aðhafast í þessum glugga.  Reyndar skil ég almennt ekki hvers vegna svona mörg félög fara á fullt þessa síðustu klukkutíma gluggans, hafandi haft allt sumarið til að vinna í sínum málum.  Það hefur verið algjörlega morgunljóst í eina 18 mánuði að Liverpool vantar einn alvöru framherja sem back-up eða með Fernando Torres.  Staðreyndin er samt sú að þetta er EINA staðan sem ekki hefur verið keypt í þessi tæpu 2 ár.  Ég hef mikla trú á N’gog, en við þurfum engu að síður sterkari menn þarna frammi.  Let’s face it, Dirk Kuyt er kantframherji, við notum hann þannig, Holland gerir það og hann hefur átt sína bestu leiki í þessari stöðu.  Jovanovic er vinstri kantmaður, það er hans staða, þrátt fyrir að margir haldi því fram að hann sé fyrst og fremst framherji.  Hann segir það meira að segja sjálfur að hann sé fyrst og fremst vinstri kantur, sem notaður hefur verið sem framherji þegar á þarf að halda.  Svo skil ég reyndar ekki þá sem segja að hann skorti hraða, hafa þeir ekkert séð til þessa leikmanns?  Hraði er eitt hans aðal vopn, skruggufljótur og líklegast sá hraðasti sem við höfum í dag.

Berum þá framherja okkar við framherja andstæðinga okkar:

Chelsea: Didier Drogba, Nicolas Anelka, Salomon Kalou, Daniel Sturridge, Gael Kakuta

Þrír afar öflugir high profile framherjar og svo 2 efnilegir í N’gog flokknum.

Tottenham:  Jermain Defoe, Peter Crouch, Roman Pavlyuchenko, Robbie Keane

Allt sterkir framherjar, meira að segja er þeirri 4 kostur öflugur leikmaður.

Man.City:  Carlos Tevez, Emmanuel Adebayor, Mario Balotelli, Roque Santa Cruz, Jo

Sem sagt 5 stykki og kostaði enginn þeirra undir 17 milljónum punda, en það er reyndar ekki hægt að miða neitt við þetta lið.

Man.Utd:  Wayne Rooney, Dimitar Berbatov, Javier Hernandez, Federico Macheda, eitthvað götubarn og svo jú Júdas.

Einn í N’gog flokknum, nokkrir reyndir landsliðsmenn og svo undrabarnið sem enginn hefur séð, ekki einu sinni hann sjálfur.

Arsenal:  Robin van Persie, Marouane Chamakh, Nicklas Bendtner, Carlos Vela

Sumir vilja reyndar bæta Walcott við þennan lista, og er þeim það guðvelkomið.

Aston Villa:  Gabriel Agbonlahor, John Carew, Emile Heskey og Nathan Delfouneso

Sumir vilja reyndar bæta Ashley Young við þennan lista og er þeim það velkomið, samt mun meiri breidd en hjá okkur.

Everton:  Luis Saha, Yakubu, Victor Anichebe, Jermaine Beckford, James Vaughan

Það hryggir mig óendanlega mikið að segja frá því að Everton eru með meiri breidd í framherjum en við, how low can you go?

Liverpool:  Fernando Torres, David N’gog, Ryan Babel

Set reyndar stórt spurningamerki við Ryan þarna sem framherja, en hann vill víst spila þar og telur sig bestan í þeirri stöðu.  Við verðum bara að trúa honum og vona það besta.  Hef allavega ekki séð það í þessi fáu skipti sem hann hefur spilað sem framherji á sínum ferli.  Hjá Liverpool, Hollandi og Ajax hefur hann nánast eingöngu spilað sem kantframherji vinstra megin.

En nei, enginn kom framherjinn og verðum við bara að sætta okkur við það.  Enn einum leikmannaglugganum lokað og við í plús í leikmannaviðskiptum.  Hvernig í ósköpunum er hægt að ætlast til þess að lið sé að berjast um titil eða toppsætin þegar staðan er svona?  Það er alveg ljóst hvað er búið að vera stærsta vandamál Liverpool FC, það sjá það allir sem á annað borð opna augun.  EIGENDURNIR, við munum ekki taka eitt hænuskref fram á við fyrr en við losnum við þessa trúða og þær skuldir sem þeir hafa hellt yfir félagið.  FJÓRIR leikmannagluggar í röð í plús, samtals tæpar 40 milljónir punda í plús, og svo segja þessir lygarar að ekkert af leikmannaviðskiptunum fari upp í skuldir.  Þetta sumarið erum við samtals í tæplega 13 milljón punda plús, í januar voru þær 8, síðasta sumar nokkurn veginn á sléttu og svo janúar þar á undan í 17,5 í plús.  Yfirleitt hefur Liverpool haft budget upp á einhverjar 10-15 millur pr. season fyrir utan leikmannasölur, þannig að það sér það hver heilvita maður að þetta er bara engan veginn á þá leið að við getum gert okkur minnstu vonir um að vera að keppa um toppsætin.

En burtséð frá þessu ranti mínu, þá verðum við fyrst að horfa framan í staðreyndir og staðreyndin er sú að klúbburinn er á kúpunni vegna allra þessara skulda.  Hvað þarf að gera þegar klúbbur er á kúpunni og getur lítið sett í leikmannakaup?  Jú, forgangsraðað og reynt að vinna úr því sem fyrir er.  Ég ætla ekki að fara hérna að gagnrýna Roy Hodgson beint, það er ekki ætlunin, en ég verð að setja stórt spurningamerki við þessi leikmannaviðskipti, hvort sem hann sé að ákveða hlutina, eða hvort hendur hans séu rígbundnar langt aftur fyrir bak.

Byrjum á byrjuninni, skil vel söluna á Diego Cavalieri, leikmaður sem er ekki homegrown og aldrei séns að hann færi að taka frá slíkt sæti.  Miðað við fjárhagsstöðuna (eins og þetta lítur út fyrir manni) þá hefði ég hreinlega treyst Gulacsi fyrir varamarkvarðarstöðunni.  En það er lítið hægt að fárast yfir þessu, komum út í plús við þessi skipti og sá sem við keyptum er homegrown, þó svo að ég hefði alveg viljað spara þennann pening og treysta á hinn geysilega efnilega Gulacsi sem varamarkvörð í vetur.  Í sumar fóru frá okkur tveir ungir markverðir, David Martin og Chris Oldfield.

Ekkert var gert hægra megin í vörninni annað en það að Degen var lánaður út og fer því af launaskrá og fáum við lánsfé fyrir hann þetta árið.  Kelly fullfær um að vera varamaður fyrir Glen.  Miðvarðarstöðurnar okkar eru líklegast með allra mestu breiddina í liðinu.  Carra, Agger, Skrtel, Kyrgiakos, Ayala og Mavinga, svo bættist Danny Wilson, efnilegasti leikmaður Skota við hópinn í sumar.  Við seldum svo Mikel San José til Bilbao fyrir alveg ágætis pening.

Þá er það hin mergjaða vinstri bakvarðarstaða.  Þar skiptum við út homegrown 21 árs gömlum Insúa fyrir homegrown 29 ára gömlum Konschesky og sem samsvarar 5 milljónum punda þar að auki.  Sorry, bara næ þessu engan veginn.  Algjörlega á því að heill Aurelio er betri en báðir þessir leikmenn.  Insúa spilaði klárlega of mikið á síðasta tímabili, en það er potential í þessum strák, hann hefur nokkrum sinnum verið valinn í Argentínska landsliðið, og ekki bara af Maradona á einhverju trippi.  Hinn er Englendingur sem hefur verið að fara talsvert á milli klúbba undanfarin ár, hefur ekki verið framarlega í röðinni í sína stöðu hjá Englandi, hefur spilað 2 hálfleiki í æfingaleikjum fyrir þá og er mjög aftarlega í goggunarröðinni.  Menn eins og Ashley Cole, Wayne Bridge, Stephen Warnock, Leighton Baines og meira að segja miðvörðurinn Lescott hafa allir verið valdir frekar undanfarin ár.  Ég myndi skilja þetta ef þetta væri að skila okkur einhverju fjárhagslega, en nei, við erum í stórum mínum með þessi skipti, lánum Insúa og kaupum þennann.  Ég verð að segja algjörlega fyrir mitt leiti að ég hefði frekar viljað hafa Insúa sem backup fyrir Aurelio og setja þessar 5 millur í að bæta pening í sarpinn fyrir góðum framherja.  Þess utan fór svo Robbie nokkur Threlfall í burt frá félaginu.

Áfram veginn, næst berum við niður á hægri kantinn, þar gerðist ekkert annað en það að Nabil El Zhar var lánaður til Grikklands í 1 ár.  Ekki hár launakostnaður þar á ferð, en einhverjar krónur í kassann fyrir lánsdvölina.  Engin viðbót hérna.

Þá eru það stóru breytingarnar, miðjan.  Við seljum einn allra sterkasta varnartengilið í veröldinni til Barcelona á helling af peningum, þeir borguðu heilar 20 milljónir punda út í honum við afhendingu.  Í staðinn kom nagli frá Portúgal, sem ég verð að segja eins og er, er bara assgoti spenntur fyrir.  Það verður fróðlegt að sjá hversu fljótt hann settlast inn í liðið okkar, harðduglegur, eitilharður og virðist vera með alveg ágætis sendingargetu.  Gott og vel, erum búnir að fá sterkan mann fyrir Javier, varnartengilið og eigum tæplega helming upphæðarinnar eftir sem við fengum í kassann við þessi skipti.  Salan á Javier var einfaldlega óumflýjanleg og menn fljótir að redda manni í staðinn, vel gert.  Þá er komið að hinum kaflanum í sögunni.  Ég var virkilega að vona að Alberto Aquilani myndi stíga upp í vetur og fá að sýna okkur óumdeilda hæfileika sína með liðinu.  Maður sá svo sannarlega glimpses af þeim þegar hann var að komast í form í lok þess síðasta, og ég verð að viðurkenna það að ég hlakkaði ferlega til að sjá hann inn í tímabilið eftir heilt undirbúningstímabil og ómeiddur.  Ó nei, heldur betur ekki.  Hann er LÁNAÐUR til Juventus og við fáum Christian Poulsen, þrítugan Dana, og borgum slatta af milljónum fyrir.  Með Meireles og Lucas sem varnartengiliði, þá hefði ég heldur viljað hafa Stevie og Alberto úr að velja þeim við hlið, sem meira að segja geta spilað í holunni líka.  Nú veit maður aldrei alla söguna í svona málum, en þetta bara meikar akkúrat ekkert sense, bara ekkert.  Útskýringin sem Roy kom með var að hann þyrfti að fá að spila, bíddu við, drepið mig ekki alveg, erum við með svo fáránlega mikla breidd að við sjáum fram á að hafa ekkert getað notað hann?  Hefði ekki verið betra að spara þessar tæpu 5 millur, bætt þeim við þessar 5 fyrir vinstri bakvörðinn og geta keypt alvöru striker á einhverjar 20 milljónir punda?  Úff, bara ekki að gúddera þetta.  Aðrar hreyfingar hérna eru að Plessis var seldur til Panathinaikos fyrir rúman milljón kall og Duran fékk frjálsa sölu.  Inn kom svo Jonjo Shelvey síðast liðið vor.

Vinstri kantstaðan breyttist einnig hjá okkur, út fór hinn heilatognaði Riera og inn kom Milan Jovanovic.  Eins og ég sagði hér í byrjun, þá er ég ekki alveg að botna umræður um Milan blessaðan.  Sú mýta að hann sé ekki hraður er bara óskiljanleg og eins það að hann sé ekki eiginlegur kantmaður.  Hann er ekki með sömu boltatækni og Riera, en hann er með höfuð skrúfað á búkinn, mikla baráttu og ég er alveg sannfærður um að við eigum eftir að sjá það rækilega að þessi staða hefur styrkst hjá okkur við þessi skipti.  En enn og aftur, peningur inn fyrir Spánverjann og hinn frítt, svo seldum við tvo gutta úr þessari stöðu þar að auki.  Vincent Weijl var seldur til Spánar og Alex Kacaniklic fór til Fulham í dílnum sem var gerður vegna Konchesky.

Holan blessuð, flokkum þessa stöðu allavega þannig núna.  Inn kemur Joe Cole á free transfer og út fer Yossi fyrir slatta af milljónum.  LFC History talar um 6, ég var búinn að fá það nokkuð staðfest í sumar að þetta væri nær 8 millum, en þar sem Mummi sér um þetta á þessari frábæru síðu, þá tökum við að sjálfsögðu meira mark á henni.  Í mínum huga, klár bæting, engin spurning, hefði svarað spurningunni nákvæmlega eins þegar Yossi var hjá okkur og Cole hjá þeim.  Finnst Cole hreinlega mun betri leikmaður, með fullri virðingu fyrir honum.  En jafnframt voru kaup á hinum fáránlega efnilega Suso, einnig kláruð.  Hrikalega spennandi sá strákur.

Þá er það framherja staðan, einfalt.  Nemeth og Dalla Valle seldir, ENGINN inn í staðinn.  Nuff said.

Þar hafið þið það, svona leit þessi gluggi út.  Sumir alveg sáttir, aðrir ekki.  Sjálfur?  Alveg fáránlega fjarri því að vera sáttur, finnst hreinlega við hafa farið illa með fé fyrst við erum svona skelfilega blankir og ekki réttar áherslur.  Í mínum huga er klárt mál að breiddin í liðinu hefur ekki aukist, alveg á tæru.  En hafa gæðin minnkað?  Mitt mat er þetta:

Cavalieri út – Jones inn:  Á sléttu, skiptir allavega minnstu máli

Insúa út – Konchesky inn:  Á sléttu

Riera út – Jovanovic inn:  Meiri gæði inn

Mascherano út – Meireles inn:  The jury is out, en í dag verður maður að segja að meiri gæði fóru út

Aquilani út – Poulsen inn:  Klárlega meiri gæði út

Benayoun út – Cole inn:  Meiri gæði inn

Heilt yfir, ef við hefðum haldið þessum tveim sem við sendum út að láni og sleppt þeim tveim kaupum, þá hefðum við verið með yfir 20 milljónir til að kaupa auka framherja og einnig búnir að bæta vinstri kantstöðuna ásamt holunni.  Fari þetta í fúlan pytt, það sem fer einna mest í taugarnar á mér er að menn skuli ekki vera búnir að dratthalast til að vinna sína undirbúningsvinnu, verandi bjóðandi í leikmenn sem menn vilja, nokkrum klukkutímum fyrir lokun gluggans, fá svo nei í andlitið vegna þess að viðkomandi lið hefur ekki efni á að eyða peningunum aftur til að styrkja liðið sitt.  Skíta vinnubrögð og skíta leikmannagluggi að baki.

Það er bara algjörlega á tæru, það þarf að klára söluna á félaginu núna á næstu mánuðum, koma þessum Purslow og co. sem lengst í burtu frá félaginu svo hægt sé að fara að haga sér eins og eitt af stærstu liðum Evrópu.  Menn eru í algjörum fantasíu draumaheimi ef menn halda það virkilega að við séum að fara að berjast um efstu 3 sætin í deildinni, svo mikið er víst.  En við stuðningsmennirnir, hvað getum við gert?  Jú, haldið áfram því sem við erum lang bestir í, styðja okkar lið, styðja okkar stjóra og styðja okkar leikmenn.  Nú er glugginn búinn að loka, ekkert mun breyta því sem hefur verið gert, ég búinn að fá útrás fyrir rantið mitt.  Næsta djobb í þessu er að styðja við bakið á Konchesky, Poulsen og co. þegar maður fer á völlinn, gagnrýna þegar það á við, en umfram allt, styðja sitt lið í gegnum súrt og sætt, maður gefst aldrei upp þótt á móti blási, það er að mörgu að keppa í allan vetur.

W.B.A á morgun
Það má segja að stutt sé á milli leikjanna þessa dagana, það er BARA gott.  Næstur á dagskránni er algjör lykilleikur fyrir okkar menn.  Jú, það er ekki oft sem maður getur flokkað leiki gegn sjálfum W.B.A sem lykilleiki, en svo sannarlega flokkast þessi undir slíkt.  Það er ekkert sem heitir, við hreinlega verðum að vinna þennan leik til að stimpla okkur inn í tímabilið í deildinni.  Við vorum óheppnir gegn Arsenal í opnunarleik okkar, en áttum svo algjörlega skilið að steinliggja úti gegn Man.City á mánudaginn, þar sem Roy Hodgson framdi taktískt sjálfsmorð.

En nú er kominn nýr dagur, annar leikur og menn hreinlega verða að stíga upp og sýna úr hverju menn eru gerðir.  Fjölmargir leikmenn voru hvíldir og losaðir undan erfiðu ferðalagi til Tyrklands, þannig að menn ættu almennt ekki að vera þreyttir.  Þeir sem spiluðu þann leik verða almennt ekki þreyttir, og því er engin afsökun á morgun á Anfield.  Ég heimta ekki bara sigur, nei, ég heimta sannfærandi sigur.  Það getur vel verið að maður líti út fyrir að vera spoiled krakki, en þetta er bara svona.  Við verðum að fara að leggja af stað í þessa 38 leikja göngu sem deildarkeppnin er.  Við erum búnir að spila einn góðan hálfleik og í honum vorum við einum færri.

Ég nenni ekki að velta mér neitt upp úr þessu W.B.A liði, það er bara ekki þannig lið að það þurfi að spá mikið í það.  Ef okkar menn spila eðlilegan leik, þá á að vera algjör og stór klassamunur á liðunum.  Mig minnir að ég hafi séð það einhvers staðar að þeir hafi ekki unnið okkur síðan sautján hundruð og súrkál og það eru fimmtán hundruð og ferskjur síðan þeir náðu að skora á Anfield.  Ég rétt vona að þeir haldi sig áfram við þá iðju að gera harla lítið og ekki neitt á þessum yndislega velli.

Ég reikna með okkar nánast allra sterkasta liði á morgun.  Ég er reyndar hræddur um að Roy Hodgson stilli enn og aftur Agger upp í bakverðinum, en ég hefði kosið að sjá Aurelio þar, enda einn af fáum sem átti góðan leik í Tyrklandi.  Ég vil hreinlega sjá bara alvöru vinstri bakvörð í þessari stöðu og ég hreinlega vil sjá okkar besta miðvörð (lesist Agger) í miðvarðarstöðunni.  CarrAgger er mitt uppáhald þegar kemur að miðvarðarstöðunum.  Glen að sjálfsögðu hægra megin í vörninni og ég ætla að koma aftur á óvart (kannski öruggara að setja það hér inn að þetta sé kaldhæðni) og velja Reina í markið.  Miðjan er öllu erfiðari, ég vil sjá Dirk hægra megin, Milan vinstra megin og Lucas með Gerrard á miðjunni.  Það kæmi mér reyndar akkúrat ekkert á óvart að sjá Poulsen þarna inni.  Minn draumur væri svo að fá að sjá Pacheco fyrir aftan Torres frammi.  Ég veit, engar líkur á því, en ég væri samt til í það.  Það er jú oft glettilega mikill munur á því sem maður sjálfur kýs, eða hvað maður telur líklegast.

Mitt lið:

Reina

Johnson – Carragher – Agger – Aurelio

Lucas – Gerrard

Kuyt – Pacheco- Jovanovic

Torres

Liðið eins og ég spái því:

Reina

Johnson – Carragher – Skrtel – Agger

Lucas – Poulsen

Kuyt – Gerrard- Jovanovic

Torres

Bekkurinn:  Jones, Kelly, Aurelio, Kyrgiakos, Maxi, Babel og Ngog

En eins og ég sagði hér í byrjun, algjör lykilleikur þar sem við verðum gjörsamlega að stimpla okkur inn.  Javier er farinn og ætti því að vera sæmilegt andrúmsloft á Melwood.  Væntanlega munu einhver andlit bætast við á æfingasvæðið á næstu dögum, en það er um að gera fyrir hina að stimpla sig inn, vinna fyrir kaupinu sínu og landa 3 stigum á öruggan og fallegan hátt.  Roy mætti mín vegna í svona leik stilla upp 4-4-2, allt annað að spila við þetta lið á heimavelli heldur en City á útivelli.  Hann má í sjálfu sér stilla upp í hvaða kerfi sem er, bara að leikmenn þeir sem hann velur inná séu klárir í slaginn og keyri yfir mótherja okkar.  Ég ætla að vera bjartsýnn á þetta og spá 3-0 sigri.  Gerrard og Torres stimpla sig báðir inn og svo opnar Milan markareikning sinn hjá okkur.  KOMA SVO.

Man.City á morgun
Já það er skammt stórra högga á milli hjá okkar mönnum, tímabilið byrjað svo ekki verður um villst.  Leikirnir koma ótt og títt og þannig vill maður hafa þetta.  Ekkert hálfkák, bara fulla ferð, allt í botn.  Maður sá það strax og leikjalistinn var gefinn út að fyrstu 5 leikir okkar manna í deild, myndu segja mikið til um hvernig tímabilið myndi verða hjá okkur.  Við erum búnir með einn af þessum 5 og vorum við þar óheppnir að næla ekki í öll þrjú stigin.  Ég var að vonast eftir 11 stigum út úr þessum 5 leikjum, og við erum komnir með eitt í hús.  Við erum líklegast að mæta Man.City á næst besta tímapunkti tímabilsins.  Best hefði verið að mæta þeim í fyrstu umferðinni, en þó svo að maður hafi ekki hugmynd um það hvernig leikurinn á morgun muni þróast, þá verður að segjast eins og er að þeir eru búnir að vera að hringla mikið með mannskap sinn og því ættu strengir ekki að vera fullkomlega stilltir hjá þeim.

Þetta mikla kaupæði hjá City hefur gert það að verkum að þeir ættu að teljast sem eitt af liðunum sem berst um titilinn.  Ég er á því að þeir hefðu hvort eð er verið taldir í þeim hópi, þrátt fyrir að hafa ekki farið út í mannabreytingarnar í sumar.  Fannst þeir vera að eflast mikið undir lok síðasta tímabils og held því að þeir taki núna eitt skref tilbaka áður en þeir fara að sýna styrk sinn.  Í rauninni finnst mér þeir hafa styrkt liðið sitt ótrúlega lítið í sumar, þrátt fyrir allar þessar breytingar.  David Silva finnst mér vera stærsta málið þeirra, en þeir hafa svo fengið Boateng í vörnina sem ég myndi telja mjög sterka viðbót.  Balotelli inn og Bellamy út, ég er efins þar, en reyndar mun fleiri ár eftir í þeim fyrrnefnda, og svo Milner vs. Ireland, sem ég álít ekkert svo svaðalega styrkingu, allavega ekkert í námunda við mismuninn á kaupverði þeirra tveggja.  Svo bæta þeir við sig Jæja Toure, leikmannakaup sem ég bara gjörsamlega skil engan veginn.  Hvernig sá leikmaður hefur getað farið á 28 milljónir punda og orðið launahæstur í ensku deildinni er bara beyond believe.  Mér hefur ávallt fundist hann la la leikmaður, en enginn heimsklassa maður.  Og fyrir voru City með marga fína varnartengiliði, Barry, De Jong, Kompany og svo Vieira.  Bara næ þessu ekki hjá þeim.

En hvað um það, City eiga líklegast stærsta og dýrasta hópinn á Englandi, en það spila bara 11 inná í einu.  Yfir heilt tímabil, þá getur verið ferlega gott að vera með stóran og breiðan hóp gæða knattspyrnumanna, en hann hefur minnsta þýðingu í upphafi tímabilsins.  Þess vegna er það mín von og trú að við getum nælt okkur í heil þrjú stig á þessum erfiða útivelli akkúrat núna.  Hefði minni trú á því, jahh í mars, apríl t.d.  En það skal ekki farið í felur með það að þeir hafa einstaklega hæfileikaríka einstaklinga innan síns liðs.  Tevez er t.d. að mínum dómi einn allra sterkasti leikmaður ensku deildarinnar.  Það verður enginn viðvaningur í neinni stöðu hjá þeim og þetta eru allt virkilega góðir leikmenn, meira að segja Lescott, þó hann eigi tilkall til titilsins “whatthefuckerumennsnargeðveikiraðborgasvonamikiðfyrirþessigæði”.  En hvað um það, að alvöru málsins, okkar mönnum.

Mikið var ég glaður að sjá að við munum ekki selja neinn leikmann til Inter þetta árið, gríðarlega ánægður.  Það þýðir að Dirk fer ekki fet, og líkurnar á að Javier fari minnka alveg um helming.  Joe Cole er kominn í leikbann og tekur út fyrsta leik sinn af þremur.  Svo er talið vafamál hvort Daniel Agger verði búinn að jafna sig eftir heilahristinginn sem hann fékk í leiknum gegn Arsenal.  Það er víst búið að vera Groundhog Day hjá honum síðan, man varla neitt og spurning um að einhver hvísli því bara að honum að hann sé Messi og spörum okkur stóran pening í kaupum á honum.

Ég reikna með að Reina haldi sæti sínu í markinu, já veit að margir eru undrandi á þessu, en ég hef tröllatrú á þessum markverði.  Glen kemur inn í hægri bakvarðarstöðuna og þeir Carra og Skrtel verða svo í miðvarðarparinu.  Aurelio heldur þá væntanlega sæti sínu vinstra megin, ef Agger er ennþá frá.  Kuyt kemur inn á hægri kantinn og við verðum með Milan á þeim vinstri.  Þá kemur stóra spurningin.  Hvað mun Roy gera varðandi miðjuna.  Búið að lána Alberto til Juventus, þannig að ekki kemur hann í holuna.  Cole eins og áður sagði í banni og ég efast um að Pacheco verði treyst í þennan stóra leik.  Auðvitað hefði maður helst kosið að sjá bara Maxi hægra megin og Kuyt hreinlega fyrir aftan fremsta mann, en ég held að okkur verði ekki að ósk okkar.  Held að Stevie verði settur í holuna og við verðum með 2 varnartengiliði.  Ég ætla því að tippa á að Poulsen og Javier verði saman á miðjunni.  Er sjálfur ekki hrifinn af því, en held að þetta verði svona.  Svo er bara spurning hvort hann treysti Fernando til að byrja leikinn, eða hvort hann byrji með Ngog.  Ég ætla að giska á að sá síðarnefndi hefji leik.  Svona spái ég því liðinu:

Reina

Johnson – Carragher – Skrtel – Aurelio

Mascherano – Poulsen

Kuyt – Gerrard – Jovanovic

Ngog

Bekkurinn:  Jones, Kelly, Kyrgiakos, Lucas, Babel, Maxi og Torres

Nú þurfum við bara að hefja tímabilið formlega.  Sjálfstraust og skilaboð yrðu mikil og afdráttarlaus ef sigur ynnist.  Ég vil sjá menn algjörlega spólandi vitlausa í þessum leik, berjast um hvern einasta djöfulsins bolta, frá fyrstu sekúndu til þeirrar síðustu.  Við virðumst vera að halda öllum okkar helstu leikmönnum þetta tímabilið og við viljum sýna það að sá leikmannahópur sem við erum með, sé alveg nógu góður til að geta barist á toppi deildarinnar.  Hvernig gera menn það?  Jú með því að sýna passion, berjast fyrir rauðu treyjuna, alveg sama í hvaða landi þú fæddist, þú berst fyrir þetta félag, PUNKTUR.  Þetta er stutt ferðalag yfir til borgarinnar sem enginn vill vera í of lengi, en bara í Fowlers bænum, þegar þið farið þaðan kæru leikmenn, troðið þessum 3 stigum niður í æfingatöskurnar og rennið fyrir (ekki opna fyrr en komið er í Mekka knattspyrnunnar, Liverpool borgar.

Ég ætla að gerast svo djarfur að spá því að við munum sýna klærnar í leiknum, við verðum fullir eldmóðs og vinnum þennan leik.  Eigum við ekki að segja að hann endi 1-2, Stevie setur hann úr víti og Jovanovic setur hitt.  Tevez mun ýta einum screamer inn fyrir þá.

Allir klárir í bátana?

Almennt um leikmannakaup og sölur
Það er kominn opinn þráður hér að neðan, en ég ákvað samt að setja inn sér færslu um leikmannakaup og sölur Liverpool FC undir stjórn Roy Hodgson.  Það er svolítið magnað hvað maður sveiflast frá bjartsýni og yfir í svartsýni þegar mál tengd leikmannamálum eru ekki komin á hreint.  Það versta er þegar allt virðist vera að fara á fullt, korteri áður en leikmannaglugganum lokar.  Ég verð bara að segja alveg eins og er, mér líst illa á þá leikmenn sem Roy hefur verið að eltast við í sumar, sér í lagi þegar skoðað er hverjir eru orðaðir í burtu frá okkur.

Diego Cavalieri er á útleið sem varamarkvörður liðsins og inn kom Brad Jones.  Í mínum huga er Cavalieri mun betri markvörður, en ég skil þessi skipti vel þar sem það væri afar vitlaust að eyða dýrmætu “útlendings” sæti af 25 manna hópnum í varamarkvörð sem vitað er að spilar lítið.  Þannig að gott og vel, þetta sleppur vel fyrir horn.

Mikið hefur verið reynt að selja Insúa í sumar, sem er engu að síður “homegrown” leikmaður og því væntanlega nokkuð mikilvægur sem slíkur.  Gott og vel, ef góður peningur fæst fyrir hann, þá er hann langt því frá að vera ómissandi fyrir liðið.  En hvaða leikmenn hefur Roy verið að reyna að fá í staðinn?  Það var staðfest að hann vildi kaupa Luke Young, já LUKE YOUNG.  Fyrir það fyrsta þá er hann hægri bakvörður og í öðru lagi þá er þetta leikmaður kominn yfir þrítugt sem Aston Villa getur lítið sem ekkert notað.  Sem betur fer vildi hann sjálfur ekki koma, þrátt fyrir að félögin hafi verið búin að komast að samkomulagi um kaupverð og slíkt.  Takk fyrir það Luke, ég er þér afar þakklátur.  Síðan staðfesti Danny Murphy það nánast að við séum búnir að vera að eltast við Paul Konchesky frá Fulham.  Hann verður þrítugur í maí og hefur aldrei nokkurn tíman verið neitt annað en miðlungs vinstri bakvörður og hversu mikil bæting er hann frá Insúa?  Insúa á allavega klárlega eftir að bæta sig sem knattspyrnumaður, enda bara 21 árs gamall, hans fyrsta alvöru tímabil núna síðast (og liðið í heild dapurt) og hefur verið að banka á landsliðsdyrnar hjá Argentínu.  Ef væri verið að skipta honum út fyrir first choice vinstri bakvörð, gæðaleikmann, þá myndi ég vel skilja þetta.

Við nánast erum búnir að skipta út mann fyrir mann vinstra megin á miðjunni, þ.e. Jovanovic fyrir Riera.  Flott skipti og líst mér afar vel á nýja kappann.  En það var að vísu búið að ganga frá því löngu áður en Roy kom.  Benayoun fer og Cole kemur inn í staðinn.  Frábær skipti það og það þarf ekkert að ræða það neitt meira.  Svo kemur að Mascherano sögunni endalausu.  Það er nokkuð ljóst að hann vill fara, gott og vel, það er beðið eftir rétta tilboðinu í hann.  Ég yrði ekkert svekktur þó það kæmi ekki, en ég er engu að síður ennþá að klóra mér í hausnum yfir kaupunum á Christian Poulsen.  Slarkfær leikmaður og allt það, ætla engan veginn að dæma hann útfrá leiknum í gær, en ég skil engu að síður ekki kaupin á honum.  Ekki misskilja mig, ég mun standa þétt að baki honum á meðan hann klæðist Liverpool treyjunni, um það er engin spurning, en ég skil samt ekki þessi kaup.  Ég skil þau ennþá síður eftir nýjasta útspilið hjá Roy.  Aquilani á láni aftur til Ítalíu???  Hvað er það?  Ef hann hefur litla trú á honum, eða eitthvað annað sem við vitum ekki um geri þetta að verkum, af hverju var þá ekki búið að gera eitthvað fyrir löngu síðan í þessu máli?  Roy sagði sjálfur að hann hefði ákveðið að spila honum ekki í gær út af þessu væntanlega láni, þannig að fréttir þess efnis að hann hafi gert sér upp magaverk, eiga ekki við rök að styðjast.  En af hverju í ósköpunum að fara út í þetta korteri fyrir lok leikmannagluggans?  Við erum ekkert að kafna úr breidd hópsins, það er klárt.  Alberto er einn af fáum svona unique sendingarmönnum í hópnum og ætti svo sannarlega vel heima á miðjunni með einhverjum af jöxlunum okkar.  Hann var að spila virkilega vel undir lok síðasta tímabils, þannig að hvað töpum við í rauninni á því að gefa honum sénsinn.  Mér finnst þetta hreinlega galið alveg hreint, en auðvitað geta verið aðrar ástæður sem við höfum ekki hugmynd um, en þetta meikar bara ekkert sense fyrir manni.  Við vitum jú alveg meiðslasögu Joe Cole og Gerrard, þannig að hann ætti að geta fengið alveg nógan spilatíma.

Svo eru það nýjustu fréttirnar, Dirk Kuyt jafnvel til Inter.  Þegar umboðsmaðurinn hans er að tala um að Dirk sé að hugsa sig um, þá er væntanlega eitthvað hæft í þeim fréttum sem berast frá Hollenskum dagblöðum um að félögin séu búin að komast að samkomulagi um kaupverð.  Bíðum nú aldeilis pollróleg, erum við að reyna að tæta liðið í sundur nú að síðustu metrunum fyrir lok leikmannagluggans?  Kuyt hefur farið brjálæðislega í taugarnar á mörgum, en hann hefur engu að síður verið lykilmaður hjá okkur undanfarin ár.  Ég bara hreinlega neita að trúa því að Roy láti það hvarfla að sér að láta hann fara.  Einn af þessum útlendingum sem hafa sýnt það trekk í trekk að hjarta hans slær með félaginu hans og hann myndi leggjast fyrir framan valtara ef hann yrði beðinn um það.  Menn geta rætt fram og aftur um hvar hann skortir hæfileika, á hvaða sviðum, en commitment geta menn ekki efast um hjá honum.  Og við þurfum svo sannarlega á öllum slíkum að halda fyrir þetta tímabil sem framundan er.

Það má lesa ýmislegt út úr orðum mínum hér að ofan, en að sjálfsögðu á Roy stuðning minn allann í stjórastöðunni.  Ég er samt langt frá því að vera impressed með þau mál sem hafa verið að gerast á leikmannamarkaðinum hjá honum í sumar.  Hann verður hreinlega að átta sig á því að hann er að stýra Liverpool FC og það er ekki það sama og að stýra FC Köpenhavn eða Fulham.  Ef skipta á út góðum leikmönnum, þá ættum við að fá inn enn betri leikmenn í staðinn.  Ef peningarnir eru ekki fyrir hendi til að gera slíkt, þá hljótum við að krefjast þess að þá verði bara betra að spila úr því sem til staðar er.  Allavega, ekki fá inn veikari leikmenn en þeir sem hverfa á braut.  Þá fyrst er hægt að segja að Liverpool FC sé að færast nær meðalmennskunni.  Ég vona svo sannarlega að við höldum Javier, Alberto og Dirk hjá okkur áfram.  Ef það gerist ekki, þá þurfum við meiri gæði í staðinn.  Og hananú…

Rabotnicki á morgun
Fyrsta upphitun mín á þessu nýja tímabili, og hefur nú ansi margt breyst síðan maður hitaði upp síðast.  Ég horfði á fyrri leik þessara liða í Makedóníu og málið er einfalt, þessir mótherjar okkar eru hreinlega með mjög slakt lið.  Ég hef eiginlega mestar áhyggjur af því fyrir leikinn á morgun, þ.e. að menn taki þetta ekkert of alvarlega.  Ég hefði hreinlega viljað byrja með ýmsa fringe leikmenn í þessum leik, kannski ekki ósvipað lið og í síðasta leik gegn þeim.  En það verður líklegast ekki, allavega ekki ef maður tekur mið af þeim leikmönnum sem spiluðu gegn Tranmere í gær.  Það er kannski ágætt að nota tækifærið og fjalla aðeins um þann leik.

Ég sem sagt horfði á hann allann í beinni útsendingu á Liverpoolfc.tv.  Við unnum þetta neðri deildar lið 2-0 á útivelli og það með alveg hreint korn ungt lið.  Bouzanis var í markinu allan leikinn, Flanagan í hægri bakk og Robinson í þeim vinstri.  Allir þessir þrír komust mjög vel frá leiknum og sér í lagi Robinson.  Í miðvörðunum voru svo þeir Wisdom (fyrirliði) og Ayala.  Ayala var frábær og spilaði allann leikinn, Wisdom virkaði líka rosalega vel á mig, sem og Coady sem leysti hann af í þeim seinni.  Ayala verður því væntanlega alls ekki með á morgun.  Á miðri miðjunni voru svo Guðlaugur Victor og Irwin.  Guðlaugur átti flottan leik, almennt rólegur á boltanum og stýrði liðinu, en ég var ekki jafn hrifinn af Irwin.  Ince var úti vinstra megin og Amoo hægra megin.  Báðir voru hrikalega sprækir.  Það toppar þó enginn hann Suso litla sem spilaði í holunni, þvílíkur leikur hjá þeim 16 ára strák.  Hann er svo líkur Pacheco á velli að ég myndi halda að þeir gætu hreinlega ruglast á sjálfum sér.  Þvílíkt efni sem þessi strákur er og klárlega maður leiksins.  Frammi var svo Saric sem ég var langt frá því að heillast af.  Cooper, Bruna og Silva komu svo inná og náðu ekki að heilla mig, en inná kom einnig Ngoo og hann náði aftur á móti að heilla mig hreinlega upp úr skónum.  Stór og sterkur framherji sem er með fullt af tækni og hraða líka.  En hvað um það, sjálfsmark og Amoo sáu um að staðan í lokin var 0-2 og Suso er nafn sem við eigum eftir að sjá oft á næstu árum.

En að morgundeginum aftur, ég reikna því engan veginn með því að Amoo verði heldur með þar sem hann spilaði 77 mínútur í gær, og Ince spilaði 70.  Það munu því væntanlega bætast við nokkrar kanónur í hópinn frá fyrri leik liðanna.  Leikurinn kemur þó of fljótt fyrir Pepe, Fernando, Babel og Dirk.  En það var stór hópur sem æfði á Melwood í morgun, í rauninni allir leikmenn liðsins í dag fyrir utan Torres (og varaliðið sem spilaði í gær).  Spearing, Darby, Eccleston, Pacheco og Kelly spiluðu ekki með varaliðinu og verða því nánast pottþétt einhverjir í hóp á morgun.  Meira að segja Degen var á æfingu í morgun, þrátt fyrir að hann sé nánast búinn að skrifa undir hjá Stuttgart.  Ég reikna nú heldur ekki með að Javier Mascherano spili þennan leik , þrátt fyrir að hafa æft á fullu með liðinu undanfarna daga, og Hodgson hefur hreinlega staðfest að hvorki hann né Maxi spili.

Ég nenni ekki að spá neitt frekar í mótherjum okkar, það þarf að klára þennan leik og nota hann vel til að ná sér í leikæfingu.  Það yrði algjört stórslys að vinna þetta lið ekki örugglega á Anfield, sér í lagi þegar horft er til fyrri leiksins.  Eins og ég sagði í upphafi upphitunar, þá eru þessir mótherjar einfaldlega mjög slakir og er ég ekkert hræddur við að segja það hér.

Það er ferlega erfitt að spá fyrir um það hvernig liðinu verður stillt upp, en það hjálpar þó að Roy er búinn að staðfesta 5 þeirra.  Það eru einungis þrjá skiptingar leyfðar og því var ég að vonast eftir að menn eins og Stevie og fleiri yrðu ekki í byrjunarliðinu, frekar að þeir kæmu inná þegar á leikinn liði.  En þessir menn þurfa jú leikæfingu líka og ég veit að Roy Hodgson sé ekki sammála mér og stillir þeim því upp strax frá byrjun.  Ég ætla að giska á að liðið verði svona:

Cavalieri

Johnson – Skrtel – Carragher – Insúa

Lucas – Gerrard

Cole – Aquilani – Jovanovic

Ngog

Bekkurinn:  Gulacsi, Kelly, Kyrgiakos, Spearing, Shelvey, Pacheco og Eccleston.

Ég set Insúa í bakvörðinn, þar sem ég held að Aurelio sé ekki kominn í alvöru form og menn ætli sér ekki að taka stóra sénsa með líkamann á honum fyrir mót.  Það gæti svo sem alveg verið að það yrði reynt að setja Kelly inn hægra megin og Glen yfir til vinstri, eða þá Kyrgiakos inn í miðvörðinn og Carra í vinstri bakvörðinn.  En ég ætla samt að spá þessu svona.

Ég vonast bara til þess að þetta verði fjörlegur leikur hjá okkur og að menn verði svo algjörlega tilbúnir í slaginn þegar flautað verður til leiks gegn Arsenal þann 15. ágúst.  Tímabilið er jú byrjað, en í hausnum á mér byrjar það fyrir fúlustu alvöru þegar baunabyssurnar koma í heimsókn.  Ég ætla að spá þessum leik 3-0 og að það verði Ngog, Jovanovic og Joe Cole sem sjái um markaskorunina fyrir okkar menn.

Game on

Torres: “Er hjá besta félaginu”
Þá höfum við það, maður hefði alveg getað sleppt því að vera með kvíðahnút yfir því hvar tryggð Torres lægi, hún liggur hjá okkur.  Svei mér þá ef þetta viðtal er ekki eitt það al ánægjulegasta og skemmtilegasta sem ég hef lesið afar lengi.

Torres, Gerrard og Joe Cole, ásamt svo mönnum eins og Milan, Kuyt og Maxi, þetta eru þungavigtarmenn til að leiða framlínu okkar í vetur.  Nú er bara að bæta eins og einum hörku framherja við hópinn, þá væri maður svaðalega sáttur við lífið og tilveruna hjá Liverpool FC (þarf ekki að fara út í neina eigenda fantasíur hérna, það þarf bara að gerast).

Stöðumat: Framsæknir miðjumenn
Framsæknir miðjumenn

Ég ákvað þegar ljóst hver yrði næsti stjóri hjá okkur að skipta stöðunum þannig að vera ekki með neinn sem “holuleikmann” heldur skoða framherjana miðað við tvo þar og miðjumannapar með einum holding og öðrum framsæknum.  Roy Hodgson er þekktur fyrir 4-4-2 kerfi og á ég ekki von á því að hann sé að fara að breyta neitt mikið út af þeirri stefnu sinni.  Eins og með sumar aðrar stöður, þá erum við auðvitað oft að tala um leikmenn sem geta leyst hinar ýmsu stöður.  Þetta er áfram bara mitt mat á þessu og þarf ekki að endurspegla skoðun þjóðarinnar.

Ég veit ekki með ykkur, en ég get hreinlega ekki beðið eftir að sjá hinn raunverulega Aquilani með eitt stykki pre-season á bakvið sig.  Þessi strákur er virkilega hæfileikaríkur og skemmtilegur spilari og ég er einna spenntastur fyrir honum af öllum þeim leikmönnum sem núna eru á okkar bókum.  Hann er aðeins 26 ára gamall og ég vona svo sannarlega að hann sé búinn að leggja þetta meiðslastand sitt fyrir aftan sig og nái núna að sýna almennilega hvað í honum býr.  Nýji yfirlæknirinn hjá félaginu segir hann vera í virkilega góðu standi og búinn að ná sér 100%.  Við erum auðvitað líka með sjálfan Stevie G.  Ég hreinlega bara vil ekki trúa því að hann sé að yfirgefa liðið, bara hreinlega trúi því ekki og neita þeirri hugsun að koma upp í kollinn á mér.  Af hverju ætti hann að fara núna þegar hann er orðinn 30 ára gamall, er kominn á legendary status hjá félaginu og þar fyrir utan nýbúinn að skrifa undir langtíma samning.  Nei, hlíðin er fögur, hann fer ekki rassgat, svo vitnað sé í hann Gunnsa karlinn.

Núverandi framsæknir miðjumenn(nafn, aldur, land):

Steven Gerrard, 30, England

Alberto Aquilani, 26, Ítalía

Daniel Pacheco, 19, Spánn

Jonjo Shelvey, 18, England

Francisco Durán, 22, Spánn

Nicolaj Køhlert, 17, Danmörk

Adam Pepper, 18, England

Eins og áður sagði þá tel ég þá Alberto og Stevie verða algjöra lykilmenn á tímabilinu.  Gegn litlum liðum, þá gætu þeir tveir meira að segja spilað saman á miðjunni, þ.e.a.s. með engann varnartengilið.  En staðreyndin er samt sú að fyrir utan þessa tvo, þá erum við að mestu bara að tala um kjúklingasalat.  Við erum reyndar með einn kappa þarna, Durán, sem er virkilega góður og skemmtilegur spilari.  Ég er sannfærður um að ef hann hefði ekki verið svona fjandi óheppinn karl greyið, en hann hefur slitið krossbönd þrisvar sinnum frá byrjun árs 2007   (tvisvar á hægra hné og einu sinni á því vinstra), þá væri hann búinn að spila slatta af leikjum með aðalliðinu.  Hann er samt orðinn 22 ára gamall og spurning hvort hann hreinlega sé búinn að missa of mikið úr.  Gæðin eru samt klárlega til staðar þarna.

Við erum einnig með hinn bráðskemmtilega Danny Pacheco og þarf líklegast lítið að kynna hann fyrir stuðningsmönnum félagsins.  Gríðarlega leikinn og flinkur strákur, sem er bara 19 ára gamall.  Mikið hefur verið hrópað á fleiri tækifæri fyrir hann í aðalliðið, en það er eitthvað sem segir mér að hann komi til með að fá tækifæri á að fara að láni í vetur til að ná sér í aðeins meiri reynslu.  Ólíkt mörgum, þá finnst mér alltaf betra að þessir strákar séu lánaðir út þar sem þeir fá að spila reglulega, frekar en að spila með varaliðinu, enda eru leikir þar af afar skornum skammti.  Ég er þó á því að nýjasti liðsmaður Liverpool FC, Jonjo Shelvey, komi til með að fá flesta sénsana.  Hann er nú þegar kominn með talsverða leikreynslu og er sagður rosalegt efni.  Hann er samt einungis 18 ára gamall og verður spennandi að fylgjast með þessum gutta í vetur.

Nicolaj Køhlert og Adam Pepper eiga svo eitthvað lengra í land með að fara að banka á dyr aðalliðsins.  Pepper þessi er þó sagður eitt mesta miðjumannsefnið á Merseyside núna, hann var talinn undrabarn þegar hann var 14 ára, en framþróun hans hefur verið aðeins hægari enn vonast var til.  Nicolaj veit ég mun minna um, en skilst að Danir fylgist grannt með framþróun þessa stráks og spá honum glæstri framtíð.

Ég sem sagt reikna ekki með að neinn af þessum núverandi leikmönnum í þessari stöðu verði seldir.  Einhver/einhverjir jafnvel lánaðir út til að ná sér í reynslu, stærsta spurningamerkið er kannski Durán, hann er kominn á þann aldur að þetta gæti verið make or break hjá honum.

Hugsanleg kaup (nafn, aldur, lið, land):

Christian Eriksen,  18, Ajax, Danmörk

Alan Dzagoev, 20, CSKA Moskva, Rússland

Toni Kroos,     20, FC Bayern, Þýskaland

Miralem Pjanić, 20, Lyon, Bosnía

Javier Pastore, 21, Palermo, Argentína

Éver Banega, 22, Valencia, Argentína

Marek Hamšík, 22, Napoli, Slóvakía

Ramires, 23, Benfica, Brasilía

Yoann Gourcuff, 24, Bordeaux, Frakkland

Keisuke Honda, 24, CSKA Moskva, Japan

Stephen Ireland, 23, Man.City, Írland

Sami Khedira, 23, Stuttgart, Þýskaland

Jamie O’Hara, 23, Tottenham, England

Ibrahim Afellay, 24, PSV, Holland

Matías Fernández, 24, Sporting CP, Chile

Riccardo Montolivo, 25, Fiorentina, Ítalía

Mathieu Valbuena, 25, Marseille, Frakkland

Stéphane Sessègnon, 26, Paris St. Germain, Benin

Rafael Van der Vaart, 27, Real Madrid, Holland

Joe Cole, 28, Chelsea, England

Það er svo sannarlega af mörgu að taka á þessum lista og þó svo að ég listi öllum þessum leikmönnum upp hér undir framsækna miðjumenn, þá eru þeir margir afar ólíkir.  Ef keypt yrði í þessa stöðu hjá okkur, þá þyrfti það að mínum dómi að vera leikmaður í svipuðum flokki og Gerrard eða Benayoun, þ.e. að geta verið það sveigjanlegur að hægt sé að henda viðkomandi á kantana.  Maður eins og Khedira er á listanum, ég hafði lítið séð til hans og núna eftir HM, á hann líklegast frekar heima á listanum yfir varnartengiliði.

Joe Cole:  Ég væri algjörlega til í að næla í þennan pilt.  Er á besta aldri, enskur, samningslaus og getur spilað allar framliggjandi stöðurnar á miðjunni.  Ég er samt sannfærður um að hann vilji ekki yfirgefa London og sé búinn að klára sín mál við Arsenal.  Spurs eru líka eitthvað að míga utan í hann, þannig að ég tel líkurnar á að fá hann…engar.

Yoann Gourcuff:  Þetta er hrikalega creative og skemmtilegur leikmaður, á því er enginn vafi.  Eitthvað hefur verið sett út á karakterinn hjá pilti og ekki skal ég dæma um það.  Held þó að hann myndi kosta of háar fjárhæðir og því vera out of reach.

Keisuke Honda:  Sló gjörsamlega í gegn á HM og verðmiðinn hækkaði því talsvert.  Enginn vafi á því að hann er öflugur fram á við, myndi svo sannarlega ekki skaða í markaðssetningarátaki félagsins í Asíu og að mínu mati yrði hann einfaldlega mjög öflug viðbót.  Þrátt fyrir að verðmiðinn hafi hækkað, þá er hann einna líklegastur til að vera innan okkar þolmarka þegar kemur að peningahliðinni.

Rafael Van der Vaart:  Ég hreinlega veit ekki hversu oft þessi drengur hefur verið orðaður við okkur síðustu árin, en það er ansi oft.  Eitt mesta efni sem komið hafði fram á sjónarsviðið í Hollandi afar lengi, en ferill hans staðnaði talsvert og er hann ekki alveg það stóra nafn sem stefndi í þegar hann var afar ungur orðinn fyrirliði Ajax.  Hann er fringe player hjá Real Madrid í dag og á ég alveg von á því að hann færi sig um set.  Hann getur spilað margar stöður á vellinum og í rauninni passar inn í það sem við erum að leita eftir.  Ég á heldur ekki von á því að hann fari á einhverja svaðalega upphæð og gæti því verið innan okkar marka.

Stephen Ireland:  Hvort sem menn trúa því eða ekki, þá er þessi strákur bara 23 ára gamall (nema eitthvað Nígeríu svindl sé í gangi).  Ég hef hrifist mikið af þessum leikmanni, var algjörlega frábær tímabilið 2008-2009 og virðist núna ekki vera mikið inni í myndinni hjá Mancini.  Hann flokkast sem uppalinn á Englandi og fellur því undir þá reglu.  Væntanlega værum við ekki að ræða um neina stjarnfræðilega upphæð en ég er ekki viss hversu mikill kantmaður hann getur verið.  Engu að síður mjög spennandi kostur.

Marek Hamšík:  Það er einungis tímaspursmál hvenær þessi strákur yfirgefur Napoli fyrir stærra félag.  Virkilega öflugur leikmaður sem getur spilað á miðjunni eða á köntunum.  Marksækinn mjög og setur tuðruna reglulega í netið.  Verðið á honum yrði spurning, en hann er algjörlega týpan sem myndi styrkja liðið okkar.

Ibrahim Afellay:  Kosturinn við hann að hann getur leikið allar þessar stöður, en það er bara spurning hvort um næg gæði sé að ræða.  Er fastamaður í hópnum hjá Hollandi og er fínn leikmaður, allavega það sem ég hef séð af honum, en hversu miklu hann bætir við hópinn okkar er svo aftur annað mál.

Aðrir á listanum eru fínir og flottir leikmenn svo sem.  Að mínum dómi erum við með nóg af ungum og efnilegum strákum, þannig að ég myndi ekki vilja setja einhverjar háar fjárhæðir í stráka sem eru að hefja feril sinn eins og
Christian Eriksen og Alan Dzagoev, þó efnilegir séu.  Kroos er í eigu FC Bayern og þeir láta hann alls ekki.  Pjanić er að mínu mati ekki týpan sem við leitum að, Banega ekki heldur og plús það að ég efast um að Valencia haldi endalaust áfram að selja leikmenn.  Pastore er spennandi leikmaður, sem og Ramires, en ég held að við séum ekki að fara að bæta við okkur mörgum strákum sem þurfa á atvinnuleyfi að halda.  Jamie O’Hara er ekki nógu góður, og ég er ekki spenntur fyrir Fernández, Montolivo, Valbuena og Sességnon.

Ég veit ekki hvað skal segja í þessu, Joe Cole væri draumamaðurinn okkar, tikkar í öll boxin sem eru á blaðinu, en því miður eins og áður sagði, þá er hann ekki að fara frá London.  Ég er ekki sannfærður um að Roy fari á eftir manni eins og Honda eða Van der Vaart, en líklegra að hann skelli sér í keppni um Ireland.  Þannig að ég ætla að spá því hér og nú, þó svo að hann sé ekki sá kostur sem ég er mest spenntur fyrir.

Framsæknir miðjumenn 2010-2011 (nafn, aldur, land):

Steven Gerrard, 30, England

Alberto Aquilani, 26, Ítalía

Stephen Ireland, 23, Írland

Daniel Pacheco, 19, Spánn

Jonjo Shelvey, 18, England

Francisco Durán, 22, Spánn

Nicolaj Køhlert, 17, Danmörk

Adam Pepper, 18, England

Ef þetta gengur eftir, þá sé ég fyrir mér að Stevie verði notaður á köntunum í meiri mæli á næsta tímabili.  En Alberto Aquilani, sviðið er þitt, nú skaltu sýna okkur úr hverju þú ert gerður.  Taki hann keflið á þann hátt sem ég held að hann geti gert, þá erum við með hörku playmaker og þeir geta svo sannarlega gert gæfumuninn með það hvernig tímabilið gengur.

Næst mun ég fara yfir stöðu framherja hjá Liverpool FC.

Jovanović skrifar undir
Milan Jovanović hefur nú formlega gengið í raðir Liverpool FC og skrifaði undir þriggja ára samning við liðið.  Býð hann hjartanlega velkominn og líst afar vel á þessa viðbót.

Kop.is á LFChistory.net
Nú er það orðið opinbert, búið er að alþjóðavæða hann Magga okkar.  Ritstjóri hins frábæra LFChistory.net fór þess á leit við Kop.is og Magga að fá að nota greinina hans um Roy Hodgson.  Hún er sem sagt komin í loftið og birtist fyrir stundu á Newsnow.  Hægt er að líta á meistarastykkið hérna, ef þetta segir ekki eitthvað um gæði greinarinnar, þá veit ég ekki hvað.  Til lukku Maggi, til lukku Kop.is.

Stöðumat: Vinstri kantur
Vinstri kantur

Þá er röðin komin að hinni marg umræddu stöðu vinstri kantara hjá okkar mönnum.  Við höfum séð fjölmarga leikmenn spila þessa stöðu og í mínum huga hefur aðeins einn leikmaður náð að festa sig almennilega í sessi í henni og það var Albert Riera tímabilið 2008-2009.  Því miður þá missti hann höfuðið af búknum á síðasta tímabili og því hafa Babel, Yossi, Maxi og Kuyt fyllt upp í.  Ég er á því að það séu 3 stöður sem þarf virkilega að styrkja í liðinu og er þessi staða ein þeirra.  Við erum með nokkra efnilega kjúklinga, en þeir eru bara ennþá kjúllar og ég efast um að Bruna hafi nægilega mikil gæði til að geta farið að banka upp á dyrnar.  Við sjóndeildarhringinn er þó hinn bráðefnilegi Thomas Ince og verður gaman að fylgjast með honum með varaliðinu í vetur.  Styrkja þessa stöðu Roy, takk fyrir.

Núverandi vinstri kantar (nafn, aldur, land):

Albert Riera, 28, Spánn

Ryan Babel, 23, Holland

Gerardo Bruna, 19, Argentína

Alex Kacaniklic, 18, Svíþjóð

Vincent Weijl, 19, Holland

Thomas Ince, 18, England

Ég vil byrja á því að líma frímerki á botninn á Riera, í mínum huga á hann einfaldlega ekki afturkvæmt og skiptir engu máli hvort menn séu sammála innihaldi viðtals hans eða ekki.  Hann er algjörlega og gjörsamlega búinn að fyrirgera rétti sínum til að spila í þessari fallegu treyju aftur.  Babel er stórt spurningamerki, finnst líklegast að Roy gefi honum séns á að sýna sig og sanna.  Ég er ennþá á því að hans besta staða sé á vinstri kantinum, þar hefur hann spilað sinn feril (vinstri kantur eða vinstri kantframherji) með Ajax, Hollandi og svo Liverpool.  Hann þarf hreinlega bara að fara að sýna meira af sínum hæfileikum þegar hann fær tækifæri í leikjum.  Það vita allir að þessir hæfileikar eru til staðar, en nú þarf hann að nýta þá inni á vellinum og sýna smá stöðugleika.

Ég sé alveg fyrir mér að þeir Bruna og Weijl verði lánaðir eitthvað annað og jafnvel seldir.  Það búa hæfileikar í þeim, en verandi orðnir 19 ára gamlir (Weijl 20 á þessu ári) þá er komið að þeim tímapunkti að þeir verða að taka næsta skref upp á við og ég reikna með að það gerist ekki með því að leika þessa örfáu varaliðsleiki sem eru á hverju tímabili.  Kacaniklic fellur nánast í sama flokk reyndar, hef litla trú á honum og yrði ekkert hoppandi hissa að sjá hann fara, annað hvort á láni eða beinni sölu.

Einn kostur bætist þó við þessa stöðu, Milan Jovanović.  Hann er nú yfirleitt titlaður sem framherji, en við sáum vel á HM núna að hann er hörku góður í vinstri kantstöðunni, en hann spilar hana oftast fyrir Serba.

Hugsanleg kaup (nafn, aldur, lið, land):

Paulo Ganso, 20, Santos, Brasilía

Miralem Sulejmani, 21, Ajax, Serbía

Carlos Eduardo, 22, Hoffenheim, Brasilía

Sebastian Blanco, 22, Lanús, Argentína

Diego Capel, 22, Sevilla, Spánn

Juan Manuel Mata, 22, Valencia, Spánn

Andrés Guardado, 23, Deportivo, Mexíkó

Arda Turan, 23, Galatasaray, Tyrkland

Hatem Ben Arfa, 23, Marseille, Frakkland

Roysten Drenthe, 23, Real Madrid, Holland

Ashley Young, 24, Aston Villa, England

Michel Bastos, 26, Lyon, Brasilía

Andy Reid, 27, Sunderland, Írland

Vicente, 28, Valencia, Spánn

Ég er á því að þetta sé einn allra mest spennandi listi yfir möguleg kaup.  Það kom mér hreinlega á óvart hversu margir skemmtilegir leikmenn eru að jafnaði að spila þessa stöðu og ekki í stærri liðum en raun ber vitni.  Í alvörunni, þá finnst mér hreinlega raunhæft (svo framarlega að fréttir séu réttar) að við gætum bætt þessa stöðu okkar um ferlegan helling.  Svona yrði óskalistinn minn, í réttri röð:

Juan Manuel Mata:  Ég er alveg fáránlega hrifinn af þessum leikmanni, myndi hoppa hæð mína í loft (í rifnum inniskóm) ef við næðum að næla í þennan kappa.  Líklega er hann “out of reach” fyrir okkar buddu, myndi telja að hann færi á einhverjar 25 milljónir punda.

Ashley Young:  Ég set Young í annað sætið, sér í lagi þar sem hann er enskur, en mér finnst hann líka ferlega skemmtilegur leikmaður og ég skil ekki af hverju England fór ekki með kappann með sér á HM.  Ég held þó að það gæti orðið erfitt að næla í hann frá Aston Villa.

Arda Turan:  Hann fær auðvitað stórt prik fyrir að lýsa því trekk í trekk yfir að hann langi svo að spila með þessu magnaða félagi okkar.  Þar fyrir utan er þetta einn sá besti sem komið hefur upp í Tyrklandi og er bara virkilega góður og framsækinn leikmaður.  Hann verður ekki ódýr frekar en aðrir góðir kappar á þessum lista.  Gæti trúað að hann kæmi á 15-20 milljónir punda.

Michel Bastos:  Virkilega öflugur Brassi, sem sýndi það á HM að hann getur líka leikið í vinstri bakverðinum.  Gæti orðið fjandanum erfiðara að næla í hann frá Lyon þó.  25 milljónir punda líklega.

Roysten Drenthe:  Babel-ish leikmaður að því leiti að hann er yfirfullur af hæfileikum, en hefur ekki alveg náð að virkja þá.  Er orðinn utangátta hjá Real Madrid og kannski einn raunhæfasti kosturinn í þessa stöðu.  Eins og með Bastos hér að ofan, þá getur hann leyst allar stöður á vinstri vængnum.  Gæti trúað að hann fengist á rétt innan við 10 milljónir punda.  Margir hafa þó sett spurningamerki við karakter pilts, en það eru líka svo oft rangar sögur á kreiki um þessa fótboltakappa.

Hatem Ben Arfa:  Hörkugóður leikmaður, sókndjarfur og leikinn.  Hann hefur verið mikið orðaður við England í gegnum tíðina, en aldrei tekið það skref.  Það styttist í það, en meistarar Marseille hafa eflaust hækkað verðmiðann verulega á honum eftir síðasta tímabil.  Væntanlega yrði að reiða fram eitthvað í kringum 20 milljónir punda fyrir hann.

Diego Capel:  Capel er síðastur á þessum upptalningarlista mínum yfir þá leikmenn sem ég vil helst sjá keypta í sumar.  Virkilega flinkur kantmaður sem ég er verulega spenntur yfir.  Sevilla hefur verið að byggja svolítið upp í kringum pilt, en hann mun pottþétt fara frá þeim fyrr en síðar.  Líklegast þarf að greiða yfir 20 millurnar fyrir hann.

Ég væri sem sagt nokkurn veginn hæst ánægður ef bara einhver af þessum framantöldum kæmi til liðs við okkur.  Aðrir á listanum eru meira spurningamerki.  Paulo Ganso þykir gríðarlegt efni, en væri að koma beint frá Brasilíu og hinir eru ekki þekkt nöfn, þykja ákaflega efnilegir, en spurning um aðlögun og slíkt.  Svo koma “ellismellirnir” tveir, sem ég setti á listann ef vera skyldi að budget-ið hjá Roy væri sama og ekkert.  Andy Reid er flinkur leikmaður, en ég myndi ekki segja að hann væri í hinum margumtalaða Liverpoolklassa.  Vicente var algjör háklassaleikmaður fyrir nokkrum árum, er samt bara 28 ára gamall í dag, en vegna meiðsla þá hefur hann ekki orðið jafn “stór” og maður bjóst við.

Eitthvað segir mér að það verði Arda Turan sem kemur til okkar í sumar, með það yrði ég glaður og þá færum við inn í tímabilið með öflugan vinstri væng.

Vinstri kantmenn 2010-2011 (nafn, aldur, land):

Arda Turan, 23, Tyrkland

Milan Jovanović, 29, Serbía

Ryan Babel, 23, Holland

Gerardo Bruna, 19, Argentína

Alex Kacaniklic, 18, Svíþjóð

Thomas Ince, 18, England

Þarna er komin góð breidd þó nokkuð ólíkra leikmanna.  Turin þessi léttleikandi týpa með góðan vinstri fót, Jovanović er skriðdreki sem er mjög direct í sínum leik, og svo er það hann Babel okkar, hann er…jú bara Babel og vonandi á hann eftir að blómstra í vetur, í sama hvaða stöðu hann verður settur.  Klukkan hans tifar, tifar hraðar og hraðar.

Næst mun ég fara yfir stöðu framliggjandi miðjumanna hjá Liverpool FC.