Eruð þið nokkuð orðin þreytt á þessari fyrirsögn? Eða þessu sérnafni í fyrirsögninni? Alla vega, þá lýkur þriggja leikja hrinu við Arsenal á morgun, þriðjudag 8. apríl, kl. 18:45. Ókei, tæknilega séð þá lýkur rimmunni ekki fyrr en um tveimur tímum seinna, en þið vitið hvað ég á við. Það er sem sagt komið að þriðja leik þessara liða á einni viku, og þetta er síðari leikur þeirra í 8 liða úrslitum meistaradeildarinnar. Þetta verður bara MAGNAÐUR leikur!!! Liðin hafa leikið tvo leiki í deildinni og svo þennan fyrri leik í meistaradeildinni og allir leikirnir hafa farið 1:1 – hvernig fer á morgun??
Í deildarleiknum á laugardaginn gat Rafa hvílt stórar kanónur, auk þess sem Mascherano var í banni. Það má því hæglega búast við breytingum á liðinu, en eftir þrælgóðan leik Crouch … fær hann tækifæri núna? Og mun ekki Rafa sækja í reynsluna? Það væri auðvelt að spá byrjunarliðinu alveg nákvæmlega eins og í leiknum á miðvikudaginn, en ég ætla að taka sénsa og spá þessu:
Reina
Finnan – Carragher – Hyypia – Riise
Macherano – Alonso
Gerrard – Crouch – Kuyt
Torres
Bekkur: Itandje, Aurelio, Benayoun, Arbeloa, Lucas, Voronin, Skrtel
Eflaust er skrýtið / fáránlegt hjá mér að setja Kuyt þarna og mögulega færi hann út og Babel kæmi inn … en mig langar að prófa þetta kerfi, þ.e. að hafa Kuyt, Crouch og Torres inná með Gerrard, Mascherano og Alonso fyrir aftan – hvernig stilli ég þessu öðruvísi upp? Gæti þetta verið kannski svona?
Reina
Finnan – Carragher – Hyypia – Riise
Kuyt – Gerrard – Mascherano – Alonso
Crouch
Torres
Og hvernig hitar maður upp mannskapinn hér þegar við höfum lítið gert annað en að tala um þessi tvö lið síðustu viku? Best væri að lesa pistilinn hans KAR upphátt reglulega fyrir leik! Og auðvitað kommentin sem hafa þegar komið á færslurnar síðustu daga.
Alan Hansen rifjar hins vegar upp það hræðilegasta atvik sem ég man eftir í enska boltanum, og ástæðu þess af hverju ég hata Arsenal mest allra liða … auðvitað smá barnaleg afstaða í mér, en þetta er góður punktur hjá Alan:
“This is why the message will be from Benitez that Liverpool must play to win and my belief is that they will win. He will be well aware that while 0-0 puts Liverpool through, it only takes one goal from Arsenal to turn it all around.”
Með þennan fjandans leik í huga, þá hræðist ég dálítið leikinn en er auðvitað sannfærður um að við töpum honum ekki! Þvílíkt sem maginn og hausinn hringsnúast þessa dagana! Tölfræði hefur ekkert að segja fyrir svona leiki, en er aðallega til skemmtunar. Á opinberu heimasíðunni kemur m.a. þetta fram:
- Liverpool hefur aðeins fengið á sig eitt mark gegn ensku liði á heimavelli í Evrópukeppni, það var árið 1971 (flott ár!) gegn Leeds!
- Steven Gerrard hefur skorað í síðustu þremur heimaleikjum liðsins í meistaradeildinni. Engum liðsmanni Liverpool hefur tekist að skora í fjórum leikjum í röð á heimavelli í Evrópukeppni … verður þetta sögulegt?
- Í 32 leikjum sem Peter Crouch hefur skorað, þá hefur Liverpool aldrei tapað (28 sigrar, 4 jafntefli).
Gaman að þessu!
Tvö góð komment frá mótherjunum:
Arsene Wenger: “We have the resources to advance”
Bendtner: “We have enough goals in us to go through”
Auðvitað ber að taka snilling eins og Wenger alvarlega … ‘we have the resources…’ – spakur maður! Við höfum ‘resources’ líka auðvitað, og með mann eins og Bendtner innanborðs, þá hlýtur Wenger að spyrja: skorar hann í dag eða bjargar hann marki? :-) Persónulega ætla ég að veðja stórri fjárhæð að Bendtner skorar ekki neitt!
Mín spá: En eins og fram hefur komið þá hafa þrír leikir þessara liða í vetur farið á sama veg: 1-1! Ekki þykir ólíklegt að svo verði aftur, og framlengt – og mögulega vítaspyrnukeppni. En ég ætla að tippa á að hið ömurlega Liverpool lið muni vinna stórskemmtilega Arsenal-liðið 2:0, og það verða Gerrard og Torres sem skora. Bendtner mun svo aftur bjarga á línu fyrir okkur …
Áfram Liverpool! Fyrir mig persónulega hefur Hansen gert þetta að enn meiri taugaleik, vegna tilvísunar hans í 1989 dæmið. Fyrir mig persónulega yrði sætt – afar sætt – að sjá Arsene Wenger fara í gegnum enn eitt titlalausa tímabilið með liðið sitt æðislega, og þar hefði Liverpool spilað stóra rullu. Hvað segið þið?? Er enginn spenntur hérna???
ÁFRAM LIVERPOOL!