Dömur mínar og herrar. Þá er komið að því … 16 liða úrslit í meistaradeild Evrópu að hefjast og okkar menn auðvitað á fullu með í þeirri keppni. Á morgun, þriðjudaginn 19. febrúar kl. 19:45, munum við mæta Ítalíumeisturunum Inter Milan og ef það er eitthvað sem Rafa kann, þá er það að ná árangri í Evrópukeppninni. Ef liðsmenn hafa áhuga á því að ná einhverjum árangri þetta tímabil, þá er þetta keppnin. Þetta er möguleikinn!
En hversu erfitt verður að ná einhverjum árangri? Eru ekki Inter menn miklu betri en við? Höfum við eitthvað í þá að gera, miðað við hvernig leikgleði, leikform, spilamennska, sjálfstraust og innanbúðarmál hafa verið? Við komumst Krísuvíkurleiðina áfram í þessari keppni, en verður það – ásamt fyrrnefndum atriðum – okkur til gróða eða ekki?
Á þessum tímapunkti vil ég minna á að við unnum Barcelona á Nou Camp, við unnum Juventus á Anfield, við höfum slegið Chelsea út í þessari keppni oftar en einu sinni … við höfum alltaf vitað að ekkert er ómögulegt fyrirfram í þessari keppni. Ef Barnsley getur unnið Liverpool á Anfield (já já, strá salti í sárin, Doddi!), þá hlýtur Liverpool – sem er the underdog hérna – að geta unnið Inter Milan.
“Liverpool’s current form is misleading. It will be hard to beat them. We know they are a great team with quality players and a great coach in Rafael Benitez.”
Þetta segir þjálfari Inter Milan, Roberto Mancini. Auðvitað spilar sálfræði alltaf hlutverk í svona baráttu, en ég hef mikla trú á þessum orðum ítalska þjálfarans.
“”It’s a major, major blow to go out of the FA Cup to a lower league team at Anfield. We realise that’s not good enough. — But we’re going to have to get over this quickly because the Champions League is massive for us now. It’s the only thing we have left that we can win.”
Jamie Carragher mælir hér orð að sönnu. Hann talar einnig um það að andrúmsloftið verði rafmagnað á Anfield á morgun, baráttan verði til staðar – liðið vill gera betur og þó svo að sigur á móti Inter myndi ekki bæta upp tapið gegn Barnsley … þá myndi það virka sem vítamínsprauta á baráttuna sem augljóslega er framundan í deildinni (fjórða sætið sko) og í CL-deildinni.
Rafa hefur mætt Inter tvisvar sem þjálfari (með Valencia) og í bæði skiptin komst Inter áfram. Árangur Inter gegn enskum liðum í 24 leikjum er þessi: 9 sigrar, 5 jafntefli, 10 töp. Liverpool hefur mætt ítölskum liðum sex sinnum á Anfield, sigrað fjórum sinnum og tapað tvisvar. Já … tölfræði er einkar skemmtileg stundum, en eins og ég segi alltaf og geri það nú: hún vinnur ekki leiki!!!!
Ég hef fulla trú á því að Rafa peppi sína menn upp og að öllu verði tjaldað til. Torres hlýtur að koma inn og skv. fréttum úr síðasta leik, þá finnst öllum að Babel eigi rétt á því að byrja inn á. Við höfum sosum sagt að Crouchinn okkar hafi átt það líka nokkrum sinnum, en vont er að lesa í Rafa hvað þetta varðar. Að þessum orðum sögðum hins vegar, þá segi ég strax að ég býst við 3-4 vitleysum hjá mér í spá um liðsuppstillingu – en ætla að veðja á þennan fák:
Reina
Finnan – Carragher – Hyypia – Riise
Benayoun – Gerrard – Mascherano – Babel
Torres – Crouch
Bekkurinn: Itandje – Arbeloa – Alonso – Kewell – Kuyt
Pennant inni og Kewell út? — Rafa mun sækja í reynsluna hvað varðar vörnina held ég og miðjan verður gjörsamlega crucial í þessum leik, og þar VERÐUR fyrirliðinn okkar að standa sig. Ég veit að kunningi minn mun ekki samþykkja með bros á vör spá mína með Riise í byrjunarliðinu … en ég ætla samt að skjóta á þetta. Munið eftir veseninu á milli Riise og Bellamy fyrir Barca-leikinn fræga? Hvernig fór það? :-) Og sóknin … Torres verður þar aðalmaðurinn en ég hef trú á að Crouchinn eigi eftir að reynast okkur vel, eins og svo oft áður. Við spilum eflaust varlega, en spilum til sóknar og sigurs. Ég vil líka trúa því að miðjan taki meira þátt í uppbyggingu spilsins núna en í öðrum leikjum. Háar og ónákvæmar sendingar langt fram á völl mega ekki sjást svona mikið!
Spá: Þetta verður ROSALEGUR leikur! Höfum við ekki einmitt séð það hjá Liverpool í þessari keppni, að þegar eymdin virðist vera í næsta nágrenni, þá rífur liðið sig upp og minnir okkur á að taka það alvarlega??? Mikil barátta, mikið taugastríð – og ef þeir ná að halda Zlatan og félögum niðri, pirra Inter menn dálítið og setja inn 1-2 mörk á undan þeim … þá hef ég mikla trú á mínum mönnum. Ég ætla að spá Liverpool sigri (auðvitað!! kemur eitthvað annað til greina??? Ha??) – þetta fer 3:1 þar sem Torres, Gerrard og Crouch skora, en Zlatan minnkar muninn í lokin með umdeildu marki!
ÁFRAM LIVERPOOL!! — Hafið trú á ykkar liði!!!